Monday, September 24, 2007

Árshátíð Moppunnar 2007 - ATH BREYTT STAÐSETNING!

Sælir félagar, þá eru menn búnir að bíða í heilt ár og er stóra stundin að renna upp: Árshátíð Moppunnar 2007! Menn hafa unnið baki brotnu við að skipuleggja gjörninginn og eru komin drög að árshátíð og eru þau á þennan veg:

Laugardagurinn 29. september
kl.
14.00 Hist á Ölveri og horft á boltann, af nógu að taka.
16.00 Farið í Softball í grennd við Laugar
18.00 Slakað í Baðstofunni í Laugum
19.00 Matur í Laugum
20.30 Farið í partý hjá Jónasi í Grafarholti
00.30 Í vinnslu - erum að vinna í að við förum allir saman á einhvern stað

Að sjálfsögðu verður verðlaunakosning og útbítingur og ekki þarf að minna menn á viðurlög þess að mæta edrú á árshátíð. Öllum tilbrigðum við Moppur er fagnað.
ATH. að klæða sig eftir veðri fyrir softball, það skiptir engu þó menn blotni þar, það verður farið beint í baðstofuna eftir það.

Menn munu þurfa að borga í Laugum, það verða 5400 krónur fyrir baðstofuna og dýrindis mat en Moppan mun síðan skaffa vín í Softball, með matnum og í partýið í ótæpilegu magni og á enginn að þjást af ofþornun á laugardaginn.

Kveðja, nefndin

16 Comments:

Anonymous Anonymous said...

Hipp hipp húrra hipp hipp húrra hipp hipp barbabrella!
Nú verður tekið á því...!!!

kv. lolli

5:36 AM  
Blogger Himmz said...

Snilld,

Hvar fær maður moppuaukandi smyrsl, þyrfti helst að auka bæði vöxt, þéttingu og lita í leiðinni.

Skál

Hafcenterinn

1:45 AM  
Blogger Myrkur í Máli said...

Allar moppur eru góðar moppur.

Það er ekki laust við að það sé kominn nettur fiðringur í mann, eftirvænting jafnvel!

Skál!

2:51 AM  
Anonymous Anonymous said...

Ég mæti enda fyrirliði, þó maður sé taðskegglingur að upplagi.

4:19 AM  
Anonymous Anonymous said...

Góða skemmtun á laugardaginn.

Er enginn áhugi á að vera með æfingar í vetur . . .Fífunni eða í e-rju íþróttahúsinu?

ásgeirNik

5:00 AM  
Anonymous Anonymous said...

það verður massa stuð á laugardaginn. Hlakka mikið til.

Mér finnst hugmyndin um að taka bolta í vetur mjög góð. Eru ekki fleiri til í það?

kv.
siggi grétar

12:23 PM  
Anonymous Anonymous said...

held að það sé stórsniðug hugmynd, veit að Gústi styður hana heilshugar og er viss um að það eru fleirri sem hafa áhuga á bolta einu sinni í viku!

kv. Lolli

1:46 AM  
Blogger Himmz said...

BEMRÚDASKÁL!

nei bara að hita mig upp fyrir Laugardaginn.


SKÁL

Hafcenterinn

5:35 AM  
Blogger Myrkur í Máli said...

Skál í boðinu! Er búinn að drekka 2 kippur á dag alla vikuna til að byggja upp drykkjuþol, ég vil líka mælast til þess að allir mæti í hvítum hlýrabolum svo að Bjössi geti kennt okkur sveitadansinn frá því um árið.

7:27 AM  
Blogger Himmz said...

Æfinginn skapar meistarann, segja þeir. Ég hef einnig verið að æfa mig en i stað bjórs, drekk ég 1 viskí flösku á dag. Heyrði að það gæti aukið moppuvöxt til muna. Get nú ekki staðfest það, en eykur hárvöxt á öðrum stöðum. Spuddning hvort maður klippi ekki bara bút frá anus rectalis svæðinu og lími á moppusvæðið!!!!!!!!!

SKÁL BLÓMKÁL!

Hafcenterinn

9:04 AM  
Anonymous Anonymous said...

Alveg rétt hlýrinn er líka skylduitem fyrir laugardaginn! á einn í úberstærð í hvítu og einn grænan þröngan... og drykkjuþol þarf ég ekki að æfa... það er eina þolið sem ég get stært mig af!

kv. lolli

10:05 AM  
Blogger Myrkur í Máli said...

Hressandi!

Enginn skandall í bænum?

3:05 AM  
Anonymous Anonymous said...

já afar hressandi.

ég man nú ekki eftir neinum skandall, enda man ég nú ekki mikið eftir að við fórum frá laugum !!!. Hef t.d. ekki hugmynd um hvar íþróttataskan mín endaði?

Skál

Blackhawk down, blackwater og Hafcenterinn í góðum gír

8:18 AM  
Anonymous Anonymous said...

jamms... vaknaði á sunnudagsmorgun með óbragð í munni og í höfðinu á mér dönsuðu einhverjir púkar stríðsdans, sem félagar mínir íbúfen og panódíl sáu um að kveða niður! Var alveg fínasta skemmtun en þó ákvað ég (þ.e. vona ég) að fara heim snemma... og var kominn í bælið uppúr 02:00, Held að ég hafi hirt flest verðlaun sem voru í boði og er stoltastur af því að vera kosinn Bezti markvörðurinn, en dró svolítið úr gleðinni þegar ég fékk versti bólfélaginn í blálokin, hirti að sjálfsögðu moppufélagann og VanBasten (held að ég eigi að fá eignabikar næst) en rétt missti af moppa ársins!
En gleðin var góð þó að ekki hafi verið farið í softball og var Laugarferðin bara mjög ljúf og kom maturinn mér á óvart!

kv. Lolli

10:05 AM  
Anonymous Anonymous said...

Ánægður með góðan klíkufund í Laugum... ekkert nema myrkraverk... næst verður sex manna softball haldinn hjá Geira á Gold...

Stemningin einstök og viti menn allir að tala um æfingar í vetur! Þvílíkar Boot Camp hetjur.

Mæli með mánudegi, þriðju eða miðviku...

Og koma svo...

kv,
der alteste

12:36 PM  
Blogger Myrkur í Máli said...

Halló halló herra Basten, þú varst co-recipient af hinum virtu Moppufélagaverðlaunum. Óþarfi að hrifsa eina plaggið af manni.

8:26 AM  

Post a Comment

<< Home