Tuesday, June 21, 2005

Fc Moppa 3-1 Vatnaliljurnar

Moppan er komin áfram í bikarkeppninni og er stefnan klárlega að taka þetta tvöfalt í ár! Leikurinn var býsna góður af hálfu moppunnar og verður að segjast að moppan hefur sjaldan spilað eins vel! Mætingin var góð eins og í síðasta leik og voru við allavega nógu margir! Þeir sem mættu voru: Gunni freyz, Gunni sig, Siggi H. Siggi Ó. Pétur óli, Pétur Björn, Tommi, Valdi, Gummi, Himmi, Ingvi, Sverrir, Benni, Jón Emil, Kári, Kjarri, Palli og Pálmi, sem sagt 18 manns fyrir utan undirritaðan og Svölustu sjöuna. Var því af nógu af taka. Byrjunarliðið var þannig skipað, Gunni Freyz í marki, Benni og Himmi í miðverðinum, Siggi og Pálmi í bakverðinum, Sverrir og Ingvi á miðri miðjunni, og Jón Emil og Palli á köntunum og Pétur Björn og Kári frammi.

Leikurinn hófst með mikilli baráttu þar sem tæklingar flugu í axlarhæð hjá báðum liðum og var mjög gaman að sjá þetta, ekki ólíkt einhverri austurlenskri bardagalist á köflum.... en samt ekki gróft!!! Moppan náði smá saman yfirhöndinni og lét stráklingana í Vatnaliljunum ekki í friði og hafði yfirvigtinn greinilega talsvert að segja þar. Spilið var mjög gott hjá Moppunni og rann boltinn ljúflega á milli manna, kantana á milli. Eftir rúmlega 20 mínútna leik fékk Pétur Björn boltann vinstramegin við markteig, snéri á varnarmann og tók boltan utanfótar fyrir markið og smellihitti ennið á Kára sem stýrði boltanum glæsilega í markið. 1-0 fyrir Fc Moppu og stórglæsilegt mark.

Við þetta efldist Moppan og aðeins stuttu seinna var brotið á Pétri Birni vinstra megin við markteig. Beljakinn tók spyrnuna og setti hann inní teig þar sem að Kári nikkaði honum aftur fyrir sig með skalla og Pálmi tók svo á móti boltanum og á einhvern ótrúlegann hátt tókst honum að vippa honum yfir markmanninn og skora! 2-0 fyrir Fc Moppu.

Ekki minnkaði nú krafturinn í Moppunni við þetta og hélt áfram að sækja. Allir sóknartilburðir Vatnaliljanna voru brotnir á bak aftur af feikisterkri vörn Moppunnar sem Benni stjórnaði eins og herforingi, og ef einhverjir boltar skoppuðu í gegnum vörnina þá var Gunni öryggið uppmálað í markinu og hirti allt sem á markið kom. Þegar aðeins nokkrar mínútur voru eftir þá átti Benni sendingu á Ingva á miðjunni sem átti aftur glæsilega sendingu á Valda sem stakk sér í gegnum vörnina og lék á markmanninn og lagði boltann svo í autt markið. 3-0 fyrir Fc Moppu. Staðan orðin 3-0 í fyrri hálfleik, það fór reyndar aðeins um menn á hliðarlínunni þegar flautað var til hálfleiks, enda menn ennþá með hroll eftir fyrsta leik tímabilsins sem tapaðist niður í 3-3 jafntefli.

Staðan í hálfleik 3-0.
Mikið var rætt um það í hálfleik að falla ekki í þá gryfju að falla aftur á völlinn eins og þessum blessaða fyrsta leik tímabilsins. Og var það ekki að sjá á fyrstu mínútum leiksins, Fc Moppa hélt frumkvæðinu framan af, en smá saman tókst Vatnaliljunum að komast inní leikinn, þó án þess að skapa sér nein dauðafæri. Það var einu sinni í seinni hálfleik sem Gunni þurfti að taka á honum stóra sínum í markinu og varði í horn. Annars var þetta venjulega klafs í teignum á stundum en það fylgir því að keppa í utandeildinni, en annars var hættan aldrei mikil. Moppan átti aftur á móti ágætis færi í seinni hálfleik, þar á meðal komst Valdi einn í gegn en markmaður Vatnaliljanna varði ágætt skot hans í horn. Nokkur hálffæri litu dagsins ljós í næstu sóknum hjá báðum liðum en ekkert sem var hættulegt.

Smá saman bökkuðu Moppumenn aftar á völlinn sem gerði Vatnaliljunum kleift að færa sig ofar og sækja meira og í einni slíkri sókn komust þeir innfyrir vörnina og í hamagangnum náði Pálmi boltanum en sóknarmaðurinn henti sér í jörðina með miklum tilþrifum og dómarinn féll fyrir dívunni og dæmdi víti sem Vatnaliljurnar skoruðu örugglega úr. 3-1 fyrir Fc Moppu.

Eftir þetta gerðist lítið í leiknum og varðist Moppan af miklum krafti og leiktíminn rann út. Öruggur sigur Fc Moppu í höfn og erum við því komnir í 3 umferð bikarsins.

Leikurinn var býsna harður og sáust nokkrar mjög harðar tæklingar sem ekki var dæmt á, þessir ódómar féllu þó að því virtist nokkuð jafnt báðum megin og því ekki mikið hægt að kvarta yfir dómgæslunni.
Leikur Moppunnar var mjög góður og lögðu allir sig fram í leiknum og var þetta greinilega "sigur liðsheildarinnar" og er mjög gaman að vera búnir að ná tveimur sigrum í röð. Mætingin var góð eins og í síðasta leik og held ég að það sé höfuðatriði í þessum tveimur sigrum, þar sem hægt var að stilla upp mjög sterku byrjunarliði og hafa góða menn á bekknum til að koma inná.

Það er býsna langt í næsta leik (nema ef vera skyldi að bikarleikur detti inn í millitíðinni) þannig að nú verða menn bara að mæta á æfingu næstu fimmtudaga kl. 21:00. Ef slæm mæting verður þá droppa ég þessum tíma þar sem að þetta er of dýrt ef menn nenna ekki að mæta.

Ef það eru einhverjar staðreyndarvillur hér endilega kommentið á það og ég breyti því.

Kv. Van Basten

2 Comments:

Anonymous Anonymous said...

Þetta var einn skemmtilegasti leikur sem ég hef spilað með Moppunni og hafa þeir verið nokkrir, þar sem ég hef leikið með liðinu síðan ég kom heim frá Nam. Menn leiksins að mínu mati, Benni, Ingvi og Gunni. Benni stjórnaði þessu svo snilldarlega, talaði allan leikinn, ég vaknaði meira segja upp um nóttina eftir leik við að mér fannst Benni vera að kalla á mig "Jón! Jón! þú verður að koma meira inn á miðjuna". Ingvi vann held ég allar tæklingar og skallabolta sem hann fór í og Gunni var með eindæmum öruggur í markinu. Glæsilegur leikur og vonandi verður þetta stemmningin sem eftir lifir sumars.
kv, Fisterinn.

7:49 AM  
Anonymous Anonymous said...

Þetta er glæsilegt. Kominn tími á dollu hjá þessu fornfræga liði.

Kv. af golfvellinum,
T

7:29 PM  

Post a Comment

<< Home