Jæja þá er fyrsti sigur Moppunnar kominn í hús og verður ekki litið til baka. Áður en tímabilið hófst jósu getspakir sparkfræðingar úr brunnum knattvisku sinnar á Utandeildarspjallinu af miklum móð og þegar kom að því að lýsa kostum og göllum Moppunnar og spá fyrir um gengi stóð einungis: "FC Moppa,
gamlir og seinir."
Ég ætla ekki að draga neitt úr sannleiksgildi þessarar fullyrðingar þó síður sé. Það er aftur á móti gaman að rifja þetta upp því að það sem skóp að mínu mati sigurinn í kvöld var einmitt það að við spiluðum loksins eins og menn sem eru
gamlir og seinir. Þ.e.a.s. að við spiluðum boltanum vel og í stað þess að hafa einstefnu upp miðjan völlinn af einleikssprettum og tilvonandi draumasendingum þá spiluðum við grimmt til baka og þvert. Tókum okkur tíma og þreifuðum fyrir okkur ef ekki bauðst að senda hann fram. Einnig var toppmæting í fyrsta sinn í sumar en það er einnig það sem
gamlir og seinir eiga að gera, hafa nóg af skiptimönnum.
Þessir snillingar sem mættu voru Einar, Siggi G, Siggi H, Siggi M, Pálmi, Himmi, Palli, Maggi, Alli, Tommi, Höddi, Ingvi, Valdi, Binni og Kjarri, en það var haft á orði á bekknum að stóísk yfirvegun og ljúfmennska Kjartans hafi gefið liðinu alveg einstaklega fágað yfirbragð. En leikurinn spilaðist þannig að Melsteð hófu leik af meiri krafti en Moppumenn og höfðu yfirhöndina til að byrja með en Moppumenn unnu sig hægt og rólega inn í leikinn og lauk fyrri hálfleik án marka og nokkurt jafnræði með liðunum. Alli og Siggi M fengu góð færi fyrir hlé sem ekki nýttust. Moppumenn héldu svo áfram að sækja í sig veðrið í upphafi seinni hálfleiks og fór svo að eftir góða sókn hrökk boltinn fyrir fætur Magga í miðjum teignum og var hann ekkert að flækja málin og þrumaði honum í netið. Eftir markið duttu Moppumenn aðeins aftar en héldu áfram uppi fínu spili. Það var því helvíti blóðugt þegar Melsteð jafnaði leikinn eftir ágætan sprett upp hægri kantinn og virtust menn ekki alveg á tánum í vörninni. En Moppan er ólseig eins og 2 ára gamalt beef-jerky við stofuhita. Það var svarað að bragði og var markið ekki af ódýrari gerðinni. Enn á ný spiluðu Moppumenn boltanum vel á milli sín og var hann færður með hnitmiðuðum stuttum sendingum frá hægri til vinstri fyrir framan teig Melstæðinga og var að lokum rennt út til vinstra vítateigshornsins þar sem Albert gerði sér lítið fyrir og lyfti boltanum í tignarlegum boga yfir markmanninn og í slánna og inn! Alveg hreint stóglæsilegt mark og Moppan búinn að ná yfirhöndinni. Melsteð sóttu án afláts það sem eftir lifði leiks en Moppumenn vörðust fimlega en þó seinlega og átti Einar nokkrar flottar vörslur og sérstaklega þegar hann tókst á flug eins og tignarlegt bjarndýr og sló boltann aftur fyrir með ævintýralegum tilburðum. Melsteð hefðu getað fengið 2 vítaspyrnur en skeleggur dómari leiksins dæmdi réttilega ekkert. Allt í allt sanngjarn sigur og nú er bara að mæta jafn vel í þá leiki sem eftir eru og spila í takt við ástandið á liðinu, eins og við séum
gamlir og seinir.
Að lokum minni ég á Moppudaginn á laugardag þar sem verður farið í softball og grillað og svo partý! Skylda að allir Moppumenn nær og fjær mæti í það.
Gíraffinn, ekki bara langur, líka langyrtur!