Fyrsta æfingin og aðrar upplýsingar
Það var gaman að sjá góða æfingu á fyrstu æfingu vetrarins á glænýjum heimavelli moppunnar í Safamýrinni. Þó verður að kvarta yfir lélegum birtuaðstæðum sökum skorts á flóðljósum! 18 manns mættu til æfingar og þar af voru 7 nýjir. Loftur mætti með 5 nýja í boltann og Ásgeir og Doddi sitthvorn manninn. Stóðu þeir sig flestir nokkuð vel og væri gaman að kíkja á nokkra þeirra aftur. Grasið var bara nokkuð gott að mínu mati, þarf aðeins að venjast því en að öðru leiti allt í lagi. Ágætt að ná að venjast því aðeins þar sem þetta er einn af völlunum sem mun verða spilað á í sumar. Gaman var að sjá Gunna mæta sterkan til leiks eftir langvarandi fjarveru vegna meiðsla. Þeir sem mættu á æfinguna voru Lolli, Loftur, Gunni, Jón Emil, Gústi, Jónas, Kjarri, Teddi, Ásgeir, Doddi og Bjössi ásamt þessum 7 nýliðum og verður það að teljast mjög góð mæting (samanber síðasta sumar). Þessi æfingatími verður fastur fram til 10. maí og því hljóta menn að koma til að muna þennan tíma
!!!MIÐVIKUDAGAR KL. 22:00 -23:00!!!
Annars eru hérna upplýsingar sem komu fram á aðalfundi utandeildarliða!
Hérna koma helstu punktar frá aðalfundi, en því miður náum við ekki að senda ykkur glærurnar.
Ø Bjarni G. lætur af störfum sem mótstjóri og hefur Örvar Sær Gíslason tekið við af honum sem mótstjóri.
Ø Samið hefur verið við ÍBR til 2ja ára um leikjaumsjón og vallarleigu. Leikið verður á 3. kynslóðar gervigrasi hjá Fram, Fylki, KR, Leikni og í Egilshöll.
Ø Mótsgjald hækkar í 95.000 kr sem skiptist í 2 greiðslur, fyrir 17. mars skal greiða staðfestingargjald 25.000 kr og fyrir 11 apríl lokagreiðslu 70.000 kr.
Ø Lið bera ábyrgð á að skýring greiðslu sér skiljanleg, senda kvittun á iba@isl.is
Ø Reglur mótsins verða þær sömu og áður, liðum ber að kynna sér reglurnar en þær eru að finna á www.sport.is
Ø Úr stjórn Félags Utandeildarliða ganga Þór Bæring Ólafsson og Guðmundur Snorrason, í stað þeirra koma Magnús Sævar Magnússon, Elliða og Ingvar Magnússon úr Markaregn.
Ø Við óskum eftir einum forsvarsmanni úr neðri deild til að koma að styrkleikaröðun neðri deildar. Áhugasamir vinsml. Sendið póst á iba@isl.is
Eins og þið sjáið hefur mótsgjaldið hækkað og verður að vera búið að borga það allt fyrir 11. apríl og staðfestingagjald fyrir þann 17. mars sem er 25 þús kr. Þá er hugmynd uppi um að kaupa búninga í sumar, og vera við æfingar fram í maí allavega, sem er 5000 kr. tíminn. Þetta gerir það að verkum að við þurfum að leggja nokkuð út fyrir öllu þessu. Hugmyndin var að gjaldið yrði 12500 fyrir sumarið og er þá allt innifalið. Greiðsluna má borga í nokkrum hlutum eða þá öll í einu. Menn þurfa að borga 2000 kr strax svo að við eigum fyrir staðfestingagjaldinu. Reikningsnúmerið er 1135 05 409000 kt. 021176-4279
Látið svo heyra í ykkur hér á commentunum látið einnig þá sem ekki vita af síðunni vita af henni.
Kv. Van Basten

2 Comments:
Glæsilegt.
Borga eitthvað sem fyrst. Er annars búið að draga í riðla eða eitthv., ef ekki hvenær er það'''
Bjórvambir vs stuttbuxna og self tan team
Post a Comment
<< Home