Monday, June 26, 2006

Tilraun til æfingar mistókst og er því frestað um óákveðin tíma!

En ein tilraun til að hafa æfingu! Á miðvikudag á sparkvöllin við framheimilið kl. 21:15!
meldið ykkur hér undir með kommenti!
Æfingin verður blásin af ef við verðum færri en 8 skráðir!

kv. Lolli

Enn einn moppusigurinn!!!!

Gerfigrasið í Frostaskjóli, bikarleikur, Fc Moppa vs' Rc Collins, skýjað og rigning í Grend en þurrt í Frostaskjóli! Andrúmsloftið er rafmagnað þar sem liðin ganga inn á völlinn, þögnin er einungis rofin af braki í spelkunum hans Lolla og smellunum í göngugrindinni hans Valda... spennunni léttir þegar siggi segir "strákar við hefðum átt að velja langröndótta búninga eins og Fc Rollins er í.... maður lítur út svo grannur í þeim"

Að leiknum! Mættir voru, Ásgeir, Valdi, Ingvi, Gústi, Himmi, Jónas, Þorkell, Alli, Maggi, Siggi, Teddi, Pálmi og Lolli!

Byrjunarliðið var Ingvi í marki, Himmi og Pálmi sem miðverðir, Siggi og Gústi sem Bakverðir, Maggi og Teddi á kantinum, Valdi, Jónas og Þorkell á miðjunni og Ásgeir frammi. Alli og Lolli voru svo á bekknum!

Leikurinn byrjaði sæmilega, og eftir 5 mínútur komst Maggi upp kantinn og lék á tvo varnarmenn og lagði boltann fyrir á Valda sem setti boltann fallega í markið og Moppan komin í 1-0.
Moppan átti þó í alvarlegum vandræðum með að spila boltanum og fóru margar sendingar forgörðum og náði andstæðingurinn oft ágætis skyndisóknum eftir slakar sendingar hjá moppumönnum, í einni slíkri komust þeir einir í gegn og náðu að skora með fallegu skoti framhjá Ingva í markinu! 1-1

Barningurinn hélt áfram og náði Moppan nokkrum ágætum sóknum sem enduðu með skotum, allt í kringum markramman. eftir ca. 20 mínútna leik náðist ágætt spil hjá moppunni og var valdi komin einn í gegn en var tæklaður niður og dómari leiksins var ansi lengi flauta vítaspyrnuna en gerði það nú á endanum við mikinn fögnuð Fc Moppu en andúð Rc Collins! Teddi stillti boltanum upp á vítapunkt og skoraði örugglega úr vítaspyrnunni! 2-1 fyrir Moppunni.

Í kjölfarið róaðist spil moppumanna aðeins og náðum við að halda boltanum aðeins betur og dreifa honum í gegnum miðjuna. Fljótlega náðum við góðu spili og fékk Valdi sendingu inní teig og lék á varnarmann og setti hann fram hjá markmanni Rc Collins! 3-1 fyrir Fc Moppu

Það sem eftirlifði hálfleiks var allt í járnum en fátt markvert gerðist, og staðan í hálfleik var 3-1

Eftir tíðindarlitlar byrjunarmínútur fyrri hálfleiks varð klúður á milli Ingva og Sigga sem varð til þess að Rc Collins minnkaði muninn á 45 mínútu... verður ekki frekar farið í það atvik hér! 3-2 fyrir Fc Moppu.

Í kjölfarið skiptust liðin á að sækja og áttu ágætis færi, án þess að stór hætta skapaðist, það var svo á 65 mínútu að Moppan fékk aukaspyrnu á eigin vallarhelming og var boltinn sendur langt fram þar sem að jónas náði honum og sendi hann fyrir þar sem að Valdi átti skalla sem Himma tókst svo að pota yfir marklínuna! 4-2 fyrir Fc Moppu!

Fátt markvert gerðist eftir þetta, nema það að Ingvi markvörður Fc moppu var dæmdur rangstæður eftir glæsilegan sprett þvert yfir völlinn, og voru allir sammála um að það hefði verið mjög vafasamur dómur! Rc Collins voru merkilega lengi að koma boltanum í leik og slapp Ingvi aftur í markið áður en þeir voru búnir að átta sig á því að það var markvörðurinn sem var kominn í sóknina.... eða þá að Ingvi er svona geðveikt snöggur!

