4-3 Thriller
Við vorum mættir 13 galvaskir Moppupiltar til leiks við FC Bundes í átta liða úrslitum bikarkeppninnar. Hinir 13 galvösku voru Gunni Freyz, Sindri, Pálmi, Himmi, Benni, Gústi, Teddi, Ingvi, Bjarni, Björn Freyr, Sverrir, Valdi og Jónsi. Við byrjuðum leikinn þokkalega og skorum strax á áttundu mín, þar var að verki Ingvi með stórutá eftir horn frá Dvergnum. Eftir það sóttu Bundes menn og jöfnuðu stuttu síðar, líka eftir horn og síðan komust þeir yfir með góðu skoti frá þeirra besta manni, manni nr. 8. Eftir það tók Moppan góðan kipp og áttu góða spretti og létu boltann ganga vel manna á milli með jörðinni og var það mál manna að Teddi hafi staðið sig með eindæmum vel í þessum leik og var með miðjuna í vasanum. Dvergurinn fiskaði svo víti og skoraði úr því sjálfur og 2-2 í hálfleik. Þá fóru hlutirnir að gerast. Á heildina litið áttum við hættulegri færi og betri sóknir þó svo að þeir hafi líka fengið nokkur færi. En Bundes menn komust svo yfir þegar bundes nr. 10 skoraði yfir Ingva í markinu eftir stungusendingu, það sem var verra við þetta mark var sú staðreynd að hann var kolrangstæður og markið með öllu ólöglegt, en það fannst dómara leiksins (sem átti hræðilegan dag) ekki. Í kjölfarið hafði svo Gústi nokkur á réttmæt orð um frammistöðu dómara og fékk þá að líta sitt annað gula spjald og þar með rautt (og vann sér það inn að vera vatnsberi í næsta leik og hann mun einnig taka að sér að bóna skófeng leikmanna fyrir og eftir næsta leik), en þá voru 15 mín eftir og við 3-2 undir. Strax í næstu sókn á eftir fékk Bjössi dauðafæri einn gegn markverði en skaut yfir, við áttum síðan að fá víti þegar Gunni var strauaður í teignum en dómarinn, var auðvitað ekki á því og Bundes sluppu með skrekkinn. Síðan á Moppan hornspyrnu frá vinstri, boltinn berst í gegnum teiginn og Jónsi og Bundes gæi elta, Jónsi hafði svo betur í axlarýtingum, flengdi honum fyrir og BO, BA!!, aldursforsetinn Valdi skallaði í markið, 3-3. Eftir það sóttu Bundes menn hart og björguðum við tvisvar á línu og hafði Pálmi þá bjargað einu sinni á línu fyrr í leiknum, síðan á síðustu mínútu leiksins komumst við í hraða sókn, boltinn barst inn í teig og þar var aftur mættur Valdi og setti hann viðstöðulaust í hornið fjær, og slakur dómari leiksins flautaði þetta svo af strax á eftir. Frábær leikur, mikil spenna og gaman, Bundes menn með fínt lið og spiluðu ágætan bolta, en við áttum þetta skilið. Það eru svo 3 lið sem koma til greina í undanúrslitum, Melsteð, Puma og FC Keppnis.
Góðar stundir.
Góðar stundir.

4 Comments:
Hver tók laxasalatið ?
Þessu verður að svara, þetta er mjög góð spurning sem er á allra vörum, vinsamlegast gefið ykkur fram og skilið laxasalatinu.
Gedveikt Mar!!! Brædurnir ad setja kvikyndid hægri vinstri, Gústi nennir ekki ad hlaupa og fer í sjálfskipada útlegd á bekkinn, gaman ad heyra ad Teddi er kominn aftur eftir sumarfrí, thví eins og allir vita thá er ekkert vit í thví fyrir okkur raudhærdu mennina ad vera ad spila úti í Júní og Júlí thad er bara alltof heitt.
Bikarleikir eru málid, ég spiladi einmitt bikarleik med FC Island um daginn sem vannst á seinustu mínútu seinni hálfleiks framlengingar. There's no games like cup games.
Thad er bara eitt sem ég skil ekki, af hverju tók Gústi ekki vítid, ég hélt ad hann væri vítaskytta nr. 1 eftir ad ég fór út?
Kvedja, skål og allt hitt!
Gíraffinn
Jamm þetta var ótrúlega auðveld endurkoma og lítið mál að mata okkar eldfljótu sóknarmenn. Skemmtileg nýbreytni að vera inná miðri miðjunni í tæklingum og skallaeinvígum.
Post a Comment
<< Home