Tuesday, March 08, 2005

Og hefst þá vertíðin


Já góðann daginn góðir Moppubræður nær og fjær. Nú er mál til komið að fara drattast á lappir og hefja Fc Moppu upp til fyrri vegs og virðingar. Hér hef ég sett saman litla bloggsíðu sem við getum notað sem málgagn þar til leyst verður úr öðrum heimasíðuvandkvæðum.

Við þurfum að gera meira af því sem sést á myndinni fyrir ofan og minna af því að sitja heima með þumalputtan uppí rassgatinu á okkur eða öðrum fjölskyldumeðlimum (no pun intended). Fyrsta mál á dagskrá er æfing á morgun, miðvikudaginn 9. mars kl. 22.00 á Framvellinum. Síðan er búið að setja á æfingaleik við Dufþak 7. apríl á sama tíma og stað en hann verður auglýstur betur síðar.

Notum commentin, drekkum vín og verum hressir.
Yfir og út!

3 Comments:

Anonymous Anonymous said...

Glæsilegt framtak þetta!

Hlakka til að mæta í bolta á morgun!

Kveðja, Kaðall!

3:01 PM  
Anonymous Anonymous said...

Loksins fer moppan af stað og sé ég fram á langt og verðlaunum hlaðið sumar!
kv. Van Basten

12:18 AM  
Anonymous Anonymous said...

Þetta lýst mér á. Moppan að fara taka á því, á ritvellinum, skeiðvellinum og jafnvel knattspyrnuvellinum.
Sjáumst í kveld.

Kv,
Dvergurinn

2:46 AM  

Post a Comment

<< Home