Wednesday, March 14, 2007

Aðalfundur

Lengsti maður liðsins fór á aðalfund Utandeildarinnar í gærkveldi og lagði við hlustir, þetta er það sem hann heyrði:

Keppnisgjald þetta árið verður hækkað úr 95k í 105-110k - í sjálfu sér eðlileg hækkun miðað við verð á rafknúnum nuddpottum.

Spilað verður á gervigrasvöllum Fram, KR, Fylkis og Hauka, reyndar verð þeir 3 fyrstnefndu teknir upp til viðgerða í sumar þannig að verið er að reyna að redda tímum hjá Leikni og ÍR. Stefnan er að hafa sem flesta leiki á virkum dögum en ljóst er að einhverjir leikir munu koma upp á sunnudögum.

Liðin sem taka þátt verða 30-33, verður því skipt í 3 riðla og líklegt er að einnig verði deildarskipt þannig að 1 riðill verði neðri deild. Skiptingin myndi fara eftir stöðu liða seinustu ár auk þess sem ný lið byrja í neðri deild - þetta þýðir að FC Moppa myndi örugglega spila í efri deild enda talið eitt af sterkari liðum deildarinnar, þegar leikmenn mæta alla vega......

Fleira markvert kom í sjálfu sér ekki fram, nema hvað að staðfestingagjald liða skal greiðast seinna í marsmánuði að upphæð 25.000kr, restin (80.000-85.000kr.) borgast síðan í apríl ef mig misminnir ekki. Því er lag að fara að safna pjéningum til greiðslu þessara gjalda. Ekki veit hversu digrir sjóðir Moppunnar eru þessa dagana og forvitinn er ég um það hvort við fáum einhverja styrki? Einnig þarf að fara fram ítarlegt manntal.

Við þetta tækifæri er rétt að minna á Aðalfund Moppunnar sem haldin verður í Ingvheimum miðvikudaginn 21. mars. Á þann fund er að sjálfsögðu skyldumæting og þeir sem ekki mæta mega búast við því að skipa árshátíðarnefnd næstu 5 árin! Þetta er gott tækifæri til að hrista hópinn saman fyrir sumarið og rifja upp gamlar sögur sem kynda undir óbilandi Moppuáhugann.

"Manstu þegar Loftur lokaði markinu?" "Já hahaha, hver getur gleymt því, hann var nú meiri grallaraspóinn, hahaha, ég sakna hans" 'faðmlag'

Nei kannski fullgay, en alla vega allir að mæta.


PS. Æfingu í kvöld hefur verið frestað, hún hefur verið færð á fimmtudaginn 22. mars kl 19

2 Comments:

Anonymous Anonymous said...

Gíraffinn orðinn kexruglaður í svefngalsanum ef e-ð er að marka klukkuna á þessari síðu. Kannski svo ruglaður að hægt verði að plat'ann í markið í einhverjum leikjum, já eða vörnina svona til tilbreytingar :) Legg til að menn á injury list finni afleysingamann fyrir sig......

12:35 PM  
Blogger Myrkur í Máli said...

Tíminn er afstæður sko, veit ekki hvað er að þessari klukku og ætla ekki að reyna að komast að því. Varðandi galsann þá er nú ljóst að Gústi og co í bakvarðasveitinni þurfa að fara að passa sig, slíkir voru taktarnir hjá Gíraffanum í hægri bakk í seinasta leik. Kannski maður gerist bara varnarmaður í sumar, enda myndi svona langur maður sóma sér vel í hjarta varnarinnar.

Góð hugmynd með afleysingamennina

1:33 PM  

Post a Comment

<< Home