Tuesday, May 31, 2005

Fc Moppa 2-3 Melsteð

Annar leikur tímabilsins á enda og sem fyrr erum við undirmannaðair. Það er undarlegt að menn geti ekki lagt örlítið á sig fyrir leiki, menn annaðhvort mæta ekki eða mæta seint, betra seint en ekki! Þegar 5 mínútur voru í leik vorum við 9 og góð ráð dýr, mönnum var reddað á síðustu mínútum og byrjuðum við 10, þá kom bróðir hans Einars og bjargaði okkur og svo mætti Ingvi og svo kom Helgi Idol og í hálfleik bættust svo við Valdi og Gunni Freyr.
Þeir sem mættu í leikinn voru Einar Örugglega, Lolli, Benni, Kjarri, Loftur, Palli, Tommi, Jónas og Bjössi, Ingvi mætti seint og svo Gunni og Valdi í hálfleik. Byrjunarliðið var Einar í marki, Kjarri og Benni í miðverðinum, Lolli og ????? í bakverðinum. Palli og Jónas á köntunum, Tommi og Bjössi á miðjunni og Loftur frammi.

Við byrjuðum leikinn mjög varnarsinnaðir og leyfðum þeim að sækja af kappi en vörðumst sæmilega og það var ekki fyrr en við vorum orðnir 11 að þeir skoruðu, eftir sendingu frá hægri inní teig þar sem sóknarmaður lagði hann í netið. 0-1 þegar 25 mínútur voru liðnar af leiknum. Við áttum ágætis sóknir en vorum einhvernveginn með það á heilanum að við værum of fáir og því áttum við ekki mörg færi. Stuttu fyrir hálfleik fengu Melsteð sókn sem þeir kláruðu ágætlega. 0-2 í hálfleik.

Í seinni hálfleik var annað uppá teningnum, þá fyrst fóru menn að berjast og áttu fín skot á markið sem þrusugóður markmaður Melsteð varði oft á ótrúlegan hátt. Þegar 10 mínútur voru liðnar af leiknum fengum við hornspyrnu sem Palli náði að skora úr með skalla. Stórglæsilegt mark og við þetta færðumst við allir í aukan og ætluðum aldeilis að vinna leikinn. 1-2 fyrir Melsteð. Stuttu síðar svöruðu Melsteð þar sem framherji þeirra tók boltann inní teig og renndi honum framhjá Einari í markinu. 1-3 fyrir Melsteð.

Eftir þetta sóttum við án afláts og enn sem fyrr var það markmaður Melsteð sem hirti allt sem á markið kom. Þegar ca. 5 mínútur voru eftir náði Gunni að skora með ágætu skoti 2-3 fyrir Melsteð.

Var nú allt kapp lagt í sóknina og var Einar örugglega orðinn fremsti maður trekk í trekk og gerði mikinn usla í vörn andstæðingsins. Þegar tíminn var að renna út fengum við aukaspyrnu rétt utan við teig hægra megin, Valdi tók skot sem markmaðurinn varði en boltinn barst út í teig hægra meginn þar sem Lolli var í frábæru færi en hamraði boltanum snyrtilega með sköflungnum yfir markið. Stuttu síðar var flautað af, niðurstaðan 2-3 fyrir Melsteð.

Fyrir mína parta þá var ég of lengi að hugsa um það hvað við vorum fáir og er það ekki alveg rétti hugsunargangurinn fyrir leikinn, því við vorum síst lakari aðilinn í leiknum. Sér í lagi var seinni hálfleikurinn góður og sóttum við hart að þeim og með smá heppni hefðum við getað jafnað leikinn eða jafnvel stolið sigrinum.

Verð þó að segja að mér finnst það alveg sérlega leiðinlegt að vera alltaf of fáir, þetta er farið að há okkur verulega og ef við gætum í það minnsta stillt upp svipuðu liði leik eftir leik þá væri það strax framför.

Þá er vert að nefna að við erum að borga 5000 kr. fyrir æfingar á fimmtudögum og því er ekki verra ef menn mæti á þær. Ef mætingin verður á svipuðum nótum næstu tvær vikurnar þá verður þessum æfingatíma sagt upp. Við mættum 6 á síðustu æfingu og 9 þar á undan. Við erum 30 skráðir til leiks og ættum að geta séð okkur fært að mæta á æfingu einu sinni í viku!
Æfingin er sem fyrr kl. 21:00 á fimmtudaginn og vil ég sjá sem flesta þar.

