Monday, May 28, 2007

Riðlar komnir, sumarið að byrja!

Jæja mínir kæru Moppumenn!

Búið er að gefa út riðlaskiptinguna fyrir sumarið og hefur Moppunni verið skipað í C riðil sem lítur svona út:

Boutros Gali
Ernirnir
st styrmir
Fc keppnis
Rc collins
G.TStormur
Fc moppa
henson
Áreitni
Fc ice

Það eru 3 riðlar og er þeim skipt í efri og neðri deild, C flokkast sem neðri deild. Tel ég það persónulega frábært fyrir okkar lið þar sem við munum eiga í stökustu vandræðum með að ná í lið ef eitthvað er að marka seinasta mánuð. Ef mönnum finnst að Moppan eigi ekki að vera í neðri deild þá er bara um að gera að mæta í leiki og rústa þessum riðli, eitthvað er þarna af nýjum liðum og því ekki sjálfgefið að þau séu slök.

Ekki hafa fleiri upplýsingar um mótið verið gefnar út að sinni en við látum vita um leið og þær berast. Eitthvað er verið að vinna í því að redda æfingaleikjum og vil ég bara minna menn á að fylgjast með síðunni! Hún mun verða uppfærð mun reglulegar nú þegar þetta er að byrja. Þá er bara að koma sér í gírinn og massa þetta í sumar, mæta vel og hefja sumarið með bros á vör. Einhvern tímann var stemmarinn sterkasta vopn Moppunnar!

Að lokum vil ég kasta fram hugmynd að fjáröflunarverkefni. Ég var að spá hvort við ættum ekki að halda Pókerkvöld Moppunnar. Menn myndu borga einhvern 3000-5000 kall og helmingurinn færi til þriggja efstu manna og hinn helmingurinn færi til Moppunnar. Spilað yrði No-Limit Texas hold'em og ekkert buy-in! Ef við værum nógu margir yrði spilað á tveimur borðum í byrjun. Þetta yrði að sjálfsögðu ekki fyrr en allir eru búnir að borga ársgjaldið. Síðan yrði stefnan tekin á að hafa svolítið veglega árshátíð, menn hafa talað um veiðiferð (ekki skotveiði!!!) Endilega látið heyra í ykkur og komið með uppástungur um framkvæmd. Við skulum taka höndum saman um að rífa upp stemmninguna og hafa fleiri Moppuviðburði í sumar, ég minnist Moppudagsins í Hljómskálagarðinum fyrir um tveimur árum, meira softball og svona. En til þess verðum við að allir að hjálpast að, það gegnur ekki að Lolli og Jónas og Bjössi eigi bara að græja allt og hinir sitji með hor í nös og þumal í rassi.

Komið í fíling, allir sem einn!

Kveðja, Gíraffinn!

14 Comments:

Anonymous Anonymous said...

Er áhugi á æfingu í blíðunni e-rt kvöldið nú í vikunni ?
Kv.
áNik.

2:16 AM  
Anonymous Anonymous said...

ÉG er til.

Kv,Jónas

2:56 AM  
Anonymous Anonymous said...

Jebb ég líka.. kv MGJ.

Annars líst mér bara vel á þennan riðil. Við eigum að klára þetta ef við erum nógu margir til að mæta.

6:36 AM  
Anonymous Anonymous said...

Ykkur er velkomið að mæta í kvöld kl 20:40 upp í digranes. Þessi tímasetning er föst á milli vikna og hefur alltaf náðst hópur... endilega látið vita ef þið ætlið að mæta með reply á þetta.

kv. mgj.

6:49 AM  
Blogger Himmz said...

Ég væri til í bolta í kveld, hvar er þetta nánar tiltekið? er þetta inni í fífu eða úti á gervigrasi?

7:59 AM  
Blogger Himmz said...

Ah Digranes, hverskonar völlur er þar?

7:59 AM  
Anonymous Anonymous said...

KSÍ sparkvöllur, ca.sama stærð og í Safamýrinni.

8:41 AM  
Blogger Myrkur í Máli said...

ég mæti, vona að fleiri geri það líka.

8:54 AM  
Anonymous Anonymous said...

Ég kem líklega ekki í bolta í kvöld vegna flutninga.

En mæti í pókermótið þegar að því kemur..

Förum svo að rífa upp stemmninguna hérna og mæta á æfingar.

kv.
Pfs

9:09 AM  
Anonymous Anonymous said...

Jebb.. Digranes.. vestan við hjallaskóla. Bara nettur sparkvöllur. Hvet menn til að mæta!

9:16 AM  
Anonymous Anonymous said...

siggi mætir að sjálfsögðu

10:06 AM  
Blogger Myrkur í Máli said...

Þetta var glæsilegt, langbesta mætingin í langan tíma, 6 manns. Hressandi!

3:28 PM  
Anonymous Anonymous said...

Hvað með tíma í moppu-höllinni í sumar?
Kæmi það til greina?
Mætti styrkja með Digraneshópnum og ég gæti hugsanlega dobblað einhverja í viðbót.

Hvað segja menn?

kv,
Der alte

3:32 PM  
Anonymous Anonymous said...

já Digraneshópurinn eru leyfar af fínum innanhúsbolta frá því vetur þar sem við mættum alltaf 8 manns... væri fínt að blanda þessu saman í æfingar.

kv mgj.

4:41 AM  

Post a Comment

<< Home