ENN EINN MOPPUSIGUR
Sigurganga Fc Moppu heldur áfram!
Fc Moppa mætti afarspennt til leiks á gerfigrasi HK í Kópavoginum. Stefndi í met þátttöku fyrir leikinn gegn Strumpunum. Þeir sem mættu voru, Einar Örugglega, Siggi H., Siggi G, Pálmi, Himmi, Gústi, Ingvi, Valdi, Loftur, Bjössi, Höddi, Doddi, Tommi, Teddi, Binni, Keli, Maggi og Alli ásamt undirrituðum í göngugrindinni sinni.
Byrjunarliðið var Einar í marki, Gústi og Loftur í bakverðinum, Siggi G. og Himmi í miðverðinum. Á miðjunni voru Maggi, Ingvi og Keli og Teddi og Höddi á köntunum og einn frammi var Bjössi.
Í fyrsta sinn á tímabilinu mættum við vel mannaðir en andstæðingurinn mætti einum færri. Þrátt fyrir að vera manni fleirri fyrstu 10 mínúturnar gaf Gústi 3 hornspyrnur af stakri gjafmildi sem Strumpunum tókst ekki að nýta. Eftir að Strumparnir fengu 11 manninn gekk aðeins betur hjá Moppunni að spila, þó var ansi mikið um klaufalegar sendingar og áttum við í erfiðleikum með að spila boltanum vel til að byrja með. Þrátt fyrir það tókst okkur að skapa nokkur góð færi, Teddi átti frábært skot sem að markvörðurinn varði í slánna og út. Þá átti Binni eitt af betri færum fyrri hálfleiks eftir að hafa fengið frábæra sendingu frá Dodda fyrir markið og þurfti hreinlega bara að fá boltann í sig til að skora en sópaði boltanum, ekki bara yfir heldur líka framhjá. Við vorum duglegir að nota kantana í fyrri hálfleik og fengum ansi margar góðar sóknir sem enduðu með sendingum fyrir markið en allt kom fyrir ekki, boltinn vildi ekki í markið.
Strumparnir áttu nokkrar ágætar sóknir í fyrri hálfleik en áttu ekki erindi sem erfiði fyrir framan fyrna sterka vörn og gríðar snöggan markvörð moppunnar.
Það er vert að taka það fram að dómari leiksins tók starfs sitt afar alvarlega og var duglegur að dæma á hin undarlegustu atvik og beitti gula spjaldinu eins og sá sem valdið hefur. Hann setti heldur betur línuna þegar Strumpur nr. 4 fékk gult spjald fyrir að segja "Hef'ann".
Þá var dæmt á Einar fyrir að fara fjórðung úr sekúndu yfir 6 sekúndna reglu markmannsins og það endaði í verðskulduðu gulu spjaldi, og aukaspyrnu sem Einar varði feiki vel.
En þrátt fyrir fullt af færum og ágætum leik í fyrri hálfleik þá var staðan 0-0 í hálfleik.
Í seinni hálfleik vorum við mun kraftmeiri og ákveðnari. Við sóttum án afláts og uppskárum mark á ca. 10 mínútu þar sem boltinn barst til Alla á kantinum og renndi hann sér inní teiginn vinstrameginn og vippaði snyrtilega yfir markmanninn. 1-0
Stuttu síðar áttum við snaggaralega sókn þar sem að boltinn barst á Valda sem renndi honum á milli tveggja varnarmanna fyrir fætur Bjössa sem var að stinga sér á milli en dómarinn dæmdi rangstöðu sem var rangt í stöðunni. Strax í kjölfarið fengu Strumparnir sókn sem var nánast því nákvæmlega eins nema hvað að ekki var dæmd rangstæða og varastrumpur skoraði með sinni fyrstu snertingu. 1-1
Teddi var ekki alveg sáttur og spurði dómarann "Var þetta ekki rangstæða eins og áðan?" og uppskar gult spjald fyrir þessi vel völdu orð í garð dómarans. En Teddi var sko ekki búinn og sagði kankvís á svip "djöfull ertu hress" og uppskar að "sjálfsögðu" annað gult spjald og þar af leiðandi rautt.!?!?!?! magnaður dómari sem líður ekkert kjaftæði á vellinum "sínum".
