Fc Moppa 0-3 TLC
Þetta var stórgóður leikur sem varði í mjög stutta stund.... mættu semsagt 5 leikmenn moppunnar Gústi, palli, pálmi, Siggi og Ingvi og svo undirritaður á hækjum!
Það eru tveir leikir eftir og menn geta ekki séð sóma sinn í því að mæta og klára þetta mót... hverskonar andskotans aumingjaskapur er þetta!
Að sjálfsögðu geri ég mér grein fyrir því að einhverjir áttu ekki kost á að mæta... en andskotinn hafi það að ná ekki 11 manns fyrir þennan leik!
Það er einn leikur eftir 10. Sept. 21:00 - FC Moppa-FC Reynir Framvöllur sýnum nú smá áhuga og mætum í þennan leik!
Endilega kommentið hér undir, þar sem að það er eina mælistikan á það hversu margir mæta!
kv. Lolli
Það eru tveir leikir eftir og menn geta ekki séð sóma sinn í því að mæta og klára þetta mót... hverskonar andskotans aumingjaskapur er þetta!
Að sjálfsögðu geri ég mér grein fyrir því að einhverjir áttu ekki kost á að mæta... en andskotinn hafi það að ná ekki 11 manns fyrir þennan leik!
Það er einn leikur eftir 10. Sept. 21:00 - FC Moppa-FC Reynir Framvöllur sýnum nú smá áhuga og mætum í þennan leik!
Endilega kommentið hér undir, þar sem að það er eina mælistikan á það hversu margir mæta!
kv. Lolli

17 Comments:
Palli mætir
Reynid alla vega ad melda ykkur frá ef þið komist ekki, það hefði getað sparað rúmlega 20 manns það að eyðileggja sunnudagskvöldið ef menn hefðu bara andskotast til að láta vita,þá hefðum við sleppt að mæta og látið TLC og dómarann vita, menn vita það alveg fyrirfram hvort þeir komast eða ekki.
Ég kemst ekki þann 10.sept
Ég mæti pottþétt í FC Reyni leikinn. Ég er búinn að vera ansi tæpur i hnénu síðan fyrir mörgum leikjum síðan og þykir mér það hafa heldur versnað.. ákvað að taka hvíld frá erfiðum leik TLC og vona að það sé fyrirgefið.
Var að vinna á Sunnudaginn, komst ekki.
Mæti næsta Sunnudag. Veit ekki hvernig nárinn verður. En það er makalaust hvað maður getur drukkið bjór, meiddur á nára.
Er bjórnefndin ekki farinn að hlaða í bílinn?
kv, afi gamla
P.S. ég minnist þess að hafa nýlega boðist til að redda 2-3 FLJÓTUM OG GÓÐUM leikmönnum á besta aldri, en það voru dræmar viðtökur...SVO MIKIÐ AF MÖNNUM...ég meina hver vill sitja á bekknum ÞEGAR ÞAÐ ERU BARA FIMM INN Á? já ég man...
:) kveðja, Afi gamla.
Þurfum að taka okkur saman í andlitinu með meldingar . . það er lágmarkskrafa að láta vita, af eða á, það er lágmarkskurteisi.
Ég get ekki tekið þátt í lokaleiknum. Óska ykkur góðs gengis og vona að við endum seasonið á sigri.
Viva la Moppa!
Síðan er það náttúrulega þannig að fullorðnir menn með lágmarksáhuga á að taka þátt í þessu geta sjálfir fylgst með því hvenær leikir eru!
Ég komst ekki í þennan leik. Hefði átt að láta vita.
kv mgj
Ég mæti í næsta leik.
Eitthvað verður að gera til þess að láta þetta ekki endurtaka sig að við náum ekki einu sinni í lið. Fyrir næsta season verðum við að vera búnir að taka Moppuna í naflaskoðun til að komast að hve margir af okkur hafa tíma,getu,heilsu og áhuga fyrir því að spila fótbolta reglulega.
Og taka í framhaldi af því ákvörðun hve mörgum þarf að bæta við hópinn.
Það er grútleiðinlegt að lenda í svona aðstæðum eins og á sunnudagskvöldið.
Við vitum alveg að ef við erum með nógan mannskap í hverjum leik erum við alltaf betra liðið.
Kv.
Pálmi
Mæti. Þessi leikur síðast fór bara alveg framhjá mér. Þvílíkur sauðaháttur og maður á sannarlega skilið skammir fyrir svona rugl.
Ég mæti enda fyrirliði!
Jæja við verðum þá 9 sem mætum
ég mæti
beljakinn
Ég stefni líklega að því að mæta nokkuð örugglega. Kannski.
Peter
Maggi og alli mæta.
kv mgj
Mæti með rolluhóstann
alli kemur ekki
3-2 sigur í lokaleik.
PS. Alli mætti bara samt og spriklaði í 60 plús :)
Post a Comment
<< Home