Fc Moppa - Strumpar 10. júní kl. 19.30!!!

Sælir félagar, þá er komið að fyrsta deildarleik sumarsins og er hann gegn Strumpunum. Verður hann háður á Fylkisgraslíkinu á sunnudaginn 10. júní kl. 19.30. Það þýðir að það er mæting kl. 19.00. Þó að strumpar séu oftast um 18 sentimetrar að hæð, bláir og geri fátt annað en að strumpa strympnum strumpum upp strumpana og strumpa hratt á gagnstrumpnum þá skulum við ekki vanstrumpa þá!
Í seinasta leik áttum við flottan fyrri hálfleik og skelfilegan seinni hálfleik, þannig að það er alveg augljóst að menn mega ekki hita svona mikið upp.
Einnig vil ég hér með ríða á vaðið og leggja til að við setjum þá reglu sem hefur verið lauslega rædd að menn sem fá gult fyrir kjaftbrúk eða eitthvað sem flokkast sem "óþarfa" skuli gert að greiða 2000 kr. í sekt sem fari rakleiðis í hina gildu sjóði árshátíðarnefndar eða grillnefndar (Freyzarans). Ekki vil ég að mönnum sé refsað fyrir öll gul spjöld þar sem þau koma mörg hver í kjölfar drengilegra sniðtæklinga, en það er kárt mál að nú þegar deildarkeppnin er hafin megum við ekki fá spjöld fyrir kjaftbrúk (ég tek þetta mikið til mín en er fjarri því einn um þetta). Ég nenni ekki að standa í einhverri atkvæðagreiðslu þannig að ég nýti mér rauðhærðnisrétt minn og segi að þessi regla sé hér með tekin í gildi!
Þá er bara að melda sig fyrir leikinn á sunnudaginn og líkt og seinast eiga allir að melda mætingu, hvort sem þeir koma eða ekki.
Blíðar heilsanir, Giraf.

20 Comments:
Tek undir þessa reglu um 2000 kr. sekt á kjafbrúksgultspjald!!!
annars geri ég ekki ráð fyrir að koma nema flutningurinn um helgina gangi því hraðar fyrir sig, en þá mæti ég borgaralega klæddur og sinni skyldum mínum sem fréttaritari af alefli!!!
kv. Lolli aka Van Basten
Ég mæti tvíelfdur eftir slakann leik í gær! Vonandi að Einar mæti "örugglega"!
Kaðall
Ég mæti því miður ekki á sunnudaginn. Ég verð fyrir norðan.
Þið hinir verðið að sjá um markaskorunina.
Pfs
ÉG mæti. List vel á spjaldasektina.
Kv,Jónas
Mæti og verð feitur á velli sem aldrei fyrr. En eins og sýndi sig þá get ég alveg tekið að mér markaskorunina svo lengi sem það verði ekki rangeygðir dómarar að dæma rangstöðu. Jæja ok. sem sagt ekki séns að ég skori.
Der Alte
Ég mæti enda fyrirliði!
Eftir þennan lestur er óvíst að ég komist, þarf líklega í aðgerð eftir magakrampa af hlátri.
Kv, T strumpur
PS. Mæti með læti!
Sleggjan mætir, enda í feikna formi.
Líst vel á sektina fyrir brúkið, ætla að reyna að halda aftur að mér.
Reynum að hafa gaman í sumar, mæli með bjór eftir leikinn á sunn. Hvað segja menn um það?
Sleggjan
Jamm einn öl og allir að jogga heim til að bæta formið!
Kemst ekki vegna vaktavinnu
taka strympu strákar!
kv,
Valdi
Mæti og klikka ekki á dauðafærunum frekar en fyrri daginn.
áNik
Mæti og klára allavega eitt.
kv.
Alli
Maggi mætir.. osokommaso!!
mæti ekki
pétur
Mæti.
Kv.
Doddsson #50
Auðvitað mæti ég.
Giraf.
beljakinn mætir og er að sjálfsögðu hlynntur spjaldareglunni
Kemst ekki.
Kv,Jónas
GO SMURFS
Úrslit: 3-4 tap.
Byrjuðum leikinn þegar hálftími var búinn og því fór sem fór.
Áttum síðustu 20.mín. og fengum aragrúa færa til að jafna þetta drasl!
Post a Comment
<< Home