Thursday, March 27, 2008

Staðfestingargjald!

Sælir félagar!

Hér kemur hin sívinsæli póstur sem lítur að peningum og útgjöldum!
Nú er svo komið að við erum búnir að skrá okkur í þessa blessuðu utandeild enn eitt árið (enn einn moppusigur) og því fylgir náttúrulega peningaútlát. Á aðalfundi Fc Moppu fyrr í vetur var tekin ákvörðun um það að hafa árgjaldið 10.000 kr. eins og í fyrra og fer það í mótsgjald og annan kostnað sem fylgir utandeildinni!
Nú þarf að borga staðfestingargjald fyrir 2. Apríl og því ekki seinna vænna að rukka þetta inn!

Staðfestingargjaldið er 25.000 kr. en heildargjaldið er 110.000 kr. og á að borgast 15. Apríl þannig að hóstið nú upp þessum 10.000 kr. og leggið inná moppureikninginn 526-15-8932, kt:100775-3449

Kv. Lolli

Tuesday, March 25, 2008

Æfing á fimmtudaginn

Sælir félagar, við höldum áfram undirbúningstímabilinu með sól í hjarta. Æfing verður haldin líkt og fyrri vikur á fimmtudaginn 27. mars, kl. 21 á sparkvellinum í Safamýri.

Meldið vinsamlegast mætingu hér að neðan eftir bestu samvisku. Mætingin hefur verið að braggast seinustu vikur og ef það verður fjölmennt á fimmtudaginn förum við að skoða það að taka æfingaleik.

kv,

Tuesday, March 18, 2008

Æfingar um páskana

Sælir félagar,

Það verða tvær æfingar um páskana.

Fimmtudaginn (skírdag) 20. mars, kl. 21, sparkvellinum í Safamýrinni.

og

Mánudaginn (annan í p.) 24. mars, kl 18.30 í Sporthúsinu.

Við fengum þennan eina tíma í Sporthúsinu og það er mikilvægt að menn mæti á réttum tíma þangað þar sem hann er bara klukkutími.

kv,

Monday, March 10, 2008

Moppuvika

Já það verður mikið um dýrðir í þessari viku í starfsemi Moppunnar. Þriðja æfing sumarsins verður á fimmtudaginn kl. 21 á sparkvellinum við Fram og er nokkuð ljóst að það verður margt um manninn, meldið mætingu hér að neðan.

Síðan að máli málanna en það er fyrsta Moppupartý sumarsins! Verður það haldið heima hjá Jónasi á laugardaginn 15. mars og er verið að tala um að ófáir fjölskyldufeðurnir muni nota tækifærið og taka á því í góðum félagsskap. Mætum allir sem einn á laugardaginn og rifjum upp stemmarann frá árshátíðinni og berjum saman hópinn fyrir sumarið. Hilmar verður með stutta ræðu um hvers lags fólk hann vill í þetta lið og Sindri ætlar að mæta og kynna nýju bókina sína: "Þúsund meiddir ökklar". Annars eru enn laust pláss fyrir skemmtiatriði en hugmyndin einfaldlega að fá sér í glas saman og rifja upp gamla Moppustemmarann.

Líst mönnum ekki bara vel á að taka gott Moppupartý? Látið í ykkur heyra hér í commentum.

kv, "Stjórnin"

Tuesday, March 04, 2008

Aðalfundur utandeildarinnar!!!

Aðalfundur Egils-gull deildarinnar 2008 verður haldinn fimmtudaginn 6. mars kl. 20:00 á Kringlukránni.

Við hvetjum forsvarsmenn liðanna til að mæta. Eins er gott fyrir þau lið sem hafa hugsað sér að taka þátt í deildinni í 1. skipti að mæta og kynna sér fyrirkomulag deildarinnar.

Formleg skráning í keppni í sumar verður á fundinum.

Kv,Stjórn

Ps. Ef einhverjum langar að kíkja á fundinn þá endilega látið vita, á sjálfur bágt með það!

kv. Lolli

Monday, March 03, 2008

Æfing, fimmtudaginn 6. mars kl 21.

Sælir félagar, fyrsta æfing sumarsins seinasta fimmtudag var bráðskemmtileg og um að gera að endurtaka leikinn. Því er hér með boðað til æfingar fimmtudaginn 6. mars, kl. 21 á sparkvellinum við Fram.

Meldum okkur inn hér að neðan og spurning hvort menn tækju þennan tíma bara frá næstu vikurnar fyrir Moppuna. Langbest er ef menn láti vita hvort þeir komist eða ekki. Ef menn reyna, stefna eða vona að þeir komist þá er best að bíða bara þangað til það er orðið ljóst áður en menn melda sig. Það voru sex sem mættu síðastliðinn fimmtudag og skemmtu sér vægast sagt vel við knattiðkun, við stefnum ótrauðir á að ná 10 manns á fimmtudaginn.