Árshátíð Fc Moppu
Jæja loksins er runnið af manni svo hægt sé að hripa niður á rafrænt blað það sem maður man frá árshátíðinni síðasta laugardag.
Jæja allavega það síðasta sem ég man var að spila púl við Jónas og svo er allt í niðamyrkri..... jæja kannski ekki alveg.
Byrjað var að hittast á Players þar sem menn gripu í ölkönnu og fengu sér jafnvel einhvern bita yfir stórskemmtilegum leik West Ham og Arsenal ásamt Chealsea og Aston Villa. Þegar leikirnir voru búnir var gripið í pool og uppúr 17:00 var brunað niður í Fífu og farið í Soft ball.
Spiluðu menn af miklum ákafa og var mikið deilt um reglur í soft ball og var dómarinn látinn heyra það óspart sem kemur nú ekki á óvart þegar Fc Moppa er annars vegar.
Að leik loknum var brunað sem leið lá í sundlaug Kópavogs þar sem að Doddi var búinn að redda okkur aðstöðu í heitu pottunum. Þar var setið í ca. klukkutíma og helstu mál samtímans krufin til mergja, t.d. hver gæti haldið lengst niðri í sér andanum, hver væri með fallegustu moppuna, hvort fishermann friend eða hot 'n' sweet væri betra og hvort að bjór myndi þynnast ef að dollan fylltist af pottavatni. Rökræður um hver væri í flottustu skýlunni fóru út um þúfur þegar Pálmi og Gústi mættu í eins skýlum og leiddust út í pott.
Þegar menn voru orðnir vel soðnir þá var stokkið uppúr og menn fóru í hátíðarbúning Fc Moppu (nema kjarri hann var í gallabuxum) sem samanstendur af jakkafötum og Mopputreyju.
Þegar menn voru búnir að ná áttum eftir soðninginn skelltu menn sér niður í Verkfræðihús þar sem búið var að redda litlum sal fyrir mat og verðlaunaafhendingu. Maturinn kom frá Fylgifiskum og var sérlega góður og fær Ingvi fjöður í sinn hatt fyrir að redda því og einnig fyrir að elda hann listilega vel við slæmar aðstæður. Eftir matinn var verðlaunaafhending sem fór óvenju vel fram að þessu sinni.
Eftirfarandi verðlaun voru í boði og mun ég reyna að upplýsa hver fékk hvað.
Besta Moppan: Bjarni vel að því kominn.
Besti markmaður: Einar Örugglega
Besti Varnarmaður: Benni
Besti miðjumaður: Ingvi
Besti sóknarmaður: Valdi? (man ekki alveg)
Ólöglegasti leikmaður: Jónas
Forlan ársins: ????
Van Basten ársins: Van Basten sjálfur sindra til mikillar mæðu og mér til mikillar undrunnar.
Besti drykkjufélaginn: ????
Mesti nöldrarinn: Ingvi "ÞÚ ert á síðasta séns" Jökull
Mesti Kallinn.is: hinn helmassaði Gústi
Mesti femin.is: ????
Moppufélagi ársins: Van Basten
Besti þjálfarinn: Van Basten
Besti leikarinn: ????
Grófasti leikmaðurinn: Siggi??
Prúðasti leikmaðurinn: ????
Mestu framfarir: ????
Endilega hjálpið mér nú að rifja upp þá sem fengu verðlaunin þar sem spurningarmerkin eru við.
Eftir verðlaunaafhendinguna var ákveðið að almennt fyllerí skyldi hefjast og var tekið duglega á því það sem eftir var kvölds, drukkið eins og það væri enginn morgundagur en þrátt fyrir það sást ekki högg á veigum, og þegar lagt var af stað í bæinn þá var helmingur veiganna eftir.
Menn ýmist röltu eða tóku leigubíl niður í bæ og hittust á Hressó þar sem svallið hélt áfram og uppúr því dreifðist mannskapurinn um bæinn.
Þetta var ljómandi fín árshátíð og er maður þegar kominn með hugann við næstu árshátíð að ári en þá verður moppan 10 ára gömul og verður hún haldin á 5 stjörnu hóteli í Barein þannig að byrjið að leggja fyrir.
Hér eru myndir frá árshátíðinni http://www.fcmoppa.photosite.com sem Pálmi tók.