Æfing fimmtudag kl.11
Spurning hvort menn hafi tíma í tuðruspark í vikunni ?
Endilega kannið schedule-ið á þessum tímum og comment-ið hvort þið komist.
Fimmtudaginn kl.11 (sumard. fyrsti = rigning )
Melda sig aftur vegna nýrrar tímasetningar !
Endilega kannið schedule-ið á þessum tímum og comment-ið hvort þið komist.
Fimmtudaginn kl.11 (sumard. fyrsti = rigning )
Melda sig aftur vegna nýrrar tímasetningar !

26 Comments:
Ég er að fara norður í land á miðvikudag og kemst því miður ekki.
Skora á ykkur að taka góða æfingu, ekki veitir af, þar sem rétt um mánuður er í byrjun móts.
ásgeirNikulás
sé ekki fram á að ná að mæta þessa vikuna... en stefni á að mæta næstu viku!
kv. Lolli
Orðin svolítið þreytt tugga hjá þér Lolli, stefni á næstu viku...blablabla
Ég svara þegar nær dregur.
C.Jensen
Ég er til í æfingu, nokkuð sama með tímann.
pg
ps. Ef fram fer sem horfir þá verður þetta eins og í fyrra, sæmilega mæting en liði grútlélegt því menn æfa ekkert saman. Er enginn stemmari fyrir því að skrapa í eina æfingu í viku?
Báðir tímar koma til greina. Líklega 3-0 í hálfleik fyrir Börsunga þ.a. að maður hefur góðan tíma til að ná æfingu.
Endilega ná einni fastri æfingu á viku. Leigja völl!
Valdi
Ég er maður í bolta.. bara nefna hvar og hvenar.
kv
Alli
Ég held okkur veitti ekki af því að leigja völl einhverstaðar. Risann eða eithvað.. þessir sparkvellir eru óhugnalega mikið minni en full blast völlur.
kv
Alli
Ég er til í bolta á miðvikudag og fimmtudag.
Mæti pottþétt!
Pálmi
Það er séns að ég komist seinni partinn á fimmtudaginn.. en ég kemst ekki annað kvöld!
kv. Lolli
Mæti, sama hvor tíminn verður fyrir valinu.
Notum $$$ í að leigja völl fyrir æfingaleiki, það er sjaldnast concrete mæting svo að henda peningum í völl fyrir æfingu finnst mér því miður ekki möguleiki.
Teddi has given his opinion here above.
Kemst ekki. Er slæmur í hásin.
Kv,Jónas
Ég ætla að leggja til að við stefnum á fimmtudaginn!
ég mæti pottþétt
Spurning að hafa þetta mun fyrr á fimmtudaginn, t.d kl. 11 eða 12, eða þá um kvöldið, kl. 20 eða 20.30.
Kv.
Doddi
Já það er kannski meiri möguleiki að menn komist þá.
T
Ég get mætt annaðhvort í kvöld eða þá snemma á morgun.
kv,
BFI
kl. 11 á morgun, snarpur hádegisbolti?
pg
Verð í brúðkaupsakstri í hádeginu.
Hafa þetta í Safamýrinni ?
jú jú þá kíkjum við bara á gervigrasið ef það er góð mæting, senda póst?
Kemst því miður ekki í þessari viku.
Fister
Ég get mætt á morgun kl. 11 og mér eldri og vitrari bróðir líka. snilldar hugmynd.
Der Alte und der bruter.
Kl. 11 er snilld. Mæti þá.
Kv. Doddi
ég mæti kl. 11 á morgun,
kv,
Péturó
Kemst engan veginn kl. 11:(
skemmtið ykkur
kv. Lolli
ps. munið svo að setja nöfnin við commentin þar sem að anonymous þekkjum við ekki!
Lolli skrifaði:
ps. munið svo að setja nöfnin við commentin þar sem að anonymous þekkjum við ekki!
*haha* einn forvitinn sem elskar slúður....
Kv,
Anonymous.
Kemst ekki í boltann...
A.Nonni mús
Tom
Post a Comment
<< Home