Bikarbömmer
Sælir félagar!
Bikarleikurinn gegn Fc Bundes tapaðist því miður 3-0 sökum þess að við notuðum ólöglegan leikmann og verðum við bara að læra af því. Þetta er ekki eitthvað sem við viljum vera þekktir fyrir þannig að látum þetta ekki gerast aftur. Ræddi við forsvarsmann þeirra og fannst honum þetta miður og hefði frekar verið til í að endurtaka leikinn heldur en að komast áfram á þessum forsendum en stjórn utandeildarinnar tók fyrir það.
Þetta er miður en verðum við að taka því eins og hverju öðru hundsbiti og getum kennt okkur sjálfum um mistökin! Þá er ekkert annað að gera en að drekka meira og vinna afganginn af leikjunum í deildinni!
Kv. Van Basten

4 Comments:
Og hver var ólöglegur?
Þetta er nú meira bullið.
Löglegir-ólöglegir-ólögulegir...hverju skiptir það. Þó svo hann hafi spilað einn eða tvo leiki með öðru liði, hann er búinn að spila með okkur svo lengi sem ég man eftir mér.
Ég er sammála fyrsta ræðumanni, nú er áfengið það eina sem færir manni hamingju og tilhlökkun.
En hvað með þessa sekt?
Er Utandeildin að fara fjandans til?
Sektir eiga heima innan atvinnumannadeilda. Er ekki andskotans nóg að borga allan sumarfríis peninginn til að fá leyfi til að spila á móti öðrum liðum og fá hundlélega dómara leik eftir leik.
Ég sekta Utandeildina um 30.000 kr. ef þeir koma ekki með almennilega dómara í næsta leik eins og þeir lofuðu í byrjun leiktíðar.
Vonandi vinna Bundes þennan bikar sem vonandi er ekki kenndur við hland mjöðinn sem styrkir þessa bumbudeild.
Ég man þá tíð (1996) þegar leikirnir voru allir snemma morgna um helgar svo menn voru enn svínölvaðir þegar þeir mættu til leiks. Ég man þegar Afríka fékk sinn fyrsta mann sendann útaf. Ég man eftir því að dómararnir hreyfðu sig ekki af miðjupunktinum og áttu engin lituð spjöld til í vösunum sínum. Ég man þegar Utandeildarliðin voru EKKI með einkaþjálfara, sjúkratösku, hárbönd eða coordinated búninga heldur með kassa af bjór og grill á hliðarlínunni. Hvar er þessi utandeild??
Heyr, heyr!!
Snøkt, thad er ekki laust vid ad madur brynni músum, snøkt.
HEYR HEYR!
Post a Comment
<< Home