Monday, May 29, 2006

Fc Moppa 2-1 Áreitni

Fyrsti sigurinn staðreynd og er stefnan tekin á 30 stig í sumar!
Fín mæting í ágætis veðri þrátt fyrir talsverðan vind og kulda. Mætti voru Einar Örugglega, siggi H. Siggi, Rúnar, Maggi, Lolli, Gústi, Pálmi, Teddi, Ingi, Jónas, Ingvi, Valdi, Bjössi, Bjarni, Þorkell, Jón og Himmi.

Byrjunarlið var skipað Einar í marki, Gústi og Siggi í bakvörðum, Himmi og Pálmi sem miðverðir, Jón og teddi á köntum, Ingvi og Jónas á miðjunni og Ingi og Bjössi frammi.

Leikurinn byrjaði ágætlega, var þó greinilegur vorbragur á báðum liðum og var nokkuð um seinar og grófar tæklingar hjá báðum liðum, dómari leiksins hafði þó ágæta stjórn á mönnum þó að gulu spjöldin hefðu með réttu átt að koma fyrr.
Framan af voru Moppumenn sterkari án þess þó að skapa sér sérstök færi, en áreitni átti nokkur hálffæri úr snöggum sóknum.
þegar ca. 10 mínútur voru eftir af fyrri hálfleik komst svo moppan í sókn þar sem að boltinn barst inn til dvergsins eldsnögga og hljóp hann í gegnum klofið á tveimur varnarmönnum áður en hann lagði boltann í markið fram hjá markmanni Áreitni. 1-0
Það sem eftirlifði hálfleiks skiptust liðin á að sækja án þess að nein stórkostleg færi sköpuðust!

Seinni hálfleikur hófst á svipuðum nótum og sá fyrri, moppan var talsvert stekari og með vindinn í bakið sótti hún af krafti. Þetta sókn skilaði marki að 10 mínútum liðnum, boltinn barst til Inga eftir hreinsun úr vörninni og hamraði hann boltann í netið yfir markmann áreitnis. Stórglæsilegt mark! 2-0
Þegar hér var komið við sögu hafði Moppan stjórn á vellinum og sótti án afláts og átti talsvert af góðum færum!
þegar leið á leikinn voru farnir að sjást fínir taktar hjá moppunni fallegar hælspyrnur og var ekki laust við að sambatakturinn sem moppan er þekkt fyrir sæist. En að sjálfsögðu stóð þetta nú ekki lengi yfir og botninn datt aðeins úr spilinu síðustu 10 mínúturnar og náðu Áreitni að pota inn marki á 79 mínútu. 2-1
Moppan hélt út þessar síðustu mínútur og fyrsti sigurinn í höfn!

Leikurinn var ekki alslæmur en þó ekki langt frá því! Það sáust ágætir taktar og þá sérstaklega fyrstu 25 mínúturnar í síðari hálfleik þar sem sást oft fallegt spil. Held að það sé alveg nauðsynlegt a reyna að hittast 1-2 í viku á sparkvelli til að fá smá tilfinningu fyrir boltanum!

Næsta æfing er á þriðjudag kl. 20:00 mæting í safamýrinni!
Látið vita með kommenti hér!
kv. Lolli

15 Comments:

Anonymous Anonymous said...

Maggi mætir

1:24 PM  
Anonymous Anonymous said...

Ég mæti.

2:57 AM  
Anonymous Anonymous said...

Mæti

áNik

4:31 AM  
Anonymous Anonymous said...

mæti ekki, þarf fleiri daga til að jafna mig eftir leik.
kv, Jónsi.

4:45 AM  
Anonymous Anonymous said...

Mæti,,

5:21 AM  
Anonymous Anonymous said...

Ég kem

Pálmi

5:43 AM  
Anonymous Anonymous said...

Hugsauðurinn kemst ekki í kvöld því það er Vín í nótt.

6:08 AM  
Anonymous Anonymous said...

Ég kem

7:20 AM  
Anonymous Anonymous said...

Kemst ekki.

Kv,Jónas

7:55 AM  
Anonymous Anonymous said...

Mæti

Afi Gamla

9:58 AM  
Anonymous Anonymous said...

Leiðrétting: Mæti ekki!
Verð við keppni út í garði. (les: Leiknisvellinum)

Ekki gleyma amlóðabeygjunum

kveðja,

Afi Gamla

10:06 AM  
Anonymous Anonymous said...

6.stk. mættu.

Pálmi, Ásgeir, Þorkell, Alli, Maggi og T....

Spiluðum 3á3 í smátíma og svo rokbolta við BR á 7.manna velli.

2:55 PM  
Anonymous Anonymous said...

smá ábending. Á ekkert að fara að skrá Þorkell í liðið eða á hann að spila fleiri leiki ólöglegur. Er ekki óþarfa vesen að láta kæra okkur?

1:48 PM  
Anonymous Anonymous said...

Hvernig er það.. Taka bolta á morgun þriðjudag??

kv Maggi

2:54 PM  
Anonymous Anonymous said...

Algjört must að hafa bolta í kvöld....

2:35 AM  

Post a Comment

<< Home