Friday, May 30, 2008

Æfing á sunnudag kl. 21:00

Æfing í Safamýrinni kl. 21:00 á sunnudagskvöld... börnin sofnuð og konurnar að strauja þannig að allir ættu að sleppa út!

meldið ykkur hér í commenta kerfinu

kv. Lolli

Tuesday, May 27, 2008

Melsteð 2-1 Fc Moppa

Það var ágætt að við ætlum að einbeita okkur að deildinni í ár þar sem að bikarleikurinn við Melsteð tapaðist með naumindum.
Að sjálfsögðu náðum við með naumindum í lið, Björn Freyr fórnaði sér í markið og varði eins og berserkur þrátt fyrir að vera einfættur dvergur. Þeir sem mættu voru Rúnar, Ásgeir, Bjössi, Ingvi, Valdi, Palli, Ingi, Himmi, Siggi H., Siggi G, Siggi D og pétur Óli.
Liðið stillti sér eiginlega upp sjálft. Bjössi í marki, siggi G. og Pétur óli í bakvörðum, rúnar og Himmi í miðverðinum, Ásgeir og Siggi H á köntunum, Ingi, Ingvi og Palli á miðjunni og Siggi D. frammi. Sá gamli var á bekknum að smyrja á sig deep heat!
Leikurinn byrjaði og var jafn framan af þar sem að bæði liðin skiptust um að sækja og það markverðasta sem gerðist var gult spjald sem Ingvi nældi sér í með fallega miðuðu olbogaskoti eftir að melsteðmaðurinn hafði sparkað 5 sinnum í öklann á honum.
Við áttum nokkur ágæt færi, svosem skalla yfir, og nokkur ágæt skot sem fóru mislangt framhjá. Seint í fyrrihálfleik hreinsaði (gaf stoðsendingu) Rúnar fram á völlinn þar sem að Ingi stakk sér á milli tveggja varnarmanna og náði að lyfta boltanum glæsilega yfir bruce grobelar í marki Melsteð. 0-1 fyrir Fc Moppu.
Og eftir nokkrar ágætar sóknir hjá hvoru liði fyrir sig kláraðist hálfleikurinn og var leikur Fc Moppu bara nokkuð góður í heildina séð. Hefðum alveg getað sett 1-2 mörk í viðbót ef heppnin hefði verið með. Vörnin stóð sig mjög vel og áttu Melsteð í raun engin hættuleg færi í fyrri háfleik og ef að þeir náðu skot að marki þá tók Dvergurinn þau örugglega.

Í seinni hálfleik fór að bera á þreytumerkjum hjá moppumönnum, en þrátt fyrir það náðu Melsteð menn ekki að skora fyrr en seint í leiknum þegar ca. 15 mínútur voru eftir. Stuttu síðar braut svo Ingvi af sér aftur og fékk sitt annað gula spjald og var rekinn útaf og þá upphófst spjaldasöfnun Moppunnar. Valdi var mjög ósáttur við dóminn og lét í sér heyra af bekknum og dómarinn sem var í aðalhlutverki í seinni hálfleik ákvað að Moppan væri betur settir án varamanns og gaf Valda 2 gul spjöld í röð, annað fyrir að neita að setjast á bekkinn. Þannig að ekki nóg með að við vorum bara 10 þá var búið að reka varamanninn útaf. Þrátt fyrir það náðu Melsteðmenn ekki að skora fyrr en 5 mínútum fyrir leikslok 2-1. Held að moppan hafi sett spjaldasöfnunarmet í leiknum og sankað að sér ca. 7-8 gulum spjöldum og 2 rauðum þó að í sjálfu sér hafi leikurinn ekki verið grófur. Dómarinn var ágætur í fyrri hálfleik en gjörsamlega missti allt niðrum sig í þeim seinni.

En engu að síður er það aðalega mannfæð að kenna að við töpuðum, hefðu verið 3-4 á bekknum þá hefðum við leikandi getað unnið þennan leik.

over and out.

kv. Lolli

Friday, May 23, 2008

Bikarleikur á mánudaginn

Fyrsta umferð í bikarkeppni Utandeildarinnar er að hefjast og í henni eigast m.a. við FC Moppa og Melsted. Leikurinn fer fram á mánudaginn 26. maí kl. 21 og verður leikið á gervigrasi HK í Fagralundi. Eins og ávallt leggur Moppan ofuráherslu á bikarkeppninna meðan hennar nýtur við og því mikilvægt að menn mæti keikir og bísperrtir í þennan leik.

Mæting í Fagralund er kl. 20.30 í töflufund og upphitun. Melda sig í commentum eins fljótt og kostur er.

Sjáumst í lundinum fagra með sól í hjarta og blóð í munni!

Tuesday, May 20, 2008

Æfing á fimmtudag

Sælir félagar æfing á fimmtudag í safamýrinni kl. 20:00

Meldið ykkur hér fyrir neðan

kv. Lolli

Sunday, May 18, 2008

Fc Puma 3-3 Fc Moppa

Jæja fyrsta leik sumarsins lokið og úrslitin ágæt. 3-3 í hörkuleik sem var býsna opinn og skemmtilegur, bæði lið fengu nóg af færum til að klára leikinn en niðurstaðan jafntefli.
Puma skoruðu fyrst þar sem að hin háaldraði Ívar Guðmundson skoraði með skoti vel fyrir utan teig sem sveif hægt og rólega yfir alla vörnina og svo yfir Einar í markinu. Markið kom sennilega á 3 mínútu og moppumenn ekki vaknaðir... eða ennþá of þunnir. Eftir markið sóttum við í okkur veðrið og áttum nokkrar ágætar sóknir sem kom þó ekki í veg fyrir það að Puma bætti við marki ca. á 25 mínútu, eftir hornspyrnu datt boltinn í teiginn og að sjálfsögðu náðu moppumenn ekki að hreinsa og boltanum var hamrað uppí þaknetið af stuttu færi! 2-0
Moppan sótti enn í sig veðrið og uppskar þegar 5 mínútur voru eftir af hálfleiknum þar sem Siggi átti góða sendingu af hægri kanti og Himmi stökk manna hæðst og skallaði í netið. 2-1
Í seinni hálfleik var sama uppá teningnum liðin skiptust á að sækja og eftir hornspyrnu hjá moppunni var boltanum þrumað upp völlinn þar sem að Ívar og Siggi áttust við og hafði Ívar betur í þetta skiptið og átti greiða leið upp að markinu og skoraði örugglega framhjá einari 3-1
Móment leiksins kom svo þegar 20 mínútur voru eftir en Binni skifti sér inná fékk boltann rétt fyrir utan teig og þrumaði boltanum uppí bláhornið og skifti sér strax aftur útaf:) 3-2
þegar lítið var eftir féll Ingvi með tilþrifum inní teig og var dæmd vítaspyrna sem Valdi skoraði örugglega úr 3-3.
Síðustu mínútur leiksins einkenndust af væli í Fc Puma sem var pirrandi en leikurinn hafði verið prúðmannlega leikinn framan af.
Hörkuleikur sem hefði getað dottið á hvornveginn en 3-3 sennilega sanngjörn úrslit, bæði lið áttu fullt af færum.
Fc Moppa byrjar því tímabilið ágætlega og skulum við vona að það haldi áfram.
Næsti leikur er 04. Jún. 20:30 - FC Moppa-Vatnsberar Framvöllur (A), nánar um það síðar.

kv. Lolli

Friday, May 