Kv. Van Basten

Tuesday, May 24, 2005

Æfing á fimmtudag

Sælir félagar! Ætla að minna á æfinguna á fimmtudaginn á Framvellinum og hefst hún kl. 21:00 og stendur til 22:00.
Nú er um að gera að mæta þar sem að það er leikur á sunnudag gegn Melsted.
Melsted var með æfingar á móti okkur á miðvikudögum og tókum við leik við þá á einni æfingunni og voru þeir býsna sprækir. Þannig að það er best að girða sig í brók og taka vel á móti þeim á Fylkisvellinum á sunnudag.

Nú er spurning hversu lengi við viljum halda þessum tímum á fimmtudögum í sumar, er það út, ágúst, eða september, endilega kommentið á það hér að neðan.
Svo tökum við endanlega ákvörðun á æfingunni á fimmtudaginn.

Búið er að festa búningana og eru þeir á leiðinni og verða komnir heim ca. 3. júní þannig að við ættum að geta notað þá í 3 leik tímabilsins.

Þá er einning búið að skrá leikmenn inná www.gras.is/utandeild þannig að þetta er allt að bresta á.

Mætum nú sem flestir á fimmtudaginn og tökum vel á því, endilega látið vita með mætingu með sms til jóns 840 4352 eða í kommenti hér undir.

Kv. Van Basten

Tuesday, May 17, 2005

Fc Moppa 3-3 Fc Fame

Fyrsti leikur Fc Moppu í Utandeildarinnar 2005 fór fram í Fífunni í Kópavoginum mánudaginn 16. maí kl. 18:30. Mótherjinn var Fc Fame sem gerði sér lítið fyrir og vann Fc Moppu 11-1 í deildinni 2004. Það var nú ekki það sama uppá teningnum þetta árið þar sem að leikar enduðu 3-3 eftir harðann leik þar sem Fc Fame náði að jafna nánast í síðustu spyrnu leiksins. Ekki byrjar mótið þó vel hvað varðar mætingu þar sem aðeins 14 sáu sér fært að mæta sem er engan veginn nægjanleg þátttaka í leikjum. Byrjunarliðið var þannig skipað, Loftur í marki, Benni og Pálmi í miðverðinum, Kjarri og Siggi í bakverðinum. Á miðjunni voru Jónas og Arnar og Gunni og Jón Emil á köntunum. Frami voru svo Palli og Gústi. Bekkinn vermdu svo Pétur Óli, Bjarni og Teddi.

Leikurinn byrjaði ágætlega og voru Moppumen ákveðnari í byrjun og börðust um alla bolta en þó náði Fc Fame skoti á markið á upphafsmínútunum sem Loftur sló yfir. Barátta Moppunnar skilaði sér í fínu marki á 5. mínútu fyrri hálfleiks þar sem að Benni hreinsaði úr vörn og Palli var snöggur sem elding að ná boltanum og setti hann glæsilega í netið. Frábær byrjun hjá Fc Moppu og jókst sjálftraustið við markið og héldu menn áfram að vinna boltann á miðjunni og vörnin var mjög traust sem sýndi sig best í því að Loftur hafði mjög náðugan dag í markinu í fyrri hálfleik. þegar rétt um 10 mínútur voru liðnar af leiknum kom sending inná markteig moppunnar sem Pálmi hreinsaði af alkunnri snilld fram völlin þar sem að Gústi lagði boltann á Jónas sem tók á sprett frá miðju lék snyrtilega á varnarmann og lagði boltann svo fallega undir markmanninum, staðan orðin 2-0 eftir 10 mínútna leik. Eftir markið fóru Fc Fame að sækja meira án þess þó að skapa sér nein sérstök færi og vörnin hirti sem fyrr flesta bolta sem komu inní teig og þá sem vörnin missti hirti Loftur örugglega úr loftinu. Fc Fame átti tvö skot á markið í fyrri hálfleik sem gætu talist sem ágætis færi og varði Loftur þau bæði. Á lokamínútum fyrri hálfleiks kom löng sending fram sem að Gústi skallaði í stöng og náði svo frákastinu og setti hann inn úr þröngu færi, og kórónaði þar með fínan fyrrihálfleik Moppunnar og góðan leik hjá sér. Staðan orðin 3-0 og fyrrihálfleikur að klárast.
Í hálfleik voru menn ansi borubrattir og voru spenntir fyrir seinni hálfleik.

