Afmæli Fc Moppu
Jæja Moppan orðin 10 ára og hvað skal til bragðs taka!
Jú er ekki bara stemmning fyrir að hafa eitt stykki veglega afmælisveislu til heiðurs afmælisbarninu!
Hugmyndin er ekki bara komin fram heldur er hún að verða að veruleika.... búið er að taka sal á leigu í hjarta kópavogs þ.e. Hamraborginni! Og er tíminn júróvísíjónkeppnin víðfræga 20. mai!
Þá er einnig hugmyndin að bjóða vinum og velunnurum moppunnar til fagnaðarins og er um að gera að ná upp góðri stemmningu fyrir þetta.
Gera má ráð fyrir því að það verði bolla í boði Moppunnar og svo eins og í fyrri júróvísíjónpartýum moppunnar er að sjálfsögðu veðjað á vinningshafann og eru það sem fyrr þeir 5 sem eru næstir réttri niðurstöðu sem fá vegleg verðlaun!
Endilega komið með einhverjar hugmyndir sem hægt er að framkvæma við þetta hátíðlega tilefni!
Ef einhver vill halda ræðu eða fara með ljóðabálk til heiðurs afmælisbarninu þá er sá hin sami beðinn að hafa samband við veislustjórann Sigurð Grétar og raðar hann ræðumönnum upp eftir mikilvægi!
En er ekki stemmning fyrir þessum veisluhöldum!
endilega kommentið á þetta!
kv. veislunefndin!

3 Comments:
Fyllerí ? tjah, veit nú ekki með það. Veiðifundur ??? Það er allt annað mál ......
Ég er farinn að hlakka strax til.
Pálmi
DJö mar! Verð með Moppu í anda í Baunalandi. Fer í drykkjukeppni við sjálfan mig og stel beltum frá sólbaðsstofum til að halda uppi stemmaranum.
Kem með skónna nýbrýnda og stórhættulega til landsins 18. ágúst að öllum líkindum alkominn. Sjáumst þá.
Ps. Endilega láta heyra í sér ef þið eigið leið um Köben í sumar, tala nú ekki um ef þið ætlið á Hróarskeldu.
Moppan þúsund ár,
Moppan þúúúúúsuuuund ár!
Ein eilífðar Morgan með smá lögg í botni, sem tilbiður guð sinn og er drukkin.
Post a Comment
<< Home