Monday, August 14, 2006

Fc Fame 3-1 Fc Moppa

Enn einu sinni mætum við 12 í leik, eftirfarandi hópur mætti til leiks! Lolli, Ingvi, Jónas, Gústi, Pálmi, Siggi H. Einar Örugglega, Ketill, Ingi, Maggi, Alli og Oddur. Himmi kom og fylgdist með af hliðarlínu meiddur!

Leikurinn hófst með Odd í marki, siggi, pálmi, Jónas og Gústi í vörn. Alli, Maggi, Ingvi,Ingi og Ketill á miðjunni og Einar einn frammi!

Eftir 8 mínútur skoruðu Fc fame og staðan orðin 1-0 fyrir Fc Fame.

Mótherjinn var talsvert sterkari allan fyrrihálfleik, átti nokkur færi sem þeir klúðruðu, Fc Moppa hélt þó fyrri hálfleik út án þess að fá á sig annað mark.

Í seinni hálfleik byrjuðu Moppumenn af krafti og fengu nokkrar ágætar sóknir til að byrja með, en var svo refsað á 46 mínútu þegar Fc Fame skoraði 2-0.

Á 50 mínútu var svo einn úr Fc Fame rekinn útaf fyrir heimsku! Eftir það sótti Moppan í sig veðrið og náði að minnka muninn í 2-1 á 60 mínútu en hafði svo ekki kraft í meira og Fc Fame bætti við 3 markinu og rothögginu 15 mínútum fyrir leikslok!

Munurinn á liðunum var aðalega formið, Fc Moppa með einn mann í mjög góðu formi en aðrir í mis slæmu formi, hefði sennilega verið jafnara hefði moppan haft skiptimenn!

En nú er bara að vinna þessa helvítis bikarkeppni og klára 10 tímabil Moppunnar með reisn!

kv. Lolli

0 Comments:

Post a Comment

<< Home