Fc Hómer 5-3 Fc Moppa
Eftir að hafa legið yfir leiknum á móti Fc Hómer alla helgina og spáð og spekúlerað í því hvað fór úrskeiðis þá komst ég að því að við töpuðum mjög sannfærandi! Fyrri hálfleikur var ágætur af okkar hálfu og börðumst við sæmilega og uppskárum 3 ágæt mörk, en fengum aftur á móti á okkur 2 klaufamörk. Fyrsta markið kom eftir mistök í vörninni þar sem undirritaður missti boltann á afleitum stað sem aftasti varnarmaður og staðan orðin 1-0. Siggi gerði næstu mistök sem kostuðu okkur annað mark, en í kjölfarið af því komu þrjú ágæt mörk frá moppunni sem sneru stöðunni í 3-2. Bjössi, Gústi og Tommi settu mörkin og var ágætlega staðið að þeim öllum. Fyrri hálfleikur var bara nokkuð vel spilaður og sást oft mjög gott spil og vorum við sanngjarnt yfir í hálfleik. Í seinni hálfeik var eins og við værum hauslausar hænur þar sem menn spiluðu hvað eftir annað úr stöðunum og komumst varla yfir miðju. Hómer setti 3 klassísk moppumörk á okkur og miðað við spilamennskuna í seinni hálfleik áttum við þetta skilið. Held að hluti af skýringunni sé að finna í því að menn voru að skipta sér í stöður sem þeir eru ekki vanir að spila. Engu að síður var ágætt að sjá hvar við stöndum og hvað við þurfum að bæta okkur í, t.d. voru sendingarnar alveg skelfilegar mikið af feilsendingum og væri vel hugsandi að taka 2 snertinga bolta hluta af æfingum því ekki veitir okkur af.
Þeir sem mættu í leikinn voru Bjössi, Benni, Gunni (nýr), Gummi, Kári, Gústi, Siggi (fullur), Himmi, Lolli, Loftur, Ingvi, Tommi, Doddi, Höddi og Palli.
Minni á æfinguna annað kvöld kl. 22:00 á Framvellinum
Kv. Van Basten
Þeir sem mættu í leikinn voru Bjössi, Benni, Gunni (nýr), Gummi, Kári, Gústi, Siggi (fullur), Himmi, Lolli, Loftur, Ingvi, Tommi, Doddi, Höddi og Palli.
Minni á æfinguna annað kvöld kl. 22:00 á Framvellinum
Kv. Van Basten

0 Comments:
Post a Comment
<< Home