Ljómandi lélegur leikur af hálfu Moppunnar og kom Björn Freyr með ágætan frasa um leikstíl moppunnar "Moppan spilar eins og andstæðingurinn" En sigurinn var góður hvernig sem moppan spilaði og erum við komnir áfram í bikarnum!

Maður leiksins að öðrum ólöstuðum var Valdi stormsenter sem setti tvö, fiskaði víti og lagði svo upp síðasta markið!

Næsti leikur er ekki fyrr en 12. Júl. 19:30 - Vatnsberar-FC Moppa Tungubakkar (C)

kv. Lolli

Friday, June 23, 2006

Leikur á sunnudag!

Sælir Félagar!
Leikur næsta sunnudag í bikarnum! Fórnarlömbin að þessu sinni eru Fc Rollins sem verma botninn í sínum riðli! Leikurinn er kl. 21:00 á KR vellinum og er að vanda mæting hálftíma fyrir leik!

Látið vita með mætingu með kommenti hér undi!
kv. Lolli

Monday, June 19, 2006

Æfing á þriðjudag 20.06!

Fjölmennum á æfingu á þriðjudag!
Mæting kl. 21:15 á sparkvöllinn í safamýrinni!
staðfestið mætingu með kommenti hér fyrir neðan!
kv. Lolli

Fc Moppa 2-2 Kærastan hans Ara

Leikur hinna glötuðu tækifæra var leikinn síðdegis á sunnudeginum 18.júní. Mættir voru til Leiks Bjössi, Þorkell, Pálmi, Lolli, Rúnar, Ásgeir, Einar, Siggi, Siggi H., Ingvi, Kjarri, Alli, Maggi, Gústi og Teddi

Byrjunarliðið var þannig stillt upp, Einar í marki, Siggi H. og Gústi í bakvörðum, Kjarri og Siggi sem miðverðir, Teddi og Ásgeir á köntunum, Ingvi, Maggi og Þorkell á miðjunni og Bjössi einn frammi.

Því miður missti ég af fyrstu 15-20 mínútunum en þegar ég kom til leiks var staðan 0-0 og vorum við í ökumannssætinu og stjórnuðum leiknum lengst af. Færin voru ekki af verri endanum sem við klúðruðum, ásgeir átti skalla í stöng fyrir opnu marki snemma í leiknum!
Kærastan komst þó yfir eftir að þeir fengu aukaspyrnu á hægri kanti og sendu boltann fyrir þar sem að Einar varði en missti boltann þannig að þeim tókst að pota boltanum inn. 0-1 fyrir kærustinni gegn gangi leiksins!

Í kjölfarið þyngdist sókn moppumanna og fljótlega komst bjössi einn innfyrir en skaut naumlega framhjá einn á móti markmanni! Stuttu síðar fékk hann aftur boltann eftir stungu og í þetta skipti brást honum ekki bogalistin og smellti honum snyrtilega framhjá markmanninum og staðan orðin 1-1.

Í framhaldi af jöfnunarmarkinu jók moppan en sóknarþungan og klúður leiksins kom þegar Ingvi stóð einn fyrir framan markið og bombaði í slánna af svona 6 metra færi, nokkru síðar komst dvergurinn innfyrir einusinni enn og ætlaði að vippa yfir markmanninn en vippaði boltanum líka yfir markið! staðan í hálfleik var 1-1.

Seinni hálfleikur hófst á svipaðan hátt og fyrri hálfleikur endaði, með góðum sóknum frá moppunni! Þó vantaði herslumuninn á það að við næðum að klára sóknirnar, síðasta sending var stundum að klikka! Þó kom að því að ein slík tókst og náði Dvergurinn að hlaupa af sér alla vörnina og hlaupa upp fína stungusendingu og kláraði færið af yfirvegun! 2-1 fyrir moppunni og algjörlega verðskuldað!

