Thursday, March 29, 2007

Æfingu aflýst vegna dræmrar mætingar!

Æfingin verður ekki í kvöld á sparkvellinum við Austurbæjarskóla kl 19 og lítur út fyrir að veðrið verði enn betra en það var fyrir viku. Því er margt til fyrirstöðu að mætingin verði jafnvel betri en þá.

Aflýst vegna dræmrar mætingar

kv. Lolli

Wednesday, March 28, 2007

Skuldunautar nær og fjær!

Sælir verið þið!
Þá er komið að hinum bráðvinsæla lið "Félagsgjöld". Í fyrra var rukkað 5000 kr. fyrir sumarið og var það engan veginn nóg fyrir þeim útgjöldum sem moppan stóð í og því var stöðugt verið að kroppa af mönnum allt sumarið! Við viljum koma í veg fyrir það og ætlum því að hafa Félagsgjaldið 10.000 kr. þetta árið sem greiðast skal sem fyrst, best væri að fá 5000 kr. strax og vera búnir að borga allt gjaldið í maí!

Leggja skal inn á eftirfarandi reikning og setja nafn í skýringu!
526-15-008932, kt:100775-3449

Björn Freyr er að vinna að gríðargóðri og spennandi fundargerð frá fundinum góða hjá Ingva og hlakkar okkur öllum til að lesa þann pistil! (engin pressa bjössi)

kv. Lolli

Tuesday, March 27, 2007

Fc Moppa 0 - 5 Vatnaliljurnar

Ekki var þetta nú glæsileg frammistaða hjá Fc moppu í sínum öðrum æfingaleik tímabilsins! Greinilegt að æfingin síðasta fimmtudag hefur setið í mönnum og þá sérstaklega þeim sem ekki mættu á hana.
Þeir sem sáu sér fært að mæta voru Teddi, Ingvi, Valdi, Ásgeir, Rúnar, Palli, Himmi, Gústi, Siggi, Kjarri, Bjössi, Alli, Maggi, Doddi, Tommi, Doddi, maggi og Andreas s.s. 18 manns!

Byrjunarliðið var þannig sett upp að Bjössi byrjaði í marki, Himmi og Siggi í hafsentinum, Gústi og Kjarri sem bakverðir. Á miðjunni voru Rúnar, Maggi og Palli og svo Ásgeir og Teddi á köntunum. Frammi var Doddi einn.

Leikurinn var nú ekki mikið augnayndi og lítið af færum litu dagsljósið. Mikið var um skiptingar og var öllu liðinu skipt út og inn! Fyrsta markið kom í seinni hluta fyrri hálfleik þar sem að sóknarmaður Vatnaliljanna náði frákasti og skoraði með föstu skoti sem Bjössi átti ekki mikinn möguleika á að verja. Hinu meginn komust bræðurnir tveir Ingvi og Valdi í ágæt færi en tókst ekki að skora og Andreas átti ágætann skalla sem var varinn. Að öðru leyti var ekki mikið að gerast fyrir utan örar skiptingar.

Hápunktur hálfleiksins var þegar Andreas tók innkast við vítateigshorn Vatnaliljanna og henti inná miðjann teig við tilheyrandi andkafir frá bekknum!

Seinni hálfleikur verður sennilega fyrst og fremst minnst fyrir 4 agaleg mörk og lélegann leik Fc Moppu.
Af einhverjum völdum þá myndaðist ekkert spil menn voru ekki að bjóða sig og var hálfleikurinn hrein hörmung.

Það góða við þennan leik að sennilega verður þetta ekki lélegra.

Það verður æfing á fimmtudag kl. 19:00 á sparkvellinum hjá AUSTURBÆJARSKÓLA fjölmennum þangað!

kv. Lolli

Friday, March 23, 2007

Leikur á mánudaginn!!!

Sælir félagar,

Þá er komið að öðrum æfingaleik tímabilsins og fer hann fram á mánudaginn 26. mars á Leiknisvelli í Ghettoinu. Mæting er kl 21.20 og hefst leikurinn kl. 21.45. Leikið verður gegn Vatnaliljunum.

Við þurfum að greiða okkar hlut í vellinum og eiga allir að koma með 1000 íslenskar krónur.

Góð mæting var á æfingu á fimmtudaginn en ljóst er að formið krefst þess að við mætum vel í leiki og getum dregið andvana menn útaf til skiptinga.

Eins og rætt var að aðalfundi Moppunnar höfum við þetta þannig að allir melda sig í commentum og láta vita hvort þeir komist eður ei.

Ossokomaso!

Töff!!!

Thursday, March 22, 2007

Æfing

Kommensiesælir

Æfing í kvöld á sparkvellinum hjá Fram kl.19!!!

Allir að mæta, menn og mýs. Láta vita í kommentum hvort þið mætið.

Fregnir frá Aðalfundi Moppunar koma svo innan bráðar.

Kv,
Stjórnin

Monday, March 19, 2007

Aðalfundur Fc Moppu

Það er komið að því!

