Wednesday, October 04, 2006

Vetur komandi!

Sælir félagar!
Hvernig lýst mönnum á að taka æfingaleiki í vetur... 1-2 í mánuði!
Höfum nú sennilega bara nokkuð gott af því ef ég segi sjálfur frá... allavega hef ég gott af því!

kommentið hér undir hvernig ykkur líst á þetta!

kv. Lolli

Árshátíðarpistill

Loksins þegar þokunni í höfðinu er að létta, þá er liðið alltof langt frá árshátíð til að geta skrifað eitthvað almennilegt og krassandi um hana! Því verður stiklað á stóru og menn geta fyllt í eyðurnar þar sem við á!

- Einhverjir mættu á leik UBK vs ÍBK á kópavogsvelli og horfðu á blikana rúlla yfir keflvíkinga fyrstu bjórarnir drukknir
- Haldið í Keiluhöllina þar sem að bættist í hópinn og menn tóku keilu þar sem skot voru í verðlaun... sá sem tapaði drakk mest og sá sem vann minnst???? afhverju að verðlauna taparann.... skil ekki vinninginn! Drukkinn slatti af bjór og eitthvað var um að menn komu úr skápnum og drukku breezer!
- Skellt sér í sund á Loftleiðum.... Pálmi, Siggi og Gústi fengu lof fyrir samræmdan klæðaburð í lauginni... drukkinn bjór og skrílslæti hafin (jón, siggi, pálmi, valdi og gústi) Sindri villtist í búningaraðstöðunni og fannst sofandi á ljósabekki þar sem hann hafði gefist upp eftir að hafa ráfað um alla 20 fermetrana í 5 mínútur.... var fagur bleikur eftir veru sína þar!
- Vígsla nýs hátíðar- og keppnisbúnings Fc Moppu þar sem að eldri leikmenn héldu tölu..... eða héldu að þeir héldu tölu.... man það ekki gjörla.... og meiri bjór drukkinn ásamt viskey og tekið rækilega í nefið!
- Hátíðin var haldin í hátíðarsal Fc Moppu að Engjateig og beið þar dýrindis hlaðborð af ostum og vínberjum þar sem menn gátu gúffað í sig þessu staðgóða og kjarngóða fæði... og drukkið bjór!
- drukkinn bjór... og menn farnir að verða óskiljanlegir... Loftur mætir ber að ofan og Breezermenn klappa manna hæðst!
- verðlaunaafhending þar sem enginn sérstakur fékk eitthvað sérstakt... en sumir fengu verðlaunaskjöl... og aðrir bjór!
- Skrílslæti taka á sig nýja mynd og menn leggja mikið á sig til að vera til ófriðs og tekst vel upp!
- Haldið af stað í bæinn í einfaldri röð þar sem hver heldur í jakka mannsins fyrir framan sig... nema sá fyrsti... hann heldur dauðahaldi í bjór!
- Eftir maraþon kóngadans á leið niður í bæ rennur þoka á mig og ég man ekki meir... fyrr en ég vaknaði augnaháralaus með bleika moppu og drullusokk í hendinni í elliðárdalnum snemma á sunnudagsmorgni.... aftur, þannig að þetta hlýtur að hafa verið geðveikt gaman!

Þakka fyrir fína árshátíð!

kv. Lolli