Moppumenn mættu temmilega hressir til leiks í blíðskaparveðri á sunnudaginn og öttu kappi við Strumpana í fyrsta leik sínum í B-riðli Utandeildarinnar.
Ekki var mikið liðið af leiknum þegar Strumpar fengu hornspyrnu. Var hún tekin lágt á nærstöng (enda erfitt að taka horn lágt á fjær) og þaðan var boltanum spyrnt áfram inn í teiginn en hitti fyrir helköttað þvottabrettið á Ásgeiri þaðan sem hann sleikti nærstöngina á leið sinni í netið. Þurfum greinilega að fá feitari menn á stangirnar í hornum. Moppumenn voru vægast sagt værukærir í upphafi leiks og vatnaði alla baráttu í menn. Eftir stungusendingu gegnum flata vörn Moppunnar bættu Strumparnir við öðru markinu og þótti Moppumönnum þeir ekki verðskulda að vera 2-0 undir, en eftir á litið var það sennilega fyllilega verðskuldað. Mikið var um langa bolta fram völlinn í fyrri hálfleik og vantaði bæði öryggi á boltann og grimmd í Moppumenn. Bjössi átti ágætt færi auk þess sem Tommi og Doddi voru skeinuhættir (hætt við að fá skeinur?). Ingi var mjög duglegur en hann byrjaði leikinn einn frammi og fékk allt of litla hjálp.
Seinni hálfleik byrjaði Moppan af þokkalegum krafti en tókst þó að fá á sig mark og Strumpar komnir í 3-0. Eftir frábæra sendingu Tedda skoraði maðurinn sem ranglega hefur verið kallaður Feiti Dvergurinn með skalla (það er Dvergurinn sem er rangt) og staðanorðin 3-1. Í kjölfarið skoruðu Strumparnir svo sitt fjórða mark og bjuggust margir á bekknum við því að leiknum væri lokið.Það varð þó ekki raunin og seinustu 20 mínúturnar sóttu Moppumenn án afláts að marki Strumpanna en voru kannski heppnir að fá ekki á sig fimmta markið úr hraðaupphlaupi. Í sóknarlotu Moppunnar skoraði Teddi gott mark eftir hnitmiðaða stungusendingu og kórónaði þannig stórleik sinn. Loftur fékk álíka sendingu inn fyrir vörnina og minnkaði muninn í 3-4 og voru tæpar 10 mínútur til leiksloka.
Á þessum 10 mínútum gerðu Moppumenn allt nema að koma tuðrunni í netið. Markvörður Strumpanna varði þrumuskot Gústa af 1,5 meters færi "Dudek-style" án þess að vita hvar boltinn var. Teddi, sem var ávallt hættulegur átti þrumuskot í slánna úr aukaspyrnu og einn Strumpanna varði skot frá Moppumanni með höndum innan teigs án þess að dómarinn dæmdi víti. Fleiri færi litu dagsins ljós síðustu mínúturnar og voru Strumpar vafalaust fegnir að sleppa með stigin þrjú.
Það skal þó ekki sagt að þeir hafi ekki átt þau skilið því ekki er nóg að spila vel í 20 mínútur. Moppumenn áttu ekki góðan dag og var eitthvert andleysi yfir mönnum. Það má þó taka ýmislegt semi-jákvætt frá þessum leik og er nú eins og einhver sagði: "...bara að byrja næsta leik eins og við kláruðum þennan!" Nú er um að gera að hætta öllu væli um riðla og erfiða andstæðinga og mæta grimmir í næsta leik og berjast frá fyrstu mínútu og þora að spila boltanum en það er einmitt í þessum sambabolta sem styrkleiki Moppunnar liggur!
Samkvæmt nýrri reglugerð Moppunnar um gul spjöld hafa 6000kr safnast í árshátíðarsjóð en miðað við gengi krónunnar í dag og með tilliti til Nasdaq samsvarar það einum kassa af bjór.
Næsti leikur Moppunnar er miðvikudaginn 20. júní kl. 19 og fer hann fram á Tungubökkum. Þar verður kappi att við FC CCP sem hafa seinustu ár verið með hörkulið. Því er ekki úr vegi fyrir Moppumenn að hittast annað kvöld í bolta eins og rætt hafði verið hér fyrir nokkru. Ef menn eru til í létt sprikl annað kvöld eða eitthvað annað kvöld (?) er ekki úr vegi að minnast á það í þar til gerðu tilvitnanakerfi hér fyrir neðan.
Blíðar heilsanir, Giraf.