Aðalfundur Fc Moppu verður haldin annað kvöld þriðjudaginn 20. mars að Selbrekku 32 (hjá Ingva) kl. 21:00

Þar verður farið yfir komandi leiktíð og rædd leikmannamál, gjald og markmið sumarsins!

Að sjálfsögðu er skyldumæting!

Lifið heilir og hálfir.

Wednesday, March 14, 2007

Aðalfundur

Lengsti maður liðsins fór á aðalfund Utandeildarinnar í gærkveldi og lagði við hlustir, þetta er það sem hann heyrði:

Keppnisgjald þetta árið verður hækkað úr 95k í 105-110k - í sjálfu sér eðlileg hækkun miðað við verð á rafknúnum nuddpottum.

Spilað verður á gervigrasvöllum Fram, KR, Fylkis og Hauka, reyndar verð þeir 3 fyrstnefndu teknir upp til viðgerða í sumar þannig að verið er að reyna að redda tímum hjá Leikni og ÍR. Stefnan er að hafa sem flesta leiki á virkum dögum en ljóst er að einhverjir leikir munu koma upp á sunnudögum.

Liðin sem taka þátt verða 30-33, verður því skipt í 3 riðla og líklegt er að einnig verði deildarskipt þannig að 1 riðill verði neðri deild. Skiptingin myndi fara eftir stöðu liða seinustu ár auk þess sem ný lið byrja í neðri deild - þetta þýðir að FC Moppa myndi örugglega spila í efri deild enda talið eitt af sterkari liðum deildarinnar, þegar leikmenn mæta alla vega......

Fleira markvert kom í sjálfu sér ekki fram, nema hvað að staðfestingagjald liða skal greiðast seinna í marsmánuði að upphæð 25.000kr, restin (80.000-85.000kr.) borgast síðan í apríl ef mig misminnir ekki. Því er lag að fara að safna pjéningum til greiðslu þessara gjalda. Ekki veit hversu digrir sjóðir Moppunnar eru þessa dagana og forvitinn er ég um það hvort við fáum einhverja styrki? Einnig þarf að fara fram ítarlegt manntal.

Við þetta tækifæri er rétt að minna á Aðalfund Moppunnar sem haldin verður í Ingvheimum miðvikudaginn 21. mars. Á þann fund er að sjálfsögðu skyldumæting og þeir sem ekki mæta mega búast við því að skipa árshátíðarnefnd næstu 5 árin! Þetta er gott tækifæri til að hrista hópinn saman fyrir sumarið og rifja upp gamlar sögur sem kynda undir óbilandi Moppuáhugann.

"Manstu þegar Loftur lokaði markinu?" "Já hahaha, hver getur gleymt því, hann var nú meiri grallaraspóinn, hahaha, ég sakna hans" 'faðmlag'

Nei kannski fullgay, en alla vega allir að mæta.


PS. Æfingu í kvöld hefur verið frestað, hún hefur verið færð á fimmtudaginn 22. mars kl 19

Monday, March 12, 2007

Leikur laugardaginn 17. mars kl. 16 - AFLÝST!!!

LEIKNUM HEFUR VERIÐ AFLÝST VEGNA VEÐURS!!!

Á laugardaginn verður annar liður í upphitunartímabili Moppunar og munum við að öllum líkindum etja kappi við lið FC Ice, sem náðu svipuðum árangri og við í B riðli seinasta sumar. Kappið verður att á gervigrasvelli Framara í safamýrinni og þurfa menn að taka með sér 1000kr fyrir vellinum og dómara. Stefnan er að taka svo gott upphitunartímabil að við þurfum aldrei að hita upp fyrir leiki í sumar enda eru það bara kellingar og atvinnumenn sem hita upp.

Æfingunni á miðvikudaginn 14. mars hefur verið frestað til fimmtudagsins 22. mars, sjá í næsta pósti. Til þess að við séum nú með nægilegan mannskap í sumar og komust upp með að vera ekki í toppformi skulum við taka með okkur hverja pilta sem teljum geta nýst okkur á knattspyrnuvellinum, bæði á æfinguna og í leikinn.

Endilega meldið ykkur hér fyrir neðan, gefið hugsanlegan spilastatus á ykkur í sumar eða kastið fram fyrriparti. Ekki væri verra ef menn myndu láta vita hvort þeir komist á aðalfund Moppunnar á miðvikudaginn 21. mars. Fundarstaður er ekki kominn á hreint.

Muna eftir 1000kallinum á laugardaginn.

Eftirtaldir hafa boðað komu sína í leikinn:

Palli, Siggi, Teddi, Ásgeir, Bjarni, Maggi, Himmi, Steini (miniLoftur), 2 x Þjóðverjar, 1 x noobie á vegum Palla, 1 x ekvadorbúi,

Enn er beðið með spenningi eftir svörum frá Tommdodd, Valda, Rúnari og Kjarra þannig að þetta lítur allt mjög vel út.

Enn vantar nokkra þannig að gott væri ef menn töluðu við þá sem ekki hafa svarað og tékka á þeim, enn fremur vil ég ítreka að menn mega endilega taka með sér leikmenn sem gætu nýst Moppunni í sumar.