Friday, April 20, 2007

Fc moppa 2 - 3 vatnsberar/Fc Moppa 3-2 Fc Dragon

Á sunnudaginn 15. apríl áttust Fc moppa og Vatnsberarnir við á Framvellinum í hörkuspennandi leik!
Vatnsberar komust í 1-0 eftir sendingu fyrir markið! Tommi jafnaði í 1-1 fljótlega með því að verða á undan markmanninum í boltan og vippa honum yfir og skora svo í autt markið! Í seinni hálfleik komust svo Vatnsberar einir innfyrir og skoruðu hjá fyrnasterkum markmanni Fc moppu! 2-1
Skömmu seinna náði moppan að jafna aftur og var þar að verki Ketill ,sem kemur ferskur inn eftir góða hvíld í vetur, eftir góða pressu á markmanninn! 2-2
Nánast strax í kjölfarið fengu Vatnsberar góða sókn sem endaði með marki þar sem hin geysi sterki markvörður moppunnar kom engum vörnum við og við það sat!
Leikurinn var þó býsna góður og hefði sennilega jafntefli verið sanngjarnt og átti Fc Moppa fullt af færum sem ekki náðust að klára! Leikur moppunnar er því allur að koma til!

Á sumardaginn fyrsta 19. apríl tók Fc Moppa á móti Fc Dragon á gerfigrasinu í Safamýrinni! Leikurinn hófst stundvíslega kl. 15:00 og vorum 14 moppumenn mættir til leiks. rætt var um að sennilega væri skynsamlegast að fá eldri lið til að spila við okkur næst til að minnka óþörf hlaup á eftir einhverjum stráklingum! Reyndin í þessum leik var nú engu að síður önnur! eins og úrslitin gefa til kynna! Snemma í fyrrihálfleik varð Gústi fyrir þeirri ólukku að þruma einn andstæðinginn niður inní teig og var samstundis dæmd vítaspyrna, sem Dragon skoraði örugglega úr! 0-1
Fljótlega eftir það renndi Gústi sér í bolta og tók ásamt boltanum mótherjann og Sigga niður í einni fallegri tæklingu! Mótherjinn var eitthvað ósáttur og réðist á Sigga greyið, sem var sakleysið uppmálað, og byrjaði að ýta honum og reyndi að skalla hann sem endaði með því að honum var snarlega vísað af velli fyrir óprúðmannlega framkomu í garð Sigga! Sá var útilokaður frá leiknum en nýr maður fékk að koma í hans stað! Staðan í hálfleik var 1-0 fyrir Fc Dragon.
Snemma í seinnihálfleik jafnaði Alli metin með góðu marki, ég stóð í marki og veit því ekki meir með stoðsendingar né nokkuð annað! Um miðjan síðari hálfleik kom mark leiksins! Loftur fékk sendingu í vinstri bakverði, sendi inná miðjuna þar sem boltinn gekk á milli manna með einni snertingu þanngað til að boltinn barst til Magga sem skoraði glæsilega upp í hægrahornið 2-1
Stuttu síðar fengu Fc Dragon horn og uppúr henni skoruðu þeir jöfnunarmark... sem skrifast á slæma dekkningu! 2-2
þegar 10 mínútur voru til leiksloka náði Fc Moppa að komast yfir aftur með marki frá Magga sem að sama skapi ég hreinlega sá ekki nógu vel (lýsing yrði vel þegin)! 3-2
Í lokin náði annar dragon maður sér í reisupassa fyrir að ætla að reyna að berja Ingva en að sama skapi var hann bara útilokaður frá leiknum en annar maður kom í hans stað inná völlinn!

Leikurinn var í heild ágætlega spilaður og er mikill stígandi í liðinu og vonandi er þetta það sem koma skal í sumar!
Pálmi var sennilega maður leiksins, mætti svo þunnur að menn fengu höfuðverk bara á að horfa á hann! Þá áttu Alli og Maggi góðan leik og skoruðu öll mörk moppunnar!

Stefnan er að taka æfingaleik í næstu viku og eru ábendingar um lið og velli vel þegnar.

5 Comments:

Anonymous Anonymous said...

Já helvíti gott..

Tommi átti fína stungu sendingu á
Alla sem skoraði eftir fallegt spil þeirra á milli..

Mark númer þrjú var línupot hjá Alla eftir fínt skot hjá Bjössa. Spurning hvort þarna var markastuldur á ferð eða ekki.


Kv. Maggi

7:58 AM  
Anonymous Anonymous said...

laga þetta við tækifæri!

kv. Lolli

9:03 AM  
Anonymous Anonymous said...

Hvernig væri að taka Iceland united í næsta leik.. þeir eru nett sprækir en þó ekki of erfiðir.

10:04 AM  
Anonymous Anonymous said...

Ekkert lið síðasta sumar með þessu nafni,, FC ICE ???

Hvað varð um "frímerkið" í Kaplakrika, er það ekki passlegur völlur fyrir okkur ?

4:41 AM  
Anonymous Anonymous said...

Ætli það sé ekki liðið.. ice.. þeir hétu iceland united fyrst.

AGJ

5:58 PM  

Post a Comment

<< Home