Seinni hálfleikur byrjaði á svipuðum nótum og sá fyrri þ.e. mikil barátta og þar sem nokkuð jafnt var á með liðunum. Þegar u.þ.b.10 mínútur voru liðnar af leiknum varð Siggi fyrir því óláni að fá boltann í hendina innan teig og var því umsvifalaust dæmt víti. Fc Fame skoraði örugglega úr vítinu og minkuðu muninn í 3-1. Eftir þetta mark riðlaðist leikur Moppunnar nokkuð og var eins og sjálfstraustið sem einkenndi fyrri hálfleik hafi runnið af mönnum og menn voru að mestu í því að reyna að verja forskotið. Þetta gerði það að verkum að Fc Fame hafði mikla yfirburði í síðari hálfleik, án þess þó að eiga nein sérstaklega hættuleg færi. Þegar ca. 10 mínútur voru eftir áttu Fame undarlegt skot á markið sem skoppaði yfir Gunna og í átt að markinu en Gunni náði boltanum áður en hann fór yfir marklínu en dómarinn dæmdi mark. Dómarinn var í engri aðstöðu til að sjá hvort að boltinn fór yfir marklínu eða ekki og verður þetta að teljast mjög undarlegur dómur. En þarna féll vafinn fyrir sókninni en ekki vörninni, sem var helvíti skítt. Staðan því orðin 3-2 og 10 mínútur eftir. Ekki minnkaði sókn Fc Fame við þetta og þegar Moppan hélt að hún væri að innbyrða sigur í sínum fyrsta leik á mótinu þá skoruðu Fc Fame eftir klafs í teignum. Fc Moppa tók miðju og náðu einni sókn og svo var flautað af.

Seinni hálfleikur var algjör andstæða þess fyrri þar sem að Fc Moppa var öryggið uppmálað og áttu ekki í neinum vandræðum hvar sem var á vellinum yfir í seinni hálfleik þar sem við vorum á köflum yfirspilaðir og áttum í mesta basli að halda boltanum. Í seinni hálfleik áttum við 2-3 færi, það besta þegar Pálmi skallaði boltann að marki og markmaðurinn varði glæsilega í stöng.
Það sem ég held að hafi gert útslagið var að menn voru orðnir þreyttir og þar að auki var erfitt að halda mönnum í réttum stöðum á vellinum vegna þess að varamenn voru fáir og því þurftu menn oft að spila í stöðum sem þeir eru ekki vanir að spila. Þetta riðlaði spilinu mjög mikið sem var býsna gott í fyrri hálfleik. Þetta er að sjálfsögðu mín skoðun sem áhorfanda og því væri ekki verra að fá comment frá leikmönnum hér fyrir neðan.

Í fyrri hálfleik fannst mér menn vera að spila í heildina séð mjög vel og var mjög gaman að sjá að Gústi og Palli voru að spila mjög vel sem framherjar og er það ágætt að hafa þá sem valmöguleika frammi. Og þá náðu Arnar og Jónas vel saman á miðjunni.
Í seinni hálfleik var eins og áður segir mikið óöryggi í liðinu og einnig þessi tilhneiging til að verja fenginn hlut og var það okkar banabiti.

Dómgæslan er svo allt annar handleggur, ekki beint til að hrópa húrra fyrir og hallaði talsvert á okkur. Það var tekin af okkur vítaspyrna þar sem að Palli var klárlega rifinn niður í teig. Og svo þetta blessaða mark sem var ekki mark!
En það þýðir lítið að væla yfir því núna.

Einn leikur eitt stig, við höfum svo sem byrjað verr en nú!

kv. Van Basten

Ps. Ef staðreyndarvillur eru í lýsingunni endilega commentið á það, minnið hefur látið á sjá vegna drykkju síðustu ár!

Friday, May 13, 2005

Utandeildin hefst!

