Monday, June 11, 2007

FC Moppa 3 - 4 Strumpar

Moppumenn mættu temmilega hressir til leiks í blíðskaparveðri á sunnudaginn og öttu kappi við Strumpana í fyrsta leik sínum í B-riðli Utandeildarinnar.

Ekki var mikið liðið af leiknum þegar Strumpar fengu hornspyrnu. Var hún tekin lágt á nærstöng (enda erfitt að taka horn lágt á fjær) og þaðan var boltanum spyrnt áfram inn í teiginn en hitti fyrir helköttað þvottabrettið á Ásgeiri þaðan sem hann sleikti nærstöngina á leið sinni í netið. Þurfum greinilega að fá feitari menn á stangirnar í hornum. Moppumenn voru vægast sagt værukærir í upphafi leiks og vatnaði alla baráttu í menn. Eftir stungusendingu gegnum flata vörn Moppunnar bættu Strumparnir við öðru markinu og þótti Moppumönnum þeir ekki verðskulda að vera 2-0 undir, en eftir á litið var það sennilega fyllilega verðskuldað. Mikið var um langa bolta fram völlinn í fyrri hálfleik og vantaði bæði öryggi á boltann og grimmd í Moppumenn. Bjössi átti ágætt færi auk þess sem Tommi og Doddi voru skeinuhættir (hætt við að fá skeinur?). Ingi var mjög duglegur en hann byrjaði leikinn einn frammi og fékk allt of litla hjálp.

Seinni hálfleik byrjaði Moppan af þokkalegum krafti en tókst þó að fá á sig mark og Strumpar komnir í 3-0. Eftir frábæra sendingu Tedda skoraði maðurinn sem ranglega hefur verið kallaður Feiti Dvergurinn með skalla (það er Dvergurinn sem er rangt) og staðanorðin 3-1. Í kjölfarið skoruðu Strumparnir svo sitt fjórða mark og bjuggust margir á bekknum við því að leiknum væri lokið.Það varð þó ekki raunin og seinustu 20 mínúturnar sóttu Moppumenn án afláts að marki Strumpanna en voru kannski heppnir að fá ekki á sig fimmta markið úr hraðaupphlaupi. Í sóknarlotu Moppunnar skoraði Teddi gott mark eftir hnitmiðaða stungusendingu og kórónaði þannig stórleik sinn. Loftur fékk álíka sendingu inn fyrir vörnina og minnkaði muninn í 3-4 og voru tæpar 10 mínútur til leiksloka.

Á þessum 10 mínútum gerðu Moppumenn allt nema að koma tuðrunni í netið. Markvörður Strumpanna varði þrumuskot Gústa af 1,5 meters færi "Dudek-style" án þess að vita hvar boltinn var. Teddi, sem var ávallt hættulegur átti þrumuskot í slánna úr aukaspyrnu og einn Strumpanna varði skot frá Moppumanni með höndum innan teigs án þess að dómarinn dæmdi víti. Fleiri færi litu dagsins ljós síðustu mínúturnar og voru Strumpar vafalaust fegnir að sleppa með stigin þrjú.

Það skal þó ekki sagt að þeir hafi ekki átt þau skilið því ekki er nóg að spila vel í 20 mínútur. Moppumenn áttu ekki góðan dag og var eitthvert andleysi yfir mönnum. Það má þó taka ýmislegt semi-jákvætt frá þessum leik og er nú eins og einhver sagði: "...bara að byrja næsta leik eins og við kláruðum þennan!" Nú er um að gera að hætta öllu væli um riðla og erfiða andstæðinga og mæta grimmir í næsta leik og berjast frá fyrstu mínútu og þora að spila boltanum en það er einmitt í þessum sambabolta sem styrkleiki Moppunnar liggur!

Samkvæmt nýrri reglugerð Moppunnar um gul spjöld hafa 6000kr safnast í árshátíðarsjóð en miðað við gengi krónunnar í dag og með tilliti til Nasdaq samsvarar það einum kassa af bjór.

Næsti leikur Moppunnar er miðvikudaginn 20. júní kl. 19 og fer hann fram á Tungubökkum. Þar verður kappi att við FC CCP sem hafa seinustu ár verið með hörkulið. Því er ekki úr vegi fyrir Moppumenn að hittast annað kvöld í bolta eins og rætt hafði verið hér fyrir nokkru. Ef menn eru til í létt sprikl annað kvöld eða eitthvað annað kvöld (?) er ekki úr vegi að minnast á það í þar til gerðu tilvitnanakerfi hér fyrir neðan.

