Fc Hörleifur 4-1 Fc Moppa
Þessi leikur var nú ekki uppá marga fiska og best að fara sem fæstum orðum um hann.
Með sigri hefðum við verið í baráttu um að komast í úrslitakeppnina en með tapi setið í miðjumoði. Með miklum vilja og baráttuhug tókst okkur að tapa mjög svo sannfærandi á sunnudag.
Þeir sem mættu til leiks voru eftirfarandi: Lolli, Gunni F, Jón, Sindri, Kjarri, Bjarni, Siggi H. Siggi, Benni, Arnar, Gústi, Pálmi og Valdi. Liðið spilaði 4-4-2 þar sem að Gunni byrjaði í marki og Siggi og Benni voru miðverðir. Sindri og Pálmi bakverðir, jón og Bjarni á köntunum og Arnar og Kjarri á miðjunni. Frammi voru svo Gústi og Valdi. Á bekknum voru undirritaður og Siggi H.
Leikurinn var ekki orðinn margra mínútna gamall þegar Hjörleifsmenn skoruðu og fyrir hlé bættu þeir við einu marki með glæsilegri hjólhestaspyrnu. Í fyrrihálfleik átti dómarinn þó besta mómentið, það kom skot á markið hjá okkur sem Gunni sló í slánna og þaðan fór boltinn inn í hornið neðst og skaust þaðan út, Hjörleifsmenn byrjuðu að fagna og Moppumenn byrjuðu að labba út en dómarinn flautaði ekki og því hélt leikurinn bara áfram eins og ekkert hefði í skorist. Hjörleifsmenn voru ekki alveg sáttir við þetta en það var nú ekki hægt annað en að hlægja að þessu þetta var svo fáránlegt.
2-0 í hálfleik.
Í seinni hálfleik komum við talsvert ákveðnari til leiks og tókst að stilla vörninni vel upp og spila ágætlega. En þegar 20 mínútur voru eftir bættu Hjörleifsmenn við þriðja markinu. Skömmu síðar komst þó Valdi í gegn og tókst að vippa yfir markmann Hjörleifs og minnka muninn í 3-1. Áður en leiknum lauk bættu svo Hjörleifsmenn við einu markinu enn og unnu leikinn sannfærandi 4-1.
Það er svo sem ekki hægt að kvarta yfir þessu, þar sem að Hjörleifsmenn voru í heildina betri en við og verður það að dæmast á mætinguna. Mættum 13 þar af Undirritaður, Gústi, Sindri og Bjarni ekki nema hálfir menn, því ekki að furða að eftir 15-20 mínútur var Bjarni kominn útaf með tognun.
En stefnan er tekin á að vinna síðasta leikinn og hafa gaman af honum, ætlum að mæta með eitthvað létt á hliðarlínuna til að ná upp stemmningu og endilega að mæta sem flestir.
kv. Van Basten

1 Comments:
Það er ekki oft sem ég kemst í leiki, en ef ég hefði vitað af þessum þá hefði ég mætt.....
Post a Comment
<< Home