Tuesday, July 05, 2005

Æfingar og leikir í júlí

Eins og öllum ætti að vera ljóst þá eru æfingar á fimmtudögum kl. 21:00. Þar sem við erum ca. 30 á skrá í Fc moppu þá ætti nú ekki að vera vandi að ná 12-20 manns á æfingum. Það virðist þó vera vandi í Fc Moppu og hefur mætingin verið á bilinu 5-10 manns uppá síðkastið, á meðan mæting í síðustu tvo leiki hefur verið 18-19 manns. Mér finnst ansi hart að menn geti ekki séð sér fært að mæta í æfingar og koma svo í leiki og gera þá ráð fyrir því að vera í byrjunarliðinu. Sjálfur er ég meiddur af gömlum og góðum vana þannig að ég hef ekki haft kost á að mæta á æfingar, en hef þó mætt í alla leiki. Þar sem að tíminn á gerfigrasinu kostar litlar 5000 krónur, þá finnst mér heldur hart að vera hósta þessu upp fyrir 5-10 manns. Því verður næsta æfing prófsteinn á það hvort við eigum að halda þessu áfram eða hætta þessu, það það má nýta peningana í annað, t.d. grill og bjór eða bara árshátíðina í haust.
Ef það mæta 12 eða fleirri manns á æfinguna á fimmtudaginn þá höldum við tímanum ef ekki þá verður honum sagt upp.

Þá er ekki úr vegi að nefna það að eftirtaldir eiga eftir að borga fyrir til moppunnar.
Arnar Halldórs - 3500
Gústi - 4500
Benni - 6500
Gunnar sigurðuss - 6500
Halldór smári - 3500
Pálmi - 3500
Pétur Björn - 10000
Sigurður Hannesson - 10000
Tommi - 10000
Sverrir - 10000

Reikningsnúmerið er sem fyrr!

1135 05 409000 kt. 021176-4279

Verið ekki feimnir við þetta.

Ég verð frá út júlí eins og ég hef þegar sagt ykkur og því verður það sennilega Siggi sem sér um leikskýrslur og að velja í lið í næstu 3 leikjum.
Ætla að reyna að mæta á æfingu á fimmtudaginn og taka út stöðuna.

Kv. Lolli