Thursday, July 24, 2008

Moppudagurinn á laugardaginn!

Sælir piltar, þá er komið að stundinni sem allir hafa beðið með óþreyju. Moppudagurinn verður haldinn hátíðlegur á laugardaginn næstkomandi, 26. júlí. Sú hugmynd sem komið hefur fram er að menn hittist í softball í einhverjum garði á höfuðborgarsvæðinu (tillögur vel þegnar) kl. 14.00 á laugardaginn og spili mjúkbolta sem er íþrótt hönnuð fyrir Moppuna (mikið um stutta spretti). Þar verðum við með einhvern bjór og almenna hamingju. Síðan um kvöldið myndu menn kíkja í partý til Palla í Bólstaðarhlíðinni og drekka sig sauðfulla og kíkja í bæinn. Þetta eru engin stjörnuvísindi.

En það er mikilvægt að menn meldi sig í mjúkboltann hér fyrir neðan. Að mínu mati er þetta tilvalin tímasetning til að berja enn meiri samhug í liðið fyrir seinni umferðina og viðhalda Moppupartýshefðinni sem lítið hefur farið fyrir upp á síðkastið.

Kv, Palli

13 Comments:

Anonymous Anonymous said...

Ég mæti.
Mæli með Miklatúni.


Kv.
Pálmi

8:05 AM  
Anonymous Anonymous said...

Ég mæti,
Líst vel á Miklatún.

Palli

8:05 AM  
Anonymous Anonymous said...

Já Maggi mætir.. vonandi verður þokkanlegt veður..

8:27 AM  
Anonymous Anonymous said...

Bjarni mætir. Samkvæmt talningnu minni þarf 18 til að spila þennan leik. Ég er til í miklatún.

9:30 AM  
Anonymous Anonymous said...

Fer eftir mætingu hvort ég láti sjá mig.

T

9:36 AM  
Anonymous Anonymous said...

Bjössi, Gunni, Siggi og Alli höfðu boðað komu sína í fyrri pósti. Miðað við það er komnir 9 manns. Flott mál, nú er bara smala og þá er þetta komið. Ekki fara menn fúlsa við fríum bjór og líkamsrækt í núverandi efnahagsástandi!

pg

4:11 AM  
Anonymous Anonymous said...

Ég fúlsa nú sjaldan við fríum bjór.

En því miður kemst hvorki í softarann eða partý.

Þið massið þetta

Skál

Hafcenterinn

6:48 AM  
Anonymous Anonymous said...

Ég og Hanni mætum eldhressir

kv. Freyz

8:13 AM  
Anonymous Anonymous said...

ps. það má bæta því við að það er afar góð spá fyrir morgundaginn, léttskýjað og 17° hiti.

9:03 AM  
Anonymous Anonymous said...

Alli bróðir er farinn vestur í sumarfrí.. ég er óviss með mætingu líka vegna sumarbústaðarferðar.. Reyni að kíkja.. kv. MGJ.

12:50 PM  
Anonymous Anonymous said...

Ég kemst því miður ekki. Er að fara á kayak niður Hvítáþ Ég mun þó koma og hitta ykkur um kvöldið og drekka með ykkur nokkra kalda.

kv.
Siggi Grétar

3:36 PM  
Anonymous Anonymous said...

Golfið hefur vinninginn í dag.

T

3:57 AM  
Anonymous Anonymous said...

Með snarræðislegum úthringinum er mætingin næg, þannig að við sjúmst hressir á túninu.

4:00 AM  

Post a Comment

<< Home