Árshátíð Moppunnar og síðasti leikur.
Sælir drengir, þá er komið að síðasta leik tímabilsins og ......reyna að vinna......berjast......hafa gaman.......osfv. Leikurinn er gegn starfsmönnum skemmtistaðarins Nings á sunnudaginn 16. september kl. 18 á Framvelli. Allir láta vita hvort þeir komist eður ei.
Síðan fórum við nokkrir saman til spákonu og sá hún í kristalskúlunni sinni að árshátíð Moppunnar ætti að vera laugardaginn 29. september og að hún yrði öll hin glæsilegasta. Einnig sá hún að þrír til fimm heiðursmenn myndu stíga fram og sjá um skipulagningu hátíðarinnar. Best væri að þeir sem hafi áhuga gefi sig fram hið snarasta svo hægt sé að panta stripparana, Moppuhöllina og flugeldana sem fyrst. Varðandi stemmningu þá held ég að þetta sé það sem við ættum að stefna á:

Sem sagt, hér í tilkynningakerfinu eiga menn að láta vita hvort þeir komist í leikinn og á árshátíð 29. sept. Einnig skulu eldhugar bjóða sig fram í árshátíðarnefnd (tilvalið fyrir meiðslamenn?)

20 Comments:
Ég mæti í bæði leikinn og á árshátíðina enda fyrirliði. Ég var í árshátíðarnefnd í fyrra og því þarf ég ekki að gera rass í ár!
ég mæti allavega á árshátíð og geri ráð fyrir því að pálmi og félagar skipuleggji bráðskemmtilega árshátíð!
kv. Lolli
Ég mæti klárlega á árshátíð og geri ráð fyrir að mæta í leikinn.
Ég mæti á árshátíð, en ekki fyrr en um 20:00 um kvöldið. Og reyni að mæta í leikinn líka, 2. leikinn í röð.
Kemst ekki í lokaleikinn og er tæpur með árshátíðina.
Mit glückwunschen,
Á.Nicklaus
Kemst ekki í leikinn og sennilega ekki á árshátíð á þessum degi.
Mæti í leikinn og á árshátíð
Þeir sem skora í næsta leik fara sjálfkrafa í árshátíðarnefnd... þannig að ég og dvergurinn þurfum ekki að hafa áhyggjur...
kv,
der alteste
Ég kemst ekki í leikinn en ég mæti á árshátíðina.
kv.
Pálmi
Ég mæti í leikinn og líklega á árshátið.
Þeir sem mæta ekki í leikinn fara að sjálfsögðu beint í árshátíðarnefnd :o)
Skál
Hafcenterinn
Ég mæti í leikinn. En verð að dansa með zúlu dansmeyjum í Afríku 29. sept. Mun því senda ykkur bestu árnaðaróskir á meðan ég spila Afríska rúllettu: Hún er svipuð og rússnesk rúlletta nema í staðinn fyrir byssu ertu með 6 undurfagra yngismeyjar í 6 herbergjum. Þú leggur undir með því að velja eitt herbergi labbar inn og konan mun um leið hefjast handa við að bóna með munninum þína fínustu líkamshlutana.
Rúllettan fellst svo í því að ein kvennanna er mannæta!!!!!
Der Alte
Get ekki verið með í leiknum en mæti að öllum líkindum á árshátiðina.
Kv,Jónas
Maggi mætir í leikin á sunnudag!
kv. lolli
Kemst ekki í leikinn!
Kv. Höddi
kemst líklega ekki, enda sóknarbakvörður
Kemst ekki í leikinn. Ekki alveg öruggur með mætingu á árshátíðina.
Kv.
Doddsson #50
Ég mæti og Einar mætir í fyrri hálfleik.
9-1... þar sem að samtals voru 19 leikmenn á vellinum að mér skilst... 11 Ningsarar og 8 moppumenn, heldur dapur endir á döpru sumri... nú er bara að huga að því sem allir eru með hugann við..... Árshátíð stórveldisins!
einhverjar hugmyndir!!!
kv. Lolli
Gaman væri að heyra hvað Pálmi og félagar í árshátíðarnefnd eru búnir að ræða.
Þetta var einstaklega skemmtilegur leikur, við vorum 7,5 leikmenn en Einar bætti þetta að hluta upp með því að spila öðru hvoru varnarmann, miðjumann og sérstaklega sóknarmann. Hann hljóp fram í öllum hornum sem við fengum, allan leikinn. Bjössi hefði getað skorað svona 4 kveekendi en það var Himmi sem setti 1 eftir aukaspyrnu Bjössa. Hressandi leikur en gaman væri að sjá hvernig Ingvi lítur út í dag, eftir samstuðið, örugglega myndarlegt glóðurauga.
Takk fyrir leikinn og að hafa fyrir því að mæta og hafa gaman af þessu. Þið skoruðuð líka einkar fallegt skallamark.
Skemmtið ykkur vel á árshátíðinni.
Post a Comment
<< Home