Wednesday, September 14, 2005

Fc moppa 0-2 Duffþakur

Þá er tímabilinu formlega lokið og ekkert eftir nema að hella sig blindfullann á árshátíðinni. Hvet ég alla hvort sem það eru moppumenn eður ei að safna ló á efrivör í tilefni af árshátíð moppunnar þann 24. sept...... en nóg um það í bili, vík að því á eftir.

Fc Moppa tók á móti Duffþak í síðasta leik tímabilsins, þar sem að bæði lið höfðu að engu að keppa nema hvort yrði ofar í töflunni. Hvorugt liðið var í fallbaráttu né að berjast um sæti í úrslitakeppninni. Var mætingin í skárra lagi, en 17 manns sáu sér fært að mæta. Eftirtaldir mættu, Einar Örugglega, Siggi örugglega, Siggi, Gunni, Benni, Himmi, Arnar, Sverrir, Doddi, Ingvi, Bjarni, Bjössi, Jón, Gústi, Andreas, Pálmi og Lolli.
Byrjunarliðið var Einar í marki, Himmi og Benni miðverðir, Gústi og Siggi bakverðir. Jón og Gunni á köntunum og Sverri, Arnar og Ingvi á miðjunni og svo Bjössi einn frammi.

Leikurinn byrjaði ágætlega og var spilið ágætt á köflum og áttum við ágætis færi, þá áttu þeir einnig prýðis færi og endaði ein sókn þeirra með marki, boltinn barst hratt upp kantinn og þaðan inná miðjuna þar sem að einn Duffþaksmanna fékk boltann og negldi honum inn. 1-0 fyrir Duffþak. Eftir markið skiptust liðin á að sækja og voru bæði lið óheppinn að skora ekki. Moppan hélt áfram að sanka að sér gulum spjöldum og hirti Ingvi eitt í fyrrihálfleik fyrir nákvæmlega ekki neitt, (smá brot og röfl hver er að telja). Stuttu síðar var flautað til hálfleiks. staðan í hálfleik 1-0 fyrir Duffþak.

Í seinni hálfleik var skipulaginu breytt þannig að Þýski risinn var settur í Centerinn ásamt Bjössa þannig að leikkerfið breyttist úr 4-5-1 í 4-4-2. Ekki virtist það virka sérlega vel þar sem að spilið á miðjunni datt svolítið niður eftir það. Og eftir ca. 15 mínútna leik fengu Duffþaksmenn boltann gefins á miðjunni og geystust upp völlinn og skoruðu 2-0. Eftir þetta var fátt um fína drætti þanngað til í lok leiksins þegar Ingvi braut af sér út við hliðarlínu og það var dæmt á hann honum til mikillar gleði, enda hló hann lét við, dómarinn þótti það greinilega ekki viðeigandi og sagði hátt og snjallt "heyrðu vinur þú ert á síðasta séns" og Ingvi glotti við tönn og svaraði kankvís í bragði "Nei ÞÚ ert á síðasta séns" og fékk að launum sitt annað gula spjald í leiknum og með því það rauða. Enginn var meira hissa en Ingvi þegar hann fékk spjaldið og ræddu hann og dómarinn stundarhátt saman í smá tíma áður en Ingvi rölti útaf og fékk sér bjór á hliðarlínunni. Eftir brottvísunina áttu moppumenn ágætis sóknir og voru líklegri til að skora en ekki gekk það eftir og síðasti leikur tímabilsins kláraðist með 2-0 tapi fyrir Duffþak.

Þetta var ágætur leikur, sér í lagi í fyrri hálfleik en við það að breyta í 4-4-2 í seinni hálfleik datt dampurinn svolítið úr liðinu.

But now for somthing completly diffrent!!!!! Árshátíðinn verður haldin þann 24. september næstkomandi og er skylda hvers moppumanns að láta sér vaxa grön! Ekki þýðir að greiða út nasahárin því að það er ekki ekta moppa þannig að kaupið nú töfraelexírið "Loðin efrivör á 10 dögum" í næsta apóteki og hyljum efrivörina með hári!!!!

Eigið góðan dag
Van Basten

2 Comments:

Anonymous Anonymous said...

Djö mar, ég sem ætlaði að bjóða öllum heim til mín en þessi dagsetning sökkar.

Ég verð með Moppu í Köbenhavn þessa helgi en segi bara góða drykkju.

"A naked upper lip is a sure sign of a sick mind"

2:09 AM  
Blogger Myrkur í Máli said...

Nú þá hentar bara flott að allir skelli sér til Köben og hátíðin verði haldin hér ódýr gisting og ódýrt vín, flugið kostar ekki nema það sem Gústi mun eyða í strípur fyrir lokahófið.

4:14 AM  

Post a Comment

<< Home