Thursday, March 31, 2005

Æfing og búningamál!

Ágætis mæting var á æfinguna í gær, 14 manns mættu uppstrílaðir og hlupu gallvaskir eftir leðurtuðrunni alræmdu í ca. klukkustund. Var létt yfir hópnum og menn á köflum óvenju hnittnir, og sumir voru reyndar óvenju hittnir! Leikar fóru einhvernveginn fyrir bláu grúbbunni og var sigrinum fagnaði ógurlega og sáust ófá tár falla í rauðu grúbbunni. Þá var einnig kynnt fyrir leikmönnum væntanlegir búningar sem á að fjárfesta í! Almennt voru menn ánægðari með bláa celtic prostar búninginn sem er reyndar aðeins dýrari

en þeir kosta ca. 276.55 pund 15 búninga sett fyrir utan skatt. þ.e. 30 búningar eru ca 75000 kr. með markmannsbúning og merkingu.
Svo er það hinsvegar Umbro búningarnir



Enn þeir kosta 199 pund 15 búningar með tösku sem gera ca. 55000 kr. 30 búningar með merkingum og markmannsbúning! Nú er það bara spurning hvort að menn séu tilbúnir að borga aðeins meira fyrir prostar eða hvort að við eigum að skella okkur á Umbro.
Commentið nú á þetta og verið ekki feimnir það þarf að taka ákvörðun um þetta fljótlega!

kv. Van Basten

8 Comments:

Anonymous Anonymous said...

UMBRO

Kv, Fisterinn

4:53 AM  
Anonymous Anonymous said...

Aldrei þessu vant ætlar dvergurinn að velja ódýrt. Vanalega er ódýrt ljótt en ekki í þessu tilfelli.
Umbro fær því mitt atkvæði.

Kv,
BFI

6:06 AM  
Anonymous Anonymous said...

Ég er til í allt, ef við fáum feitann auglýsingasamning þá segji ég prostar en mér lýst vel á umbro, engu að síður.

9:01 AM  
Blogger Myrkur í Máli said...

Mér finnst prostar búningurinn flottastur en ljósblái umbro er ásættanlegur ef auglýsingarsamningar verða ekki í digrari kantinum.

2:25 PM  
Anonymous Anonymous said...

Blökkumennirnir í Umbro gera það að verkum að ég get ekki ákveðið mig. Bleiknefjinn með boltann, er hann ekki dómari?
Jú, annars, þverröndótt hefur alltaf gefist vel og ProStar fær því mitt atkvæði.

áNik

3:41 PM  
Anonymous Anonymous said...

Mér líst mjög vel á þessa bláu Celtic búninga. Hver Prostar búningur er ekki nema um 700 kalli dýrari en Umbro búningur sé miðað við 30 búninga keypta. Það er bara skiptimynt! Báðir búningarnir er reyndar hræódýrir.
Moppubúningarnir eru eigulegir gripir. Núverandi búningar eru búnir að vera notaðir í 3 ár.... Þannig að mér finnst að allt í lagi að borga aðeins meira fyrir flottari búninga.
Er þetta ekki spurning um að "looka vel" ???

Kv. Pálmi

8:17 AM  
Anonymous Anonymous said...

Var alveg viss um celtic búningana þar til der alte reiknaði þetta í áfengi, en það eina sem ég á nóg af eru peningar og því vel ég dýrari og flottari.

4:59 AM  
Anonymous Anonymous said...

VAntaði sendandann hér á undan.
Bjarni

5:00 AM  

Post a Comment

<< Home