Monday, February 12, 2007

Fc Moppa 1-3 Marshall/Kumho rovers

Fyrsti æfingaleikur tímabilsins búinn og einkenndist af tveimur mismunandi hálfleikjum!
Unnum fyrrihálfleik mjög sannfærandi 1-0 þar sem að teddi átti sendingu fyrir sem að Palli kom í markið! Vel af verki staðið eins og reyndar megnið af fyrri hálfleik! Náðum á köflum mjög góðu spili sem skapaði færi og menn lögðu sig fram!
Seinni hálfleikur var algjör andstæða.... þrekið alveg búið hjá megninu af liðinu og fengum á okkur 3 frekar ódýr mörk og vorum í sjálfu sér heppnir að fá ekki fleirri á okkur!
Það sem var líka frekar dapurt var mætingin, vorum aðeins 13 og því margir að spila megnið af leiktímanum!
Þeir sem mættu voru Lolli, Bjössi, Kjarri, Ingvi, Valdi, Maggi, Siggi, Ásgeir, Gummi, Himmi, Palli, Teddi og Doddi! byrjunarliðið var Bjössi í marki, lolli og kjarri í bakverðinum, himmi og siggi í miðverði, ásgeir og teddi á köntunum, palli, doddi og ingvi á miðjunni og gummi frammi!

En fyrri hálfleikur var bara nokkuð góður og því hægt að taka heilmikið úr honum!

Ef þið vitið um einhver lið sem eru til í æfingaleiki þá endilega hafið samband við þau og reynið að fá æfingaleiki... okkur veitir ekki af því!

þið sem mættuð ekki með pening endilega leggið 1000 kr. inná 526-15-008932, kt:100775-3449

svo er stefnt á fund fljótlega til að huga að komandi tímabili!


Kv. Lolli

Wednesday, February 07, 2007

æfingaleikur laugardaginn 11 febrúar!!!

Sælir félagar... er ekki réttast að fara að týna fram legghlífar og bursta skónna fyrir komandi tímabil!
Talaði við stjórnarformann Kumho Rovers og eru þeir með framvöllinn á laugardögum kl. 17:30 og mældum við okkur mót næstkomandi laugardag kl. 17:30... þ.e. leikurinn byrjar þá!
endilega meldið ykkur hér undir í kommenta kerfinu svo að við sjáum hver mannskapurinn er!
Mætið með 1000 kr. fyrir vallargjaldi!

Mæting að sjálfsögðu 30 mínútum fyrir leik!

kv. Lolli