Monday, May 02, 2005

Fc Moppa 5-1 Fótboltaklúbburinn

Fc moppa gerði sér dagamun í gær og vann til tilbreytingar stórt í gær í leik þar sem dómarinn átti stórleik!
Fc Moppa mætti gallvösk til leiks og reiðubúin í slaginn og að vanda mættu rúmlega þriðjungur af skráðum moppumönnum eða 12 manns og er þetta farið að verða svolítið leiðigjarnt! Ingvi hringdi í Sverrir og kom hann þannig að moppan byrjaði með 2 varamenn. Uppstilling liðsins var Loftur í marki, Benni og Pálmi í miðverðinum, Gunni Freyr og Gústi í bakvörðum. Jón Emil og Gummi á köntunum, Palli og Ingvi á miðjunni og Valdi og Bjössi frammi. Varamenn voru Halldór Smári og Sverrir. Leikurinn byrjaði ágætlega og var nokkuð jafnræði með liðunum þar sem þau skiptust á að sækja. Engin stórkostleg færi litu þó dagsins ljós fyrr en um miðjan seinnihálfleik þar sem boltinn barst til Valda þar sem að hann snéri baki í markið, hann tók hann á hnéið og snéri sér við og bombaði honum yfir markvörðinn og staðan því 1-0 fyrir moppunni.
Það gerðist svo sem ekki mikið markvert það sem eftir lifði hálfleiks. Í seinni hálfleik skipti Loftur við Gunna í markinu og tók stöðu sem sóknarmaður. Hann var ekki lengi að láta að sér kveða og endaði með að skora þrennu á 20 mínútum. Fyrst fékk hann bolta af vinstri kanti sem frá Jón Emil sem varnarmanni mistókst að hreinsa og lyfti boltanum yfir markmanninn af stuttu færi. Annað markið var eftir sendingu frá Gumma af hægri kanti, fallegt skallamark og svo í þriðja markinu fékk hann stungusendingu þar sem hann stakk vörnina af frá miðju og skaut svo hnitmiðuðu skoti í hægra hornið. Þegar 15 mínútur voru eftir náði Fótboltaklúbburinn að krafsa í bakkann með klaufalegu marki þar sem að há sending kom upp miðjan völlinn og moppunni mistókst að hreinsa út við miðju, og FK maður stakk vörnina af með ótrúlegum tilþrifum og skoraði framhjá Gunna í markinu. Þegar 10 mínútur voru eftir var Gústi rekin útaf fyrir að fá boltann í hendina og verður það að teljast einn af undarlegri dómum leiksins. Við það efldust moppumenn og hertu sóknina. Stuttu síðar fékk Loftur boltann við miðju og stakk sér í gegnum vörnina en þegar hann var kominn inní vítateig og ætlaði að taka skotið þá var hann tæklaður niður af aftasta manni Fótboltaklúbbsins sem að öllu jöfnu hefði átt að líta rauða spjaldið, en dómaranum fannst þetta ekki merkilegt brot og gaf vítaspyrnu en varnarmaðurinn fékk ekki einu sinni gult.
Sverrir sýndi mikla forsjálni í því að ná að fiska vítaspyrnuna af Lofti og setti hann örugglega í hornið og staðan orðin 5-1 fyrir moppunni. Það sem eftir lifði leiks gerðist ekki mikið og enduðu því leikar 5-1 fyrir moppunni. Leikurinn var í sjálfu sér ágætlega leikinn og var margt ágætt að sjá. Gaman var að sjá Gunna í Bakverðinum en hann stóð sig stórvel þar. Þá var Benni einnig mjög öruggur í miðverðinu og fínt að hafa mann þar sem talar allan leikinn og stjórnar vörninni. Annars áttu flestir nokkuð góðan leik þannig að það er óþarfi að vera taka einhvern einn út.
Vonandi er þetta það sem koma skal en ekki leikurinn á undan á móti Vatnaliljunum.
kv. Van Basten

1 Comments:

Anonymous Anonymous said...

Baráttan harðnar um bakvarðastöðurnar.

Góður pistill.

12:30 PM  

Post a Comment

<< Home