Moppudagur
Hvernig líst mönnum á að taka smá öldrykkju og láta klúbbinn standa undir einkennisorðum sínum: "You'll never drink alone".
Hugmyndin var að laugardaginn 26. júlí myndum við taka softball á einhverju vel völdu túni, drekka bjór og hlæja dátt. Jafnvel væri hægt að hafa þetta í Hljómskálagarðinum líkt og um árið og grilla að leik loknum.
Síðan tek ég að mér að bjóða heim um kvöldið. Hvernig líst mönnum á þetta?
Palli.
Hugmyndin var að laugardaginn 26. júlí myndum við taka softball á einhverju vel völdu túni, drekka bjór og hlæja dátt. Jafnvel væri hægt að hafa þetta í Hljómskálagarðinum líkt og um árið og grilla að leik loknum.
Síðan tek ég að mér að bjóða heim um kvöldið. Hvernig líst mönnum á þetta?
Palli.

15 Comments:
Mér líst ægilega vel á þetta.
Ég geri ekki ráð fyrir öðru en að mæta.
Gott framtak Páll
kv.
Pálmi
Hugmyndin fín en kemst því miður ekki þar sem ég verð í heyskap í þingeyskri sveit.
Ef Hljómskálagarðurinn er ekki laus, þá skal ég lána ykkur bakgarðinn minn í boltaleikinn, Miklatúnið.
Skemmtið ykkur!
Ásgeir Nikulás
Þetta lýst mér stórvel á. Sniðugur þessi langi maður, greinilega gott súrefni þarna í háloftunum. Ég stefni á að mæta, enda fyrirliði.
Maggi mætir á annarri... :)
Líst vel á, stefni á að skokka í Hljómskálagarðinn og til baka,
kv, alltaf-í-formi-Valdi
Mjög góð hugmynd. Kemst líklega ekki þar sem ég verði í frí fyrir norðan.
Kv,Jónas
ég veit ekki með hvaða softball dót þið ætlið að spila ég verð í veiði:o)
Held reyndar að loftur sé með allar græjurnar.
Der Alte
Góð hugmynd hr.Guðbrandsson.
Reyni að mæta.
T.
Geggjuð hugmynd Páll. Þetta yrði þá fyrsti og eini leikurinn sem ég myndi spila í sumar. ég tek allavega þátt í bjórnum og grillinu.
kv. Freyz
hljómar vel... á þó ekki von á að komast... en það er þó aldrei að vita!
kv. Lolli
Flott concept.. ég er maður í mætingu.
kv
Alli
Snilld! Ég geri fastlega ráð fyrir að mæta. Frábært framtak.
kv.
Siggi Grétar
Frábær hugmynd hjá frábærum manni. Ég verð því miður erlendis þennan dag.
Kv.
Doddi
Góð hugmynd, veit ekki með daginn, það er búið að bjóða mér í eitthvað annað dæmi. Sé til hvort ég geti mætt á bæði event.
Kv,
C.Jensen
Ég er alvarlega að pæla í því að mæta.
Kv. alvarlegi gaurinn.
Post a Comment
<< Home