Yfirburðir moppunnar voru nánast algjörir í seinni hálfleik en leikurinn fór nánast fram á vallahelming kærustunnar, en það fór nú samt svo að kærastan náði að jafna eftir skyndisókn og var útfærsla hennar með betra móti! 2-2 þegar 15 mínútur eru eftir! Moppan hélt áfram að sækja en átti fá almennileg færi eftir þetta, þó gaman að sjá Rúnar taka glæsilegt skot með vinstri þegar lítið var eftir!

Leikurinn endaði 2-2 og var það algjörlega óskiljanlegt. Hefðum átt að gera út um leikinn í fyrri hálfleik en gerðum okkur þetta óþarflega erfitt fyrir. Spiluðum á köflum ágætlega en náðum því miður ekki að klára þau færi sem við fengum!

Móment leiksins var þegar gústi var klobbaður á kantinum og skipti sjálfum sér útaf og kenndi skónum um allt saman!

Klúður leiksins eru tvö, 1. þegar einar missti boltann frá sér í markinu og þeir skoruðu og svo sláarskot Ingva af 6 metra færi! (endilega kjósið klúður leiksins með kommenti)

Annar er planið að halda æfingu á þriðjudag og mæta eftir leik, þ.e. 21:14:35 ca.

kv. Lolli

Saturday, June 17, 2006

Leikur á sunnudag!

sælir félagar!
Leikur á sunnudag, (18. júní) á fylkisvellinum kl. 18:00 mæting hálftíma fyrir leik!
Mótherjar eru Kærastan hans Ara látum þá nú finna fyrir því!
það er eins og venjulega tilkynningarskylda í kommentakerfinu hér undir!

kv. þjálfi

Wednesday, June 14, 2006

Helvítis leiknum er frestað fram á fimmtudag!

Sælir félagar leiknum er frestað um einn dag í viðbót og er þetta farið að verða frekar pirrandi!
Fékk email um það frá inga b í gær en þar sem verið er að setja upp tölvuna þá sá ég ekki póstinn fyrr en núna áðan!

Leikurinn er semsagt kl. 19:30 að því ég best veit á Tungubökkum annað kvöld (fimmtudag 15.06)

kv. Lolli!

Sama stuff með að melda sig þ.e. í commenta kerfinu!

Monday, June 12, 2006

ATH ATH Leiknum frestað fram á miðvikudag!ATH ATH

Sælir félagar, leiknum er frestað fram á miðvikudag sökum votviðris! látið þá vita sem ekki eru í póstsambandi yfir daginn!
Skráið ykkur í leikinn á miðvikudaginn hér fyrir neðan!
Fc moppa vs stormur miðvikudag 19:30 á tungubökkum!

LEIKNUM FRESTAÐ!!!!!

Sælir félagar!

3. umferð í deildinni er á miðvikudag og spilum við gegn stormi á Tungubakkavöllum!
mið 14. Jún. 19:30 - Stormur-FC Moppa Tungubakkar
Mætið með góða skapið, tækni og takkaskó!
Látið vita um mætingu hér í commentakerfinu, þ.e. hvort sem þið mætið eða ekki!

Að sjálfsögðu er mæting hálftíma fyrir leik svo að menn geti hitað vel upp með hornspyrnum að venju!
kv. Þjálfi

Wednesday, June 07, 2006

Æfing fimmtudag!

sökum frábærrar mætingar á síðustu æfingu ætlum við að halda aðra æfingu á morgun, fimmtudaginn 08.06.06. Sami staður, þ.e. sparkvöllurinn í safamýri og mætum að þessu sinni kl. 21:00!

Látið vita hvort þið komið með commenti hér fyrir neðan.

kv. Þjálfi!

Tuesday, June 06, 2006

æfing í kvöld

Í kvöld mun en ein tilraun til æfingar fara fram, mæting er kl. 20:00 á sparkvöllinn í safamýrinni og er mælst til að menn séu í klæðnaði sem henti til hlaupa og tuðrusparks!
framkvæmd æfingarinnar er ekki flókinn en gert er ráð fyrir því að spiluð verði svokölluð knattspyrna frá 20:03 og fram eftir kvöldi!
vinsamlegast meldið ykkur hér með commenti hvort þið komið í kvöld!

kv. þjálfi!