Tuesday, April 25, 2006

Æfingaleikur, Riðlar ofl.

Sælir

Þá er komið að fyrsta æfingaleik sumarsins.
Hann verður á Framvellinum, kl.17.00 næstkomandi sunnudag(30.apr) á móti Vatnsberum.
Allir að mæta í ný pússuðum skóm og gömlu góðu treyjunum.

Þá er búið að draga í riðla fyrir sumarið. Liðum hefur eitthvað fækkað og því aðeins þrír riðlar í sumar og erum við í c-riðli sem við fyrstu sýn virðist ansi sterkur.

Riðill C
Áreitni,Fc Fame, Fc Reynir, Fc Fame, Nings, Dragon, Fc Moppa,TLC, Vatnsberar, Stormur, Kærastan hans Ara, Gismo, Strumpar.

Í öðrum fréttum þá mun deildin vera spiluð á sömu völlum og í fyrra ásamt Tunguvöllum sem er N.B. grasvöllur og þá geta pappakassar eins og Gústi glaðst yfir því að kaupa áltakkaskó fyrir sumarið.

Við þurfum svo að tala um búningamál ofl. eftir leikinn.

Látið vita í kommentakerfið hvort þið mætið.

Kveðja,
Stjórnin

14 Comments:

Anonymous Anonymous said...

Ég mæti að sjálfsögðu enda fyrirliði og er hress.

7:30 AM  
Anonymous Anonymous said...

endilega mætið sem flestir, ég lofa skemmtilegum en jafnframt erfiðum leik....

1:44 PM  
Blogger Myrkur í Máli said...

Kemst ekki, Palli. Ekki nema ad leiknum verdi seinkad um c.a. 4 mánudi.

Sjáumst hressir!

5:03 AM  
Anonymous Anonymous said...

Mæti líklega en hvort ég hlaupi eða sparki í bolta er allt annar handleggur.
Kv,Fister.

5:06 AM  
Anonymous Anonymous said...

Nikulás mætir og netmöskvana þenur.

Ásgeir N.

6:24 AM  
Anonymous Anonymous said...

Beljakinn mætir

9:29 AM  
Anonymous Anonymous said...

Ég mæti og verð líklegast bara í fyrri hálfleik. Verður gaman taka Jón Frímann létt eins og síðasta sunnudag

Pálmi

9:55 AM  
Anonymous Anonymous said...

Mæti,
T.

1:24 PM  
Anonymous Anonymous said...

Ég mæti.

Siggi Hannesson

9:06 AM  
Anonymous Anonymous said...

Komst því miður ekki, neyðaraðstoð í fjölskyldunni.

10:42 PM  
Anonymous Anonymous said...

Ég var út úr bænum, en hvernig fór annars leikurinn?

12:52 AM  
Anonymous Anonymous said...

Það var víst 3-2 sigur Moppumanna + lánsmanns.....

Til að halda Moppulita hefð,,,
Hvernig líst mönnum á búning Trinidad&Tobaco :o) eða Japans
http://www.worldsoccershop.com/shop-by-country-trinidad-and-tobago-trinidad-and-tobago-national-team-trinidad-and-tobago-2006-home-.html

2:31 AM  
Anonymous Anonymous said...

Sælir og takk fyrir leikinn síðasta sunnudag. Við í Vatnsberunum verðum áfram með sama tíma út maí og vorum að velta fyrir okkur hvort menn væru ekki bara stemmdir í annan leik??? á laugardaginn kl 17:30

hafið samband við mig á tomasfreyr@gmail.com og látið vita

kv Tommi

4:56 AM  
Anonymous Anonymous said...

Hann meinar víst sunnudag, dvergurinn kannaði það.

6:33 AM  

Post a Comment

<< Home