Blíðar heilsanir, Giraf.

21 Comments:

Anonymous Anonymous said...

Stefni á að mæta í bolta annað kvöld . . . er það Digranesið kl 20:30 ?

6:54 PM  
Anonymous Anonymous said...

Digranesið Í KVöLD þriðjudag kl.20:40
Samt spurning um stærri völl ef mæting verður góð?(bjartsýnn)

Pant ekki henda litlu krökkunum útaf vellinum.

3:59 AM  
Anonymous Anonymous said...

jEBB.. 2040 digranes.. MGJ og Doddi mæta.

4:14 AM  
Anonymous Anonymous said...

Eigum við ekki að taka frekar æfingu á grasi! Þar sem næsti leikur er jú á grasi. Legg til að hittast á hælistúninu!

5:13 AM  
Blogger Myrkur í Máli said...

Ég er til í hælistúnið kl 21. Hvað segja menn um það?

Giraf.

5:32 AM  
Anonymous Anonymous said...

væri gaman að heyra hverjir hinir seku eru í spjaldasektum!!!
Geri ekki ráð fyrir að mæta á æfingu... en þó er aldrei að vita!


kv. Lolli

6:00 AM  
Anonymous Anonymous said...

Ingvi 2x gul, sama og venjulega.
Palli 1x gult held ég, sagði "amma'ðín" við dómarann.
Ingi 1x gult tækling/munnbrúkur.


Man ekki meira.

Tek undir með Hælistúnið!

6:04 AM  
Anonymous Anonymous said...

Með þessu áframhaldi þá höldum við massa árshátíð og borgum félagsgjöldin fyrir næsta ár!!!!

kv.
Alli

6:33 AM  
Anonymous Anonymous said...

Ég mæti í bolta í kvöld. Til í Hælið eða sparkvöll. Austurbæjarskóli er stór og fínn ef við erum margir.

Pfs

6:57 AM  
Anonymous Anonymous said...

Ég er til í bolta í kvöld. Er komin endalegur staður?

kv,Jónas

7:13 AM  
Anonymous Anonymous said...

Þrír á þrjá á Hælistúninu . . hljómar hálf geðveikislega . . .það er amk stutt í innlögn fyrir þá sem mæta.

Er ekki sparkvöllur meira við hæfi ef mætingin er jafn slök og má búsast við.

8:10 AM  
Anonymous Anonymous said...

Mætum upp í Digranes kl. 20.40 og tökum ákvörðun um völl þá.

Kv.
Doddsson #50

8:13 AM  
Anonymous Anonymous said...

Svo ég vitni í lifandi goðsögn, "ég mæti örugglega".

Kv,
BFI

8:29 AM  
Blogger Myrkur í Máli said...

Ég get ekki gefið svar um mætingu að svo stöddu en ég vil benda á það til að fyrirbyggja allan misskilning að þökk sé stífri atferlisþjálfun með Tourettesjúklingum fékk ég EKKI spjald í þessum leik.

Heilsa blíðlega, Páll hinn limafagri.

11:26 AM  
Anonymous Anonymous said...

Sorry, 50/50 líkur svo ég tók sénsinn.... :o)

12:03 PM  
Blogger Myrkur í Máli said...

Held að líkurnar hafi meira að segja verið meiri en 50%....:o)

12:26 PM  
Anonymous Anonymous said...

Var að vinna og komst ekki í bolta

Drógumst gegn FC CCP í bikarnum . . . .

5:18 PM  
Anonymous Anonymous said...

Mættum 11 moppumenn á æfingu ásamt tveimur aðkomumönnum, skiptum í 3 lið á digranesvelli og spiluðum 5 mínútna leiki.
Besta æfing moppunnar þetta árið og er ég ekki frá því að ég hafi verið besti maður vallarins... þrátt fyrir/vegna líkamlegs atgerfis!!
Endilega að endurtaka leikinn sem fyrst var býsna gaman,
kv. Lolli

2:30 AM  
Anonymous Anonymous said...

FAST á Þriðjudögum kl 20:40.... Mæting upp í digranes.. þar verður tekin ákvörðun ef við viljum færa okkur... (ef við erum nógu margir til þess)

4:26 AM  
Anonymous Anonymous said...

Spjaldið hans Inga skráð á Palla .... "Borga karlinn" *hehehe*

4:00 PM  
Anonymous Anonymous said...

Hverjir eru til í æfingu í kvöld.. 20:40 digranes. Þar sem það er leikur á miðvikudaginn!!

Kv.
Alli

7:17 AM  

Post a Comment

<< Home