ÆFING á fimmtudag.
Æfing er sett á fimmtudaginn 10. apríl, kl. 21 á sparkvellinum í Safamýri.
Vinsamlegast segið AF eða Á með komu ykkar í "COMMENTS" hér að neðan.
Konungur veðurfréttanördanna (Siggi Stormur) sagði að pottþétt yrði einhvernvegin veður úti svo upp með sokkana og svitaböndin !!!
Vinsamlegast segið AF eða Á með komu ykkar í "COMMENTS" hér að neðan.
Konungur veðurfréttanördanna (Siggi Stormur) sagði að pottþétt yrði einhvernvegin veður úti svo upp með sokkana og svitaböndin !!!

15 Comments:
Eins og þið sjáið í fyrirsögninni legg ég áherslu á að þetta er ÆFING, ekki vorslátrun !!!
Ég mæti ef heilsan leyfir.
AF.
Er Moppan að breytast í e-rn dúkkulísuklúbb þar sem postulínsdúkkur leika sér í fallegum leik með bolta?
Væri gott að fá updeit á hvernig innheimta félagsgjalda gengur.
Þarf ekkert að æfa "tuddaskapinn", geymun þann kvóta fyrir mótið.....
T
Mæti að öllum líkindum og legg mín lóð á vogarskálar tuddanna.... er seinn og sé illa... þannig að í hvert skipti sem ég brýt af mér hef ég afsökun:)
kv. Lolli
Ps. ekki mæta í rauðum treyjum, þá tryllist tuddinn alveg, enda mikið ólíkindatól svona sjónlaus og skapstirður.
Ég mæti,
Palli
Ég kem örugglega
Fisterinn
Ég mæti klárlega.
Treysti á tuddaskap og læti.
kv.
Pálmi
Ég mæti með læti.
Kv.
Doddi
Verð því miður mjög seinn (kemst ekki) annað kvöld þar sem ég var víst löngu búinn að lofa mér út að borða með gömlum skólafélögum:( þannig að ég mæti þá bara gallvaskur næst...!
kv. Lolli
Ég mæti. Og fyrst það er rætt um tuddaskap, allt í lagi að hafa smá hörku, en missum ekki menn í meiðsli. Og svo á að sjálfsögðu að skilja allt sem gerist inn á vellinum eftir á vellinum.
PéturÓ
Ég mæti að sjálfsögðu, en tek enga ábyrgð á gjörðum fóta minna enda er svo langt milli heilans og lappanna að það er margt sem verður "lost in translation" í samskiptum þeirra á milli.
Length is beauty! PG
Teddi mætir
Siggi G mætir
hvernig var nú æfingin?
og hversu margir mættu... held að það fari að verða komninn tími á æfingaleik!
kv. Lolli
Mættu 8 stk. og spiluðu víðsvegar um bæinn.
Fisterinn klikkaði örugglega á mætingu en Tom46 var auðvitað mættur til að leysa stjórnarmanninn af.
Post a Comment
<< Home