Það hlaut að koma að því! Eftir magran júlí mánuð hlaut eitthvað að gerast og ef það var ekki nú þá hefðum við nú eins getað pakkað niður farið í sjálfskipað frí frá fótbolta! Gismó sem er næst neðst í C. riðli án stiga komu hressir til leiks og sýndu að þeir eru sýnd veiði en ekki gefin, og þar að auki búnir að fá liðsauka í formi Þórhalls Dan!
Til tilbreytingar vorum við með 5 varamenn á okkar snærum, en eftirtaldir mættu í leikinn!
Gústi, Einar örugglega, Alli, Maggi, Ásgeir, Jónas, Lolli, Siggi H. Siggi G, Bjössi, Ingi, Himmi, Sveinbjörn H, Ketill, Palli og Keli!
Sökum treyjuvandræða sem fyrri daginn, var nánast sjálfskipað inná völlinn, þ.e. Einar í markinu, Lolli og Himmi í miðverðinum, Siggarnir í bakverðinum, Ásgeir og Alli á köntunum, Bjössi, Maggi og Keli á miðjunni og Ketill frammi.
Leikurinn hófst með jafnræði þar sem að bæði lið skiptust á að sækja, en ekkert markvert gerðist fyrr en á 5 mínútu þegar Gismó maður ætlar að taka þessa fínu sendingu fyrir en hittir boltann illa af 35 metra færi og settur boltan yfir Einar, sem var örlítið of framarlega, og í markið! 0-1 fyrir Gismó.
Við lögðum nú ekki árar í bát heldur hertum róðurinn ef eitthvað var, á 18 mínútu, náum við góðri sókn þar sem að Palli og Maggi taka léttan þríhyrning á miðsvæðinu og Maggi veður upp allan völlinn og rúllar Þórhalli Dan upp og skorar af stakri snilld í hægra hornið hjá markmanni Gismó. 1-1
Jafnræði hélst áfram í leiknum en við sóttum þó heldur meira. Nokkrar ágætar sóknir litu dagsins ljós og áttum við meðal annars skalla framhjá, hinu megin á vellinum sluppum við vel þegar Himmi braut af sér í skyndisókn, lét tækling sem var aðeins of sein... sennilega hefur þó Siggi H. verið kominn inn fyrir Himma þannig að hann var ekki lengur síðasti varnarmaður! Stuttu seinna fékk Bjössi boltan vinstra meginn í teignum og lék á einn varnarmann og lagði boltann svo snirtilega í hornið fjær þar sem að Ingi fylgdi vel á eftir, en sennilega skráist markið á Björn Frey. 2-1
Í kjölfar marksins færðu Gismó sig uppá skaftið og áttu nokkrar hörku sóknir sem enduðu í nauðvörn hjá okkur... Himmi bjargaði meðal annars tvisvar á línu í sömu sókninni og þá var boltin hreinsaður langt fram í tvíganga!
Staðan í hálfleik var 2-1 fyrir okkur og var hún verðskulduð!
Seinni hálfleikur var nú ekki orðinn gamall þegar þeir ná góðri sókn sem endar í skoti sem Einar ver en boltinn hrekkur af honum og sóknarmaður Gismó nær frákstinu og hamrar boltann inn! 2-2.
Eftir markið nær Gismó öllum völdum á vellinum og það ágæta spil sem hafði einkennt leik okkar í fyrri hálfleik hrundi gjörsamlega, og nýtti gismó sér það og átti hverja stórsóknina á fætur annari, sem þó enduðu flest sem langskot hátt yfir eða langt framhjá! Það kom þó að því að spilið fór að lagast hjá okkur en eftir að hafa misst boltann í sókninni náðu þeir góðri skyndisókn, Þórhallur átti góða sendingu inn fyrir vörnina og sóknarmaður þeirra lék á Einar í markinu og lagði boltann svo snyrtilega í markið! 2-3
Við þriðja mark þeirra virtumst við hrökkva í gang og áttum hörku góðan leik það sem eftir lifði! Ingi fékk boltann út á hægri kanti og sendi boltann fyrir þar sem að Ásgeir var á undan markmanninum í boltan lék upp að endamörkum og sendin frábæra sendingu yfir á Ketil sem stökk manna hæðst á fjærstöng og skallaði örugglega inn! 3-3
4 mínútum síðar náði Ingi ágætu skoti úr þröngri stöðu á hægri kanti sem markmaðurinn varði en hver var mættur á fjærstöng nema fyrverarndi markakóngur, antílópan sjálf hann Ásgeir og honum brást ekki bogalistin frekar en fyrri daginn og lagði boltann með hnitmiðuðu en föstu skoti uppí þaknetið! 4-3
Þegar leikurinn var að fjara út og við búnir að verjast vel þessar síðustu mínútur fengum við aukaspyrnu rétt inná okkar helming vallarinns, Himmi stillti boltanum upp og lítur rólega upp og sér hvar Palli skokkar úr rangstöðu hjá Gismó en í sömu andrá tekur Bjössi hnitmiðað og úthugsað hlaup á milli varnarmanna Gismó og Himmi setti boltann beint fyrir framan hann þar sem að Bjössi leggur boltann fyrir sig með einni hnitmiðaðri snertingu og vippar svo yfir markmann Gismó (þið ættuð bara að prófa að vera dvergar og vippa yfir fullvaxinn mann.... það er nú ekki eins auðvelt og það hljómar) og skorar örugglega 5-3
Stuttu síðar flautaði svo dómarinn til leiks, langþráður Moppusigur!
Leikurinn var í heild sinni nokkuð góður, sér í lagi fyrri hálfleikur þar sem að miðjan náði góðum takti og barðist um alla bolta og oft náðist mjög gott spil. Mörkin í leiknum voru öll mjög fín, tvö af kanntinum og tvö af miðjunni! Í seinni hálfleik var miðjan ekki að gera eins góða hluti framan af en náði svo takti þegar líða tók á leikinn! Vörnin var í lagi, en þó svolítið tæp á köflum, en fyrsta markið hjá þeim var hrein tilviljun, í öðru markinu voru þeir fljótari að ná endurkasti og í þriðja markinu náðu þeir góðri stungusendingu og senter þeirra var þó ótrúlegt megi virðast hraðari en vörnin okkar!
Held að móment leiksins hafi verið þegar Einar sýndi okkur Blámannin og mark Magga þar sem hann lék tvo varnarmenn uppúr skónum og skoraði!
En bráðskemmtilegur leikur og mikið djöfulli var gaman að vinna!
kv. Lolli
ps. ef það er staðreyndavillur þarna þá látið mig bara heyra það!