Friday, September 22, 2006

Dagskrá árshátíðar!

Dagskrá árshátíðar!

14:00 Breiðablik vs. Keflavík á kópavogsvellinum (option)!
16:15 Keila í Keiluhöllinni í Öskjuhlíðinni!
17:30 Sund á Hótel Loftleiðum!
19:00 Uppúr sundlauginni, og menn Klæðast hátíðarbúningnum sem samanstendur af jakkafötum og nýju mopputreyjunni!
19:30 Í salinn þar sem hátíðinn er haldin borðað og rokkað í svitabaði fram eftir kvöldi!

Gott er ef að menn myndu taka með sér reiðufé vegna kostnaðar við mat!
Þá er ekki verra að menn komi með sínar eigin veigar á svæðið, en gert er ráð fyrir því að drekka mikið og margt!

kv. Lolli

Tuesday, September 19, 2006

Árshátíð

Sælir bræður í kristi og öðrum trúfélögum.

Allir að melda sig hvort að þeir mæti á laugardag. Þetta er mjög mikilvægt til þess að ákveða kostnað og aðra dagskrá. Dagskráin kemur svo síðar.

Þetta er nú það sem við höfum verið að bíða eftir í allt sumar. Það er ekki eins og við höfum eitthvað gaman af að spila fótbolta.

Kv,
Stjórnin

Tuesday, September 12, 2006

Árshátíðarbúningamál

Jæja þar sem að árshátíðin hefur verið sett á 23. september er ljóst að það þarf að hafa hraðar hendur við prentun búninganna. Ef menn ætla að hafa nafn á búningunum þarf að tilkynna það hið snarasta hér á síðunni í commentin eða til mín á pgudbrands@hotmail.com. Þeir sem ekki verða búnir að tilkynna fyrir lok vikunnar fá Brundstampur aftan á búninginn sinn. Farið verður með búningana í prentun á föstudag.

Fínt er að menn sendi númer með en sem ávallt gildir seniority í því og er því ljóst að nýjir leikmenn geta ekki fengið númer á bilinu 1-11 og nokkur önnur sem eru frátekin s.s. 00 og 13 og nokkur önnur sem ég man ekki. Því væri best að nýjir menn með óskatölur setji inn comment með fyrirspurn um viðkomandi tölu og þá kemur fljótt í ljós hvort hún sé frátekin eður ei. Þeir sem ekki koma með séróskir fá lægsta númer sem laust er.

Ég endurtek: ef menn vilja ekki vera Brundstampur 36 þá setja inn comment og senda tölvupóst á mig. Það verða allir að senda tölvupóst á mig með númeri og nafni. Þið verðið að vera búnir að athuga sjálfir hvort númerið sé laust. Síðasti séns er fimmtudagskvöld.

Þeir sem eru "tengiliðir" nýrra manna í liðinu sjá til þess að þeir frétti af þessu. Drífum í þessu og lítum vel út á árshátíð:

Monday, September 11, 2006

Fc Moppa 3-2 Fc Reynir

Síðasti leikur tímabilsins var spilaður á gerfigrasinu í Safamýrinni í fínum aðstæðum, reyndar grenjandi rigning og rok til að byrja með en þegar leið á leikinn lægði og hætti að rigna!

Eftir frekar dapra mætingu í síðasta leik (5 manns) þá var ákveðið að reyna í það minnsta að tvöfalda þann fjölda fyrir loka leikinn. Ekki vantaði undirtektirnar og mættu alls 14 manns í leikinn, næstum þreföld aukning frá leiknum á móti TLC!

Liðskipan var þannig, Einar í marki, Pálmi og Lolli í miðverðinum, Gústi og Siggi í bakverðinum, Teddi og Palli á köntunum, Maggi, Ingvi og Þorkell á miðjunni og Björn Freyr frammi! Á varamannabekknum sátu Valdi (að hita upp), Pési og Alli.

Leikurinn var flautaður á á slaginu 21:13 þessi venjulega 13-30 mínútna seinkunn sem ávallt má gera ráð fyrir! Moppan byrjaði með boltann og lagði undir eins af stað í sókn og flaut boltinn vel á milli manna og mátti sjá á mönnum að það átti greinilega að hrista af sér slyðruorðið frá síðasta leik!

Þegar 5 mínútur voru liðnar af leiknum var brotið á Ingva rétt utan við teig vinstra meginn á vallarhelming Fc Reynis! Teddi aukaspyrnusérfræðingur stillti sér upp við boltann og gerði sér lítið fyrir og setti boltann efst í markhornið vinstra meginn með hnitmiðuðu skoti! 1-0 fyrir Fc Moppu.

Í kjölfarið fékk Moppan nokkur mjög góð færi til að bæta við marki, og fram í miðjan fyrri hálfleik var Moppan sterkari aðilinn á vellinum! Allir voru að berjast um boltann og Fc Reyni, sem sat í 3 sæti deildarinnar og átti séns á að komast í úrslitakeppnina, átti erfitt með að brjótast í gegnum miðju og vörn Moppunnar!

Þegar 10 mínútur voru eftir af leiknum komu Fc Reynir í sókn og sending í gegnum vörnina og fór af varnarmanni (undirrituðum) beint fyrir fætur sóknarmanns Reynis sem náði ekki alveg valdi á boltanum og datt um Gústa þegar hann hreinsaði og afburða latur dómari leiksins dæmdi vítaspyrnu frá miðjuhringnum! Í sjálfu sér lítið við þessu að gera og skoraði sá sem fiskaði vítaspyrnuna örugglega framhjá Einar í markinu. 1-1

Eftir markið færðust Fc Reynir allir í aukinn en náðu þó ekki að skapa sér nein hættulega færi það sem eftir lifði hálfleiks og var það sama upp á teninginn hjá Fc moppu.

