Tuesday, March 27, 2007

Fc Moppa 0 - 5 Vatnaliljurnar

Ekki var þetta nú glæsileg frammistaða hjá Fc moppu í sínum öðrum æfingaleik tímabilsins! Greinilegt að æfingin síðasta fimmtudag hefur setið í mönnum og þá sérstaklega þeim sem ekki mættu á hana.
Þeir sem sáu sér fært að mæta voru Teddi, Ingvi, Valdi, Ásgeir, Rúnar, Palli, Himmi, Gústi, Siggi, Kjarri, Bjössi, Alli, Maggi, Doddi, Tommi, Doddi, maggi og Andreas s.s. 18 manns!

Byrjunarliðið var þannig sett upp að Bjössi byrjaði í marki, Himmi og Siggi í hafsentinum, Gústi og Kjarri sem bakverðir. Á miðjunni voru Rúnar, Maggi og Palli og svo Ásgeir og Teddi á köntunum. Frammi var Doddi einn.

Leikurinn var nú ekki mikið augnayndi og lítið af færum litu dagsljósið. Mikið var um skiptingar og var öllu liðinu skipt út og inn! Fyrsta markið kom í seinni hluta fyrri hálfleik þar sem að sóknarmaður Vatnaliljanna náði frákasti og skoraði með föstu skoti sem Bjössi átti ekki mikinn möguleika á að verja. Hinu meginn komust bræðurnir tveir Ingvi og Valdi í ágæt færi en tókst ekki að skora og Andreas átti ágætann skalla sem var varinn. Að öðru leyti var ekki mikið að gerast fyrir utan örar skiptingar.

Hápunktur hálfleiksins var þegar Andreas tók innkast við vítateigshorn Vatnaliljanna og henti inná miðjann teig við tilheyrandi andkafir frá bekknum!

Seinni hálfleikur verður sennilega fyrst og fremst minnst fyrir 4 agaleg mörk og lélegann leik Fc Moppu.
Af einhverjum völdum þá myndaðist ekkert spil menn voru ekki að bjóða sig og var hálfleikurinn hrein hörmung.

Það góða við þennan leik að sennilega verður þetta ekki lélegra.

Það verður æfing á fimmtudag kl. 19:00 á sparkvellinum hjá AUSTURBÆJARSKÓLA fjölmennum þangað!

kv. Lolli

6 Comments:

Anonymous Anonymous said...

Að sönnu slappur leikur, en við hverju er að búast? Mér finnst mikilvægt að við reynum að lágmarka röfl og gróf brot eins og einkenndi leikinn í gær, öðru fremur. Þó formið sé lakt, þá ættum við að gera tilraun til að spila fótbolta og hafa gaman af þessu sprikli.

Ég mæti á æfingu á fimmtudaginn.

8:13 AM  
Blogger Myrkur í Máli said...

Orð að sönnu varðandi röflið Ásgeir. Ég tek þetta til mín, sennilega barnanna verstur í þessu og mun nú reyna alfarið að fjarlægja þetta úr mínum annars fallega leik.

Það er ekki líðandi að missa menn út af sökum kjaftbrúk og mun ég taka á mínum málum hvað það varðar og vona ég að aðrir geri slíkt hið sama. Maður er ekki að gera neitt nema að bregðast félögunum og gera þeim erfiðara fyrir með svona vitleysisgangi.

Mætum nú allir sem einn á æfingu á fimmtudaginn og æfum skot af 2 metra færi og hvetjum Ásgeir greyið til að vera duglegri að skjóta.

Ég kemst ekki á fimmtudaginn sökum húsfundar.

8:54 AM  
Anonymous Anonymous said...

Hahaha . . . Hef ekki þurft hvatningu til að skjóta á markið, hingað til. En ég er að verða svo örlátur og eigingjarn með auknum árafjöld að heilu leikirnir tapast sökum gjafmildinnar.

Ég held að við getum allir tónað röflið í okkur e-ð niður . . .bara að það yfirgnæfi ekki fótboltann.

áNik

9:03 AM  
Anonymous Anonymous said...

Hahaha . . . Hef ekki þurft hvatningu til að skjóta á markið, hingað til. En ég er að verða svo örlátur og eigingjarn með auknum árafjöld að heilu leikirnir tapast sökum gjafmildinnar.

Ég held að við getum allir tónað röflið í okkur e-ð niður . . .bara að það yfirgnæfi ekki fótboltann.

áNik

9:04 AM  
Anonymous Anonymous said...

...óeigingjarn...vildi ég sagt hafa.

9:05 AM  
Anonymous Anonymous said...

Sælir. Já þurfum fyrst og fremst að reyna að spila fótbolta.

Fyrir utan það að þetta voru allt mjög hraðir og fínir fótboltamenn þá hefðum við átt að gera betur.

Það þarf að vera miklu styttra á milli miðjumanna þegar við erum að verjast. Við erum dreifðir út um allan völl og þurfum að þétta mikið betur. 5-10 metra milli manna og 5-10 metra frá vörn. Þegar við erum svona dreifðir verður svo einfalt að taka okkur á og spila upp völlinn.

Ég á erfitt með að mæta á æfingar sem eru fyrir kl 8 sökum fjöldskylduaðstæðna. Ég geri mitt besta..

kv. Mgj.

5:46 AM  

Post a Comment

<< Home