Fyrsti leikur Fc Moppu sem átti að fara fram þann 25. maí og var búið að setja þann 28 maí hefur enn og aftur verið færður og nú til mánudagsins 16. maí eða 2. í Hvítasunnu. Leikurinn fer fram í Fífunni, heimavelli moppunnar og hefst stundvíslega kl. 18:30. Því er mæting kl. 18:00 eins og venjulega. Setjið inn comment hér fyrir neðan um það hvort þið mætið eða ekki, eða sendið emil á loft@simnet.is.
Munið að þetta er ekki æfingaleikur og nú hefst blessuð utandeildin og er þetta upphafsleikur hennar þetta er því mikill heiður og því mikilvægt að leggja sig allann fram og gefa ekkert eftir.
Og fyrir fyrstu ferðahelgi sumarsins vil ég minna á að hóflega drukkið vín er sóunn og þunnir ganga fyrir í liðið!
kv. Van Basten

Wednesday, May 11, 2005

Æfing í kvöld kl. 22.00 á Framvelli!

Monday, May 09, 2005

leikjaniðurröðun

Utandeild - Efri deild A riðill

1. umferð
1 sun. 22. maí. 2005 - 19:30 A Hjörleifur - Vagnherjar Fylkisvöllur
2 sun. 22. maí. 2005 - 21:00 A Dufþakur - Marshall Fylkisvöllur
3 mið. 25. maí. 2005 - 19:30 A FC Fame - FC Moppa Fylkisvöllur
4 mið. 25. maí. 2005 - 21:00 A Melsteð - Magic Fylkisvöllur
5 mið. 25. maí. 2005 - 21:00 A Hómer - Gismó Egilshöll

2. umferð
1 sun. 29. maí. 2005 - 18:00 A FC Moppa - Melsteð Fylkisvöllur
2 sun. 29. maí. 2005 - 19:30 A Marshall - FC Fame Fylkisvöllur
3 sun. 29. maí. 2005 - 21:00 A Vagnherjar - Dufþakur Fylkisvöllur
4 þri. 31. maí. 2005 - 19:30 A Gismó - Hjörleifur Fylkisvöllur
5 þri. 31. maí. 2005 - 21:00 A FC CCP - Hómer Fylkisvöllur

3. umferð
1 sun. 12. jún. 2005 - 16:30 A Hjörleifur - FC CCP Leiknisvöllur
2 mán. 13. jún. 2005 - 19:30 A Magic - FC Moppa Fylkisvöllur
3 mán. 13. jún. 2005 - 21:00 A Dufþakur - Gismó Fylkisvöllur
4 mið. 15.jún. 2005 - 19:30 A FC Fame - Vagnherjar Framvöllur
5 þri. 15. jún. 2005 - 19:30 A Melsteð - Marshall Leiknisvöllur

4. umferð
1 þri. 28. jún. 2005 - 19:30 A Marshall - Magic Fylkisvöllur
2 þri. 28. jún. 2005 - 21:00 A Vagnherjar - Melsteð Fylkisvöllur
3 mið. 29. jún. 2005 - 19:30 A Gismó - FC Fame Framvöllur
4 fim. 30. jún. 2005 - 19:30 A Hómer - Hjörleifur Fylkisvöllur
5 mið. 6. júl. 2005 - 21:00 A FC CCP - Dufþakur Leiknisvöllur

5. umferð
1 sun. 10. júl. 2005 - 18:00 A Dufþakur - Hómer Fylkisvöllur
2 sun. 10. júl. 2005 - 19:30 A FC Fame - FC CCP Fylkisvöllur
3 sun. 10. júl. 2005 - 21:00 A Melsteð - Gismó Fylkisvöllur
4 þri. 12. júl. 2005 - 19:30 A Magic - Vagnherjar Fylkisvöllur
5 þri. 12. júl. 2005 - 21:00 A FC Moppa - Marshall Fylkisvöllur

6. umferð
1 sun. 24. júl. 2005 - 18:00 A Vagnherjar - FC Moppa Fylkisvöllur
2 sun. 24. júl. 2005 - 19:30 A Gismó - Magic Fylkisvöllur
3 sun. 24. júl. 2005 - 21:00 A FC CCP - Melsteð Fylkisvöllur
4 þri. 26. júl. 2005 - 19:30 A Hómer - FC Fame Fylkisvöllur
5 þri. 26. júl. 2005 - 21:00 A Hjörleifur - Dufþakur Fylkisvöllur