Staðan í hálfleik 1-1 og voru menn ekki alveg sáttir enda búnir að eiga fínan leik og mikil barátta í liðinu aðeins ef færin hefðu verið nýtt þá væri staðan talsvert önnur!

Seinn hálfleikur hófst og sóttu Fc Reyir af talsverðum krafti fyrstu mínúturnar og fengu á köflum ágæt færi sem ekki nýttust. Fc Moppa náði loks takti við leikinn þegar 20 mínútur voru liðnar þegar Gústi tók innkast og fékk boltann aftur og sendi stórglæsilega sendingu fyrir markið þar sem minnsti maður vallarinns, Björn Freyr stökk hæðst allra og flikkaði boltanum í netið.
2-1 fyrir moppunni!

Eftir markið skiptust liðin á að sækja, og nýtti Fc moppa skyndisóknir og fengu 3-4 dauðafæri sem hefði átt að vera hægt að klára, en allt kom fyrir ekki og í staðinn náði Fc Reynir að jafna með stungu í gegnum flata vörn Fc moppu þar sem að sóknarmaður þeirra renndi boltanum framhjá Einar í markinu! 2-2

þetta gerðist þegar ca. 15 mínútur voru til leiksloka. Greinilegt var að eini munurinn á liðunum var þrekið en farið var að draga verulega af moppumönnum þegar líða tók á seinni hálfleik, þrátt fyrir það var baráttan til fyrirmyndar og menn drógu ekkert af sér í tæklingum!
Stuttu fyrir leikslok var send stunga inná Ingva sem náði boltanum og með gríðarlegri tækni og snerpu komst hann inní teig þar sem brotið var "hrikalega illa" á honum og féll hann með tilþrifum og dómarinn lati hikaði ekki við að dæma vítaspyrnu. Hlakkaði í varamannabekknum við þetta og sáu menn fram á öruggan sigur Fc Moppu. Markahrókurinn Björn Freyr stillti sér upp á punktinum og tók öruggas pyrnu í hægra hornið en markvörður Fc Reynis varði boltann örugglega og eftir smá klafs í teignu náði Fc Reynir að hreinsa út á vinstri kant þar sem að Pési tók boltann og sendi hann uppí hornið en var í kjölfarið tæklaður uppí nára af miðjumanni Fc Reynis sem fékk "gult" spjald fyrir vikið hefði nú átt að vera sótrautt fyrst það var gefið spjald!

Pálmi tók aukaspyrnuna og fékk Þorkell boltann upp við vítateigshorn og lék inní teiginn og lék á einn varnarmann stillti boltanum upp og þrumaði boltanum efst í fjærstöngina og inn. Frábærlega vel gert og braust út mikil gleði í kjölfarið. 3-2 fyrir Fc Moppu.

Fc Reynir náði einni sókn eftir það og svo var leikurin flautaður af "öruggur" sigur moppunnar í höfn.

Í heildina held ég að þetta hafi verið einn af betri leikjum moppunnar í sumar og var baráttan til fyrirmyndar og spilið var sérstaklega gott í fyrri hálfleik sem skilaði sér í nokkrum mjög góðum tækifærum en boltinn virtist ekki vilja í markið... Björn Freyr var sérlega óheppinn með sín færi. Í seinni hálfleik var farið að draga aðeins af okkur og datt baráttan aðeins niður í byrjun hálfleiksins en svo byrjaði þetta að detta fyrir okkur í seinni hluta hans.

Það er ekki hægt að taka neinn sérstaklega út í leiknum þar sem að flestir leikmenn áttu góðan leik.
Virkilega gaman að sjá gömlu moppubaráttuna birtast aftur eftir frekar daufa leiki.

En nú er bara að fara að safna moppu fyrir hina gríðarvinsælu árshátíð sem verður haldin með látum þann 23. sept næstkomandi. Þá verða hátíðarbúningarnir tilbúnir og geta menn farið að safna birgðum af áfengum veigum!

kv. Lolli

ps. staðreyndarvillur í þræðinum tilkynnist til mín

Monday, September 04, 2006

Fc Moppa 0-3 TLC

Þetta var stórgóður leikur sem varði í mjög stutta stund.... mættu semsagt 5 leikmenn moppunnar Gústi, palli, pálmi, Siggi og Ingvi og svo undirritaður á hækjum!
Það eru tveir leikir eftir og menn geta ekki séð sóma sinn í því að mæta og klára þetta mót... hverskonar andskotans aumingjaskapur er þetta!
Að sjálfsögðu geri ég mér grein fyrir því að einhverjir áttu ekki kost á að mæta... en andskotinn hafi það að ná ekki 11 manns fyrir þennan leik!
Það er einn leikur eftir 10. Sept. 21:00 - FC Moppa-FC Reynir Framvöllur sýnum nú smá áhuga og mætum í þennan leik!

Endilega kommentið hér undir, þar sem að það er eina mælistikan á það hversu margir mæta!

kv. Lolli

Sunday, September 03, 2006

Leikur í kvöld! þann 03.09

Sælir félagar, það er leikur í kvöld 03. Sept. 21:00 - TLC-FC Moppa Leiknisvöllur. Náum nú góðri mætingu og neglum þessa tvo leiki sem við eigum eftir...!

Kommentið hér fyrir neðan!

kv. Lolli