Monday, May 29, 2006

Fc Moppa 2-1 Áreitni

Fyrsti sigurinn staðreynd og er stefnan tekin á 30 stig í sumar!
Fín mæting í ágætis veðri þrátt fyrir talsverðan vind og kulda. Mætti voru Einar Örugglega, siggi H. Siggi, Rúnar, Maggi, Lolli, Gústi, Pálmi, Teddi, Ingi, Jónas, Ingvi, Valdi, Bjössi, Bjarni, Þorkell, Jón og Himmi.

Byrjunarlið var skipað Einar í marki, Gústi og Siggi í bakvörðum, Himmi og Pálmi sem miðverðir, Jón og teddi á köntum, Ingvi og Jónas á miðjunni og Ingi og Bjössi frammi.

Leikurinn byrjaði ágætlega, var þó greinilegur vorbragur á báðum liðum og var nokkuð um seinar og grófar tæklingar hjá báðum liðum, dómari leiksins hafði þó ágæta stjórn á mönnum þó að gulu spjöldin hefðu með réttu átt að koma fyrr.
Framan af voru Moppumenn sterkari án þess þó að skapa sér sérstök færi, en áreitni átti nokkur hálffæri úr snöggum sóknum.
þegar ca. 10 mínútur voru eftir af fyrri hálfleik komst svo moppan í sókn þar sem að boltinn barst inn til dvergsins eldsnögga og hljóp hann í gegnum klofið á tveimur varnarmönnum áður en hann lagði boltann í markið fram hjá markmanni Áreitni. 1-0
Það sem eftirlifði hálfleiks skiptust liðin á að sækja án þess að nein stórkostleg færi sköpuðust!

Seinni hálfleikur hófst á svipuðum nótum og sá fyrri, moppan var talsvert stekari og með vindinn í bakið sótti hún af krafti. Þetta sókn skilaði marki að 10 mínútum liðnum, boltinn barst til Inga eftir hreinsun úr vörninni og hamraði hann boltann í netið yfir markmann áreitnis. Stórglæsilegt mark! 2-0
Þegar hér var komið við sögu hafði Moppan stjórn á vellinum og sótti án afláts og átti talsvert af góðum færum!
þegar leið á leikinn voru farnir að sjást fínir taktar hjá moppunni fallegar hælspyrnur og var ekki laust við að sambatakturinn sem moppan er þekkt fyrir sæist. En að sjálfsögðu stóð þetta nú ekki lengi yfir og botninn datt aðeins úr spilinu síðustu 10 mínúturnar og náðu Áreitni að pota inn marki á 79 mínútu. 2-1
Moppan hélt út þessar síðustu mínútur og fyrsti sigurinn í höfn!

Leikurinn var ekki alslæmur en þó ekki langt frá því! Það sáust ágætir taktar og þá sérstaklega fyrstu 25 mínúturnar í síðari hálfleik þar sem sást oft fallegt spil. Held að það sé alveg nauðsynlegt a reyna að hittast 1-2 í viku á sparkvelli til að fá smá tilfinningu fyrir boltanum!

Næsta æfing er á þriðjudag kl. 20:00 mæting í safamýrinni!
Látið vita með kommenti hér!
kv. Lolli

Friday, May 26, 2006

Leikur nr.2

Sælir

Eftir svekkjandi tap í fyrsta leik. Þar sem þeir voru mikið betri en við í fyrr hálfleik en við í seinni. En svona er þetta, eins skáldið sagði þá er sportið grimmt.

Leikur kl. 19.30, mæting 19.00, á Sunnudaginn á Leiknisvelli.

Allir að melda sig!

Wednesday, May 24, 2006

Fc Moppa vs. Fc Dragon

Sælir félagar!
Ingi B. hjá utandeildinni hringdi í mig áðan og tjáði mér það að leikurinn frestaði fer fram kl. 11 í fyrramálið (fimtudag) í Egilshöllinni!
mæting að venju hálftíma fyrr!
meldið ykkur í leikinn með kommentum hér undir!
kv. Lolli

Tuesday, May 23, 2006

Leikjalisti sumarsins!

Hér er listi yfir leiki sumarsins! Þarna er ekki að finna bikarleiki, en það verður dregið í bikarnum seinna!


1. umferð
23. Maí. 19:30 - FC Dragon-FC Moppa Tungubakkar (C)
2. umferð
sun. 28. Maí. 19:30 - FC Moppa-Áreitni Leiknisvöllur (C)
3. umferð
Mán. 12. Jún. 19:30 - Stormur-FC Moppa Tungubakkar (C)
4. umferð
Sun. 18. Jún. 18:00 - FC Moppa-Kærastan hans Ara Fylkisvöllur (C)
5. umferð
Mið. 12. Júl. 19:30 - Vatnsberar-FC Moppa Tungubakkar (C)
6. umferð
Þri. 18. Júl. 19:30 - Strumpar-FC Moppa Tungubakkar (C)
7. umferð
Sun. 30. Júl. 19:30 - FC Moppa-Nings Leiknisvöllur (C)
8. umferð
Sun. 13. Ág. 18:00 - FC Fame-FC Moppa Framvöllur (C)
9. umferð
Mán. 21. Ág. 19:30 - FC Moppa-Gismó Tungubakkar (C)
10. umferð
Sun. 03. Sept. 21:00 - TLC-FC Moppa Leiknisvöllur (C)
11. umferð
Sun. 10. Sept. 21:00 - FC Moppa-FC Reynir Framvöllur (C)

Það eru semsagt 5 leikir á grasi og 6 á gerfigrasi!
6 leikir eru á sunnudögum en þeir eru alltaf seint eða frá 18-21

Nú ættu menn að geta lagt þetta á minnið og svo ekki þurfi að hamra þetta inní höfuðið á þeim á leikdegi eins og venjulega!

kv. stjórnin!

