Monday, April 30, 2007

Æfing á morgun 1. maí

Sælir félagar, það viðrar vel til æfinga þessa dagana!
Hvað er betra en léttur fótbolti til að hita sig upp fyrir meistaradeildina annað kvöld!
Hittumst allir sem einn (allavega 8) á sparkvellinum við austurbæjarskóla kl. 16:45 á morgun 1. maí, strax eftir kröfugönguna!
og muna eftir að gefa svar hér í commentakerfinu!
og muna eftir að borga borga borga!

kv. Stjórnin!

Friday, April 20, 2007

Fc moppa 2 - 3 vatnsberar/Fc Moppa 3-2 Fc Dragon

Á sunnudaginn 15. apríl áttust Fc moppa og Vatnsberarnir við á Framvellinum í hörkuspennandi leik!
Vatnsberar komust í 1-0 eftir sendingu fyrir markið! Tommi jafnaði í 1-1 fljótlega með því að verða á undan markmanninum í boltan og vippa honum yfir og skora svo í autt markið! Í seinni hálfleik komust svo Vatnsberar einir innfyrir og skoruðu hjá fyrnasterkum markmanni Fc moppu! 2-1
Skömmu seinna náði moppan að jafna aftur og var þar að verki Ketill ,sem kemur ferskur inn eftir góða hvíld í vetur, eftir góða pressu á markmanninn! 2-2
Nánast strax í kjölfarið fengu Vatnsberar góða sókn sem endaði með marki þar sem hin geysi sterki markvörður moppunnar kom engum vörnum við og við það sat!
Leikurinn var þó býsna góður og hefði sennilega jafntefli verið sanngjarnt og átti Fc Moppa fullt af færum sem ekki náðust að klára! Leikur moppunnar er því allur að koma til!

Á sumardaginn fyrsta 19. apríl tók Fc Moppa á móti Fc Dragon á gerfigrasinu í Safamýrinni! Leikurinn hófst stundvíslega kl. 15:00 og vorum 14 moppumenn mættir til leiks. rætt var um að sennilega væri skynsamlegast að fá eldri lið til að spila við okkur næst til að minnka óþörf hlaup á eftir einhverjum stráklingum! Reyndin í þessum leik var nú engu að síður önnur! eins og úrslitin gefa til kynna! Snemma í fyrrihálfleik varð Gústi fyrir þeirri ólukku að þruma einn andstæðinginn niður inní teig og var samstundis dæmd vítaspyrna, sem Dragon skoraði örugglega úr! 0-1
Fljótlega eftir það renndi Gústi sér í bolta og tók ásamt boltanum mótherjann og Sigga niður í einni fallegri tæklingu! Mótherjinn var eitthvað ósáttur og réðist á Sigga greyið, sem var sakleysið uppmálað, og byrjaði að ýta honum og reyndi að skalla hann sem endaði með því að honum var snarlega vísað af velli fyrir óprúðmannlega framkomu í garð Sigga! Sá var útilokaður frá leiknum en nýr maður fékk að koma í hans stað! Staðan í hálfleik var 1-0 fyrir Fc Dragon.
Snemma í seinnihálfleik jafnaði Alli metin með góðu marki, ég stóð í marki og veit því ekki meir með stoðsendingar né nokkuð annað! Um miðjan síðari hálfleik kom mark leiksins! Loftur fékk sendingu í vinstri bakverði, sendi inná miðjuna þar sem boltinn gekk á milli manna með einni snertingu þanngað til að boltinn barst til Magga sem skoraði glæsilega upp í hægrahornið 2-1
Stuttu síðar fengu Fc Dragon horn og uppúr henni skoruðu þeir jöfnunarmark... sem skrifast á slæma dekkningu! 2-2
þegar 10 mínútur voru til leiksloka náði Fc Moppa að komast yfir aftur með marki frá Magga sem að sama skapi ég hreinlega sá ekki nógu vel (lýsing yrði vel þegin)! 3-2
Í lokin náði annar dragon maður sér í reisupassa fyrir að ætla að reyna að berja Ingva en að sama skapi var hann bara útilokaður frá leiknum en annar maður kom í hans stað inná völlinn!

Leikurinn var í heild ágætlega spilaður og er mikill stígandi í liðinu og vonandi er þetta það sem koma skal í sumar!
Pálmi var sennilega maður leiksins, mætti svo þunnur að menn fengu höfuðverk bara á að horfa á hann! Þá áttu Alli og Maggi góðan leik og skoruðu öll mörk moppunnar!

Stefnan er að taka æfingaleik í næstu viku og eru ábendingar um lið og velli vel þegnar.

Tuesday, April 17, 2007

Leikur á sumardaginn fyrsta

Leikur við FC Dragon á Framvelli 19. apríl kl. 15, mæting 14.30

Melda takk!

Monday, April 16, 2007

Til Hamingju Pálmi!!!

Moppan eignaðist í kvöld enn einn Íslandsmeistarann þegar Pálmi "Chazz" Sigurgeirsson bar KR liðið á herðum sér í 4. leiknum gegn Njarðvík í DHL höllinni. Stórglæsilegt framtak hjá Strútnum að kippa dollunni af Suðurnesjunum og í Vesturbæinn. Moppan óskar nýkrýndum Íslandsmeistaranum hjartanlega til hamingju með titilinn!

Strúturinn er enginn Slobodan!

Wednesday, April 11, 2007

Leikur við Vatnsberana

Sælir félagar!

Á sunnudaginn næstkomandi (15.04.07) verður æfingaleikur við Vatnsberana.
Leikurinn fer fram á Framvellinum og hefst kl. 18:00 og er því mæting 30 mínútum fyrir leik eins og venjulega!
Reynum nú að vera duglegir að mæta og tökum þessa pappakassa!

Látið vita með mætingu hér í kommentakerfinu!

kv. Stjórnin

ps. Var smá vitleysa í gangi hjá mér.. ruglaðist á vatnanöfnunum vatnsberar og vatnaliljurnar og var með skráðann vitlausann tíma á þetta líka.. færist fram um 30 mín. biðst velvirðingar á þessu.. allt límsniffið þegar ég var yngri hefur áhrif á mig...!!

Monday, April 02, 2007

Æfing á fimmtudaginn kl. 21.15

Athugið að tímanum hefur verið breytt, ástæðan er að margir munu fara og berja strútinn augum í DHL höllinni. Við biðjumst velvirðingar á trufluninni en þetta er eingöngu gert til að sem flestir geti mætt!

Á fimmtudaginn 5. apríl verður æfing á sparkvellinum við Austurbæjarskóla kl. 21.15!!!

Melda mætingu takk!

Reynum nú að sýna smá áhuga og búa til tíma til að mæta.