En einn sigurinn!!!! Og að þessu sinni voru leikmenn grandskoðaðir áður en þeir fengu að skrá sig á skýrslu. Fundust tveir ólöglegir sem reyndu að svindla sér í liðið, en komst upp um þá þegar dulargerfi annars þeirra datt af við það að hann hnerraði. Þeir lögðu mikið á sig til að komast inní liðið þar sem að báðir voru með stór svört gleraugu, gerfinef og
yfirvaraskegg, sögðust þeir báðir heita jónas!!!! Þegar upp komst um þá hlupu þeir eins og byssubrenndir og hurfu inní kvöldhúmið, sennilega hafa þetta verið á vegum Fc Hómers í von um að geta kært leikinn ef hann tapaðist.
En allavega..... Moppumenn mættu fullir orku og ákveðnir í að berjast gegn ranglæti heimsins og yfirstíga þau vandkvæði sem hamlað hafa yfirráðum þeirra í knattspyrnuheiminum. Eftirtaldir sáu sér fært að mæta í leikinn: Gunni Freyzzz, Bjössi, Pétur Óli, Bjarni, Kjarri, Siggi örugglega, Lolli, Valdi, Ingvi, Benni, Pálmi og Sindri. Byrjunarliðið var þannig skipað: Gunni í markinu, Pálmi og Benni í miðverðinum, Sindri og Pétur Óli í bakverðinum. Kjarri afturliggjandi miðjumaður, Ingvi og Bjössi þar fyrir framan, Bjarni og Siggi örugglega á köntunum og svo Valdi frammi. Lolli aka Van Basten sat sem fastast á bekknum og vermdi hann af alkunnri snilld sökum bakverkjar!
Leikurinn fór hægt af stað og var jafnræði með liðunum framan af og var þessi varnarsinnaða uppstilling alveg að gera sig. Ekki var þó sérstaklega mikið af færum. Við komumst þó yfir eftir ágæta sókn, Benni sendi boltann beint úr aukaspyrnu á Ingva sem tók boltann á bringuna og lagði út í teig þar sem Pálmi kom og lagði boltann fallega í markið. 1-0
Eftir þetta skiptust liðin um að sækja og áttu hvort um sig þokkalega færi meðal annars sitthvorn skallann á markið sem voru báðir varðir. Skömmu fyrir hálfleik var brotið illa á Sindra sem fékk við það eitthvað tak í bakið, en reyndi þó að þrauka og spilaði út hálfleikinn. 1-0 í hálfleik.
Í seinni hálfleik fór Ingvi í markið í stað Gunna en hann tók stöðu Ingva á miðjunni. En þegar skammt var liðið á leik neyddist Sindri til að fara í mark sökum bakverkja og datt þá Siggi örugglega niður í bakvörðin, Gunni fór á kantinn og Ingvi tók sína stöðu á miðjunni. Skömmu síðar átti Hómer ágætis sókn sem endaði með skoti sem Sindri átti engan sjéns á að verja. 1-1.
Skömmu síðar fékk Bjössi svo boltann vinsta meginn í teignum og skoraði þetta líka gullfallega mark með föstu skoti í fjærhornið (lýsing Dvergsins "
Markið mitt á móti Hómer var einkar glæsilegt. Hómer átti innkast við miðju vallarins og reynir bakvörðurinn að gefa á smávaxna miðjumanninn hjá Hómer. Ég ákveð að taka sénsinn og sting mér framfyrir hann og af mikilli elju næ að stela boltanum og geysist upp vinstri kantinn. Ég ákveð að taka stefnuna að vítateiginum, þar sem enginn Moppumaður var nálægt. Ég bjóst sífellt við því að einhver myndi ná mér en ég virtist geta hlaupið á gífurlegum hraða og þá með boltann sem fastan við tærnar á mér. Þegar ég nálgaðist vítateiginn þá lít ég upp en sé engan Moppumann nærri en tvo hómeringa nálgast óðfluga og því hugsa ég hvort ég eigi að láta vaða eða taka þá á. Ég vel fyrri kostinn og boltinn flýgur upp í sammarann og markvörðurinn hreyfir hvorki legg né lið. Enn eitt undramarkið hjá Dvergnum!"). Staðan orðin 2-1. Þegar hér var komið við sögu urðu 4 markmannsskiptin í liði Fc Moppu þegar undirritaður sjálfur Lolli skellti sér í markmannstreyju og dró á hendurnar glænýja markmannshanska. Margir muna eftir lolla úr leikjum eins og 11-1 gegn Fc Fame þar sem hann stóð sig eins og "hetja" í markinu og fékk á sig eigi færri en 8 mörk á 60 mínútum en það var nú annað uppá teninginn í þetta skiptið. 30 mínútur voru eftir og stefndi í gríðarlega spennu það sem eftir lifði leiks. Liðin skiptust á að sækja og sköpuðu sér þó engin hættulega færi. þegar ca. 20 mínútur voru eftir áttu Hómeringar undarlegt skot á markið sem undirritaður varði glæsilega en boltinn barst þó aftur út í teig þar sem hann endurkastaðist af hnjám, lærum, leggjum og herðarblöðum og barst að lokum til Hómerings sem tók skot í vinstra hornið en sem fyrr endurkastaðist boltinn af hinu ýmsum líkamshlutum og endaði í hinu horninu. 2-2 og ekkert sem undirritaður telur sig hafa getað gert til að koma í veg fyrir það!
Eftir þetta fóru moppumenn að sækja meira en hómeringar gerðu lítinn usla upp við mark Moppunnar. Allir boltar sem nálguðust markið stoppuðu á vörninni eða bárust til markvarðarins sem hirti alla bolta af fádæma öryggi. Þegar stutt var eftir komust Moppumenn í góða sókn þar sem að boltinn barst af miðjunni út á kannt og þaðan upp að endamörkum þar sem Bjössi náði fastri sendingu fyrir og þar kom enginn annar en sleggjan á fleygiferð og klíndi boltanum í markið af stuttu færi. Stórglæsilegt mark og Moppan komin yfir eina ferðina enn. Skömmu síðar var leikurinn flautaður af og enn einn sigur moppunnar orðinn að staðreynd!
Leikurinn var ágætlega leikinn af okkar hálfu fyrir utan smá kafla í hvorum hálfleiknum fyrir sig
og verða þessi úrslit að teljast ansi sæt sökum látana í Hómeringum öskrandi eins og vitleysingar á hliðarlínunum og með tæklingar út um allan völl. Mörkin voru öll þrjú með fallegra móti og þá gaman að sjá spilið í kringum fyrst og þriðja markið.
Staðan er nú þannig að 13 stig eru í húsi og möguleiki á öðrum 6 sem væri ekki verra að hesthúsa og klára mótið með sóma og 19 stigum.
Hafið góðar stundir!
kv. Van Basten