Þrátt fyrir að vera manni færri þá lögðu menn ekkert árar í bát, skiptingar urðu örari og menn hlupu þar til blóðbragð kom í munn (ca. 3 1/2 mínútu) og skiptu sér svo útaf og spilið batnaði til muna og sóknarlotur Fc Moppu þyngdust ef eitthvað var.
Í eitt af fáum skiptum sem Strumparnir komust í sókn í seinni hálfleik braut Siggi H. hana á bak aftur og þeysti upp hægri kantinn eins og vindurinn, gaf á Valda og óð áfram upp kantinn og fékk boltann aftur lék á 2 varnarmenn og hamraði svo boltann uppi þaknetið, þvílík syrpa hjá þessum léttleikandi og netta leikmanni. 2-1
Stuttu seinna náði Doddi með ótrúlegu harðfylgi boltanum rétt fyrir utan teig hjá strumpunum og renndi honum út á Loft á vinstri kanti sem stakk sér upp að endamörkum og gaf hnitmiðaða sendingu fyrir markið þar sem að Bjössi renndi boltanum í autt markið. 3-1
Þar sem að minni mitt er ekki óbrigðult þá tæpi ég bara á helstu sóknum moppunnar en ekki öllum.
Þegar ca. 10 mínútur voru eftir minnkuðu svo Strumparnir munin með hefðbundnu Moppumarki, misskilningur í vörninni og Einar var kominn aðeins of framarlega sending kom inní teig og fílustrumpur skallaði afturfyrir sig og yfir Einar í markinu. 3-2
Þrátt fyrir að vera 10 á móti 11 þá klúðruðum við allavega 2 úrvals færum á síðustu mínútunum. Loftur komst svo svakalega einn í gegn að hann hafði sennilega rétt tæpa mínútu til að ákveða sig einn á móti markmanni en reyndi svo að sóla hann sem mistókst og strumparnir önduðu léttar. Þá prjónaði Binni sig í gegn með hjálp á lokamínútunum og þegar hann átti 2 metra í markið reyndi hann að gefa boltann sem endaði með því að hann rúllaði útaf.
Strumparnir reyndu að sækja af veikum mætti á lokamínútunum en allar sóknaraðgerðir hrundu á sterkum varnarmúr Fc Moppu og lokaniðurstaðan 3-2 sigur á Strumpunum.
Leikurinn var býsna góður af okkar hálfu og algjörlega verðskuldaður. Gaman að sjá svona marga mæta og stemmningin var fín fyrir leikin og ekki var hún verri eftir hann, þá er bara að mæta hressi og jafnmargir í næsta leik sem er eftir slétta viku eða 20. Ág. kl. 21:00 - Kumho-FC Moppa á HK-vellinum.
Næsti leikur þar á eftir er 31. Ág. kl 18:00 - FC Moppa-Elliði á framvellinum
og síðasti leikurinn er frestaður leikur við Vatnsberana Fimmtud. 4.sept. kl. 19:00 í Kórnum.
Við erum sem stendur í 10 sæti í riðlinum með 7 stig og markatöluna 11-20 En eigum eftir eitt af toppliðunum þ.e. Kumho Rovers og svo Elliða ásamt Vatnsberunum sem eru aðeins búnir að gera 2 jafntefli í sumar!
en eníháv lifið heilir.
Kv. Lolli
ps. Þessi pistill er skrifaður með fyrirvara um villur og nafnarugl.

4 Comments:
það var nú Alli sem setti markið en skiljanlegur misskilningur..
kv
Maggi
Djöfulsins kjaftæði.. Maggi skoraði markið .. kv Alli ;)
Skemmtilegur pistill, annað en hægt er að segja um flautumeistara kvöldsins.
MJÖG ánægður með að brottreksturinn hafði ekki áhrif til hins verra heldur efldi liðið.
Teddi.
Hvað er þetta ég var ekkert kominn of framarlega. Ég var að fara að taka hann maður á mann þar sem allir varnarmenn voru víðs fjarri að bora í rassgatið á sér og þá beygðu hann sig snögglega niður í gras og skallaði boltann á undraverðan hátt með snúning yfir mig. Það hefði enginn markvarður í veröldinni komið í vega fyrir þetta, ekki einu sinni þessi feiti í Liverpool.
Kveðja
Keflvíkingur
Post a Comment
<< Home