Tuesday, May 16, 2006

Fyrsti leikur í deild

Þá hefst gamanið!

Fyrsti leikur í deildinni er svo mikið sem á þriðjudaginn eftir viku og endilega látið vita hérna með komentum eða emli hvort þið komið eða ekki!
Mæting er að sjálfsögðu hálftíma fyrir leik og minni á að takkaskór eru plús þar sem að þetta er á grasi!
23. Maí. 19:30 - FC Dragon-FC Moppa Tungubakkar (C)

gleði gleði!

kv. Þjálfi

Monday, May 15, 2006

Æfing á þriðjudag!

sælir félagar!

Æfing á morgun (þriðjudag 16.05) kl. 20:00 á sparkvellinum í safamýrinni!
Endilega látið vita hvort þið komist svo að við vitum hvað margri mæta!

Kv. Lolli

Wednesday, May 10, 2006

Afmæli Fc Moppu

Jæja Moppan orðin 10 ára og hvað skal til bragðs taka!
Jú er ekki bara stemmning fyrir að hafa eitt stykki veglega afmælisveislu til heiðurs afmælisbarninu!
Hugmyndin er ekki bara komin fram heldur er hún að verða að veruleika.... búið er að taka sal á leigu í hjarta kópavogs þ.e. Hamraborginni! Og er tíminn júróvísíjónkeppnin víðfræga 20. mai!
Þá er einnig hugmyndin að bjóða vinum og velunnurum moppunnar til fagnaðarins og er um að gera að ná upp góðri stemmningu fyrir þetta.
Gera má ráð fyrir því að það verði bolla í boði Moppunnar og svo eins og í fyrri júróvísíjónpartýum moppunnar er að sjálfsögðu veðjað á vinningshafann og eru það sem fyrr þeir 5 sem eru næstir réttri niðurstöðu sem fá vegleg verðlaun!
Endilega komið með einhverjar hugmyndir sem hægt er að framkvæma við þetta hátíðlega tilefni!
Ef einhver vill halda ræðu eða fara með ljóðabálk til heiðurs afmælisbarninu þá er sá hin sami beðinn að hafa samband við veislustjórann Sigurð Grétar og raðar hann ræðumönnum upp eftir mikilvægi!
En er ekki stemmning fyrir þessum veisluhöldum!
endilega kommentið á þetta!

kv. veislunefndin!

Æfing á fimmtudag!

Sælir félagar!

Eftir virkilega skemmtilega og auðvelda æfingu á þriðjudag var ákveðið að endurtaka leikinn í vikunni og reyna að hittast á fimmtudaginn (11.05.06) kl. 20:00 á sama stað!
Við vorum 10 á síðustu æfingu og var það helvíti hressandi!
Endilega meldið ykkur hér í commenta kerfinu!

kv. Lolli

Thursday, May 04, 2006

Leikur ofan á leik.

Sælir

Fyrsti leikur búinn og búið að skipuleggja annan.

Leikur við Vatnsbera á sunnudag kl.17.30 og því er mæting kl.17!
Meldið ykkur í kommentakerfið.

En þá er ekki úr vegi að tala aðeins um síðasta leik. Mættum 11 til leiks (þó sumir aðeins seinna en aðrir).
Stilltum þessi þannig upp að Ingvi var í marki, miðverðir vorur Pálmi og Himmi, bakverðir Sigurður Grétar og Kjartan, Miðjan var Jónas og Þorkell hinn nýji, kantmenn Gústi og Siggi H., frammi voru stormsenterarnir Valdi og BFI.

Byrjuðum vel og settum eitt fljótlega og var þar að verki lánsmaður sem var með okkur fyrstu 10 mín, eftir stórkostlega stungusendingu frá Sigurði G.
Mark nr. 2 var eitt það fallegra í Moppu sögunni og þá er nú helv. mikið sagt. Þríhyrningsspil frá miðju í gegnum alla vörn Vatnsbera sem endaði á því að Valdi renndi boltanum í autt netið.

Jón Frímann nær nú að setja eitt á móti okkur, aðallega vegna þess að okkur líkar vel við Jón Frímann.

Jónas setur svo þriðja markið í lokin eftir fallega aukaspyrnu Sigurðs G.
Þeir skora svo lokamarkið eftir vafasama markvörslu Ingva.

Semsagt 3-2 sigur í fyrsta leik og hreint ágætis spil á köflum þrátt fyrir smá vorbrag á okkur.
Vonandi mæta fleiri í leikinn næsta sunnudag enda hafið þið ekkert betra að gera á sunnudögum.

Ossokomasvo