Wednesday, August 10, 2005

En einn sigur Moppunar...

Í gær spilaði Moppan við hið geysisterka og fjallhressa lið Gismó. Vorum við að þessu sinni mættir 17 talsins (Einar Örugglega, Siggi Örugglega, Siggi, Pétur Björn, Benni, Arnar, Bjössi, Gústi, Pálmi, Jónsi, Bjarni, Himmi, Gunni, Gummi, Ingvi, Sverrir, Jónas og síðast en ekki síst sindri sem á einmitt ammli í dag (11.08) til lukku með það) sem er vel gert.

Gismó menn byrjuðu betur og skoruðu strax á þriðju mínútu, eftir gott spil upp miðjuna. Við þetta hresstumst við aðeins og fórum að vakna, Dvergurinn jafnaði síðan á áttundu mínútu eftir snilldar stungusendingu frá Sverri, sem áttu mjög góðan dag á miðjunni. Vel klárað hjá Dvergnum. Síðan skiptust liðin svolítið á að fá færi en þó án þess að mjög gott færi hafi litið dagsins ljós. Á sautjándu mínútu dró svo til fáheyrðra tíðinda þegar leikmaður nr.13 hjá Moppunni a.k.a Fisterinn skoraði mark með hægri fæti. Menn höfðu hreinlega ekki séð annað eins, það var eins og tíminn hefði stöðvast í nokkrar mínútur, áhorfendur stóðu á öndinni, dómarinn féll í yfirlið og nokkrir leikmenn pissuðu á sig. Lengi vel héldu menn að um grín væri að ræða og enginn fagnaði marki, það var ekki fyrr en 15 mín síðar að menn náðu áttum og gerðu sér grein fyrir því að Fisterinn hefði í raun sparkað í boltann með hægri fæti og ekki nóg með það þá hitti hann markið líka, staðan orðin 2-1. En það vildi þannig til að Sverrir skaut þéttingsfast á markið og markvörður hélt ekki knettinum sem hrökk til Fistersins með fyrrgreindum afleiðingum.

Eftir þetta áttum við þó nokkuð mörg fín færi sem hefðu getað klárað leikinn en tókst ekki að nýta, þegar Sverrir tók fallega klippu og skaut framhjá og stuttu seinna eða fyrr skaut Gunni rétt framhjá. Gismó fengu reyndar líka sín færi það besta þegar Himmi gaf þversendingu sem Gismó stal og geystist fram, framhjá Einar Örugglega og skaut síðan að marki og kom þá ekki aðsvífandi OfurBenni og bjargaði á marklínu. Seinni hálfleikur var svipaður, Gismó náði aldrei að setja verulega pressu á okkur og við treystum á hraðar sóknir sem hefðu getað fært okkur jafnvel tvö mörk en niðurstaðan 2-1 sigur. Gott var að hafa svona marga menn og sýndi það sig í þessum leik að við erum með góða breidd í liðinu, það skipti í raun ekki máli hver kom inná. Allt liðið átti þokkalegan leik og við hefðu getað unnið mun stærra, og hápunktur leiksins glæsimark Fisterisins með hægri, það verður hægt að kaupa skóinn sem Fisterinn var í á uppboði sem fer fram á Grand Hótel 12.ágúst og hefst uppboðið í 1.3 milljónum.

Næsti leikur er síðan sunnudaginn 14. ágúst kl. 19.30 gegn fc cccp og vonandi náum við sama
mannskap og í liðnum leik.

Góðar stundir.

2 Comments:

Anonymous Anonymous said...

Það leiðréttist hér með að Sindri Sveinsson hinn góðkunni og elghressi leikmaður Moppunnar var með í þessum leik, það hefur líklega gleymst að skrifa hann þarna. Sá sem skrifaði pistilinn hefur þegar verið rekinn úr Moppunni með skít og skömm fyrir þetta þar sem Sindri á einmitt afmæli í dag. Til hamingju með það kútur.
Fisterinn

2:28 AM  
Blogger Myrkur í Máli said...

Kvedjur úr Danaveldi!

Jeg trúi thví ekki fyrr en ég sé myndræn sönnunargögn ad Fisterinn hafi skorad med hægri en ef rétt reynist thá er thad hreint útsagt magnad. Moppan líka komin í 4. sæti og stefnir ótraud á úrslitakeppnina og úrslit bikarsins. Madur fær hér ad sparka í bolta med FC Island sem er hid frambærilegasta lid thó thad geti aldrei fyllt upp í tómarúmid sem Moppan hefur skilid eftir í hjarta mínu. Gott ad heyra ad Himmi sér enn um ad halda spennunni vid, og gott ad heyra í einhverjum á sídunni yfirhöfud.

Thid endurtakid sídan leikinn gegn FCCCCCCPPPCCP á morgun og ég skora her med á Sleggjuna ad setja aftur mark, helst inn af varnarmanni.

Med rigtig god hilsen fra København, Gíraffinn

7:57 AM  

Post a Comment

<< Home