7. umferð
1 fim. 04. ágú. 2005 - 19:30 A Melsteð - Hómer Fylkisvöllur
2 mán. 08. ágú. 2005 - 19:30 A FC Fame - Hjörleifur Framvöllur
3 þri. 09. ágú. 2005 - 19:30 A Magic - FC CCP Fylkisvöllur
4 þri. 09. ágú. 2005 - 21:00 A FC Moppa - Gismó Fylkisvöllur
5 fim. 11. ágú. 2005 - 21:00 A Marshall - Vagnherjar Fylkisvöllur

8. umferð
1 sun. 14. ágú. 2005 - 18:00 A Gismó - Marshall Fylkisvöllur
2 sun. 14. ágú. 2005 - 19:30 A FC CCP - FC Moppa Fylkisvöllur
3 sun. 14. ágú. 2005 - 21:00 A Hómer - Magic Fylkisvöllur
4 þri. 16. ágú. 2005 - 21:00 A Hjörleifur - Melsteð Fylkisvöllur
5 fim. 18. ágú. 2005 - 21:00 A Dufþakur - FC Fame Fylkisvöllur

9. umferð
1 sun. 28. ágú. 2005 - 18:00 A Melsteð - Dufþakur Fylkisvöllur
2 sun. 28. ágú. 2005 - 19:30 A Magic - Hjörleifur Fylkisvöllur
3 sun. 28. ágú. 2005 - 21:00 A FC Moppa - Hómer Fylkisvöllur
4 fim. 01. sep. 2005 - 19:30 A Marshall - FC CCP Fylkisvöllur
5 fim. 01. sep. 2005 - 21:00 A Vagnherjar - Gismó Fylkisvöllur

10. umferð
1 sun. 04. sep. 2005 - 18:00 A Dufþakur - Magic Fylkisvöllur
2 sun. 04. sep. 2005 - 19:30 A FC Fame - Melsteð Fylkisvöllur
3 sun. 04. sep. 2005 - 21:00 A Hjörleifur - FC Moppa Fylkisvöllur
4 þri. 06. sep. 2005 - 19:30 A FC CCP - Vagnherjar Fylkisvöllur
5 þri. 06. sep. 2005 - 21:00 A Hómer - Marshall Fylkisvöllur

11. umferð
1 sun. 11. sep. 2005 - 18:00 A Magic - FC Fame Fylkisvöllur
2 sun. 11. sep. 2005 - 19:30 A Gismó - FC CCP Fylkisvöllur
3 sun. 11. sep. 2005 - 21:00 A Marshall - Hjörleifur Fylkisvöllur
4 þri. 13. sep. 2005 - 19:30 A Vagnherjar - Hómer Fylkisvöllur
5 þri. 13. sep. 2005 - 21:00 A FC Moppa - Dufþakur Fylkisvöllur


Það er í athugun að breyta tímanum þann 25. maí og kemur það í ljós þegar nær dregur. Ef það gengur ekki eftir þá reddum við velli og dómara á öðrum degi.

Kv. Van Basten

Friday, May 06, 2005

Athuga breyting á velli!!!

Leikurinn á laugardaginn verður á Framvelli í stað Laugardals en á sama tíma. Allir að taka með sér 500kr.

Melding í síma 8404352.

Thursday, May 05, 2005

Voðalegt!

Það eru um 30 manns sem eru í Moppunni núna og af þeim mættu 8 á æfingu í gærkvöldi! Lolli, Palli, Benni, Gústi, Pálmi, Valdi, Bjössi og Gummi. Maður á erfitt með að trúa því að menn þjáist af svo miklu Alzheimer að það þurfi að senda út sms fyrir hverja einustu æfingu! Að sjáfsögðu eru alltaf einhverjir sem forfallast, en ekki rúmlega 20 manns andskotinn hafi það. Það sem bjargaði þessari æfingu var að Melsteð var að æfa á hinum vallarhelmingnum og voru 14 þannig að við fengum 3 lánaða og spiluðum við þá á stóran völl. Það réttlætir þó ekki mætinguna þó að þetta hafi bjargast fyrir okkur sem mættu! Ef að menn ætla ekki að mæta betur en þetta þá verðum við bara að bæta við fleiri leikmönnum ef við ætlum ekki að vera alltaf með 0-1 varamenn í leikjum í sumar. Förum nú að taka okkur tak, var ekki þó nokkuð skemmtilegra að vinna eins og á sunnudaginn frekar en að vera í svona ströggli eins og seinasta sumar?

Ítrekun, æfingar hjá Fc Moppu eru kl. 22.00 á miðvikudögum á gervigrasi Framara!

Tilkynning: Leikur á laugardaginn!!

Það er æfingaleikur á laugardaginn við TLC í Laugardalnum, mæting kl 15.30 stundvíslega. Reynum nú að mæta og sýna að við eigum eitthvað erindi í þessi lið sem við verðum að spila við í sumar!

Áfram Moppan!!

Monday, May 02, 2005

Fc Moppa 5-1 Fótboltaklúbburinn

Fc moppa gerði sér dagamun í gær og vann til tilbreytingar stórt í gær í leik þar sem dómarinn átti stórleik!
Fc Moppa mætti gallvösk til leiks og reiðubúin í slaginn og að vanda mættu rúmlega þriðjungur af skráðum moppumönnum eða 12 manns og er þetta farið að verða svolítið leiðigjarnt! Ingvi hringdi í Sverrir og kom hann þannig að moppan byrjaði með 2 varamenn. Uppstilling liðsins var Loftur í marki, Benni og Pálmi í miðverðinum, Gunni Freyr og Gústi í bakvörðum. Jón Emil og Gummi á köntunum, Palli og Ingvi á miðjunni og Valdi og Bjössi frammi. Varamenn voru Halldór Smári og Sverrir. Leikurinn byrjaði ágætlega og var nokkuð jafnræði með liðunum þar sem þau skiptust á að sækja. Engin stórkostleg færi litu þó dagsins ljós fyrr en um miðjan seinnihálfleik þar sem boltinn barst til Valda þar sem að hann snéri baki í markið, hann tók hann á hnéið og snéri sér við og bombaði honum yfir markvörðinn og staðan því 1-0 fyrir moppunni.
Það gerðist svo sem ekki mikið markvert það sem eftir lifði hálfleiks. Í seinni hálfleik skipti Loftur við Gunna í markinu og tók stöðu sem sóknarmaður. Hann var ekki lengi að láta að sér kveða og endaði með að skora þrennu á 20 mínútum. Fyrst fékk hann bolta af vinstri kanti sem frá Jón Emil sem varnarmanni mistókst að hreinsa og lyfti boltanum yfir markmanninn af stuttu færi. Annað markið var eftir sendingu frá Gumma af hægri kanti, fallegt skallamark og svo í þriðja markinu fékk hann stungusendingu þar sem hann stakk vörnina af frá miðju og skaut svo hnitmiðuðu skoti í hægra hornið. Þegar 15 mínútur voru eftir náði Fótboltaklúbburinn að krafsa í bakkann með klaufalegu marki þar sem að há sending kom upp miðjan völlinn og moppunni mistókst að hreinsa út við miðju, og FK maður stakk vörnina af með ótrúlegum tilþrifum og skoraði framhjá Gunna í markinu. Þegar 10 mínútur voru eftir var Gústi rekin útaf fyrir að fá boltann í hendina og verður það að teljast einn af undarlegri dómum leiksins. Við það efldust moppumenn og hertu sóknina. Stuttu síðar fékk Loftur boltann við miðju og stakk sér í gegnum vörnina en þegar hann var kominn inní vítateig og ætlaði að taka skotið þá var hann tæklaður niður af aftasta manni Fótboltaklúbbsins sem að öllu jöfnu hefði átt að líta rauða spjaldið, en dómaranum fannst þetta ekki merkilegt brot og gaf vítaspyrnu en varnarmaðurinn fékk ekki einu sinni gult.
Sverrir sýndi mikla forsjálni í því að ná að fiska vítaspyrnuna af Lofti og setti hann örugglega í hornið og staðan orðin 5-1 fyrir moppunni. Það sem eftir lifði leiks gerðist ekki mikið og enduðu því leikar 5-1 fyrir moppunni. Leikurinn var í sjálfu sér ágætlega leikinn og var margt ágætt að sjá. Gaman var að sjá Gunna í Bakverðinum en hann stóð sig stórvel þar. Þá var Benni einnig mjög öruggur í miðverðinu og fínt að hafa mann þar sem talar allan leikinn og stjórnar vörninni. Annars áttu flestir nokkuð góðan leik þannig að það er óþarfi að vera taka einhvern einn út.
Vonandi er þetta það sem koma skal en ekki leikurinn á undan á móti Vatnaliljunum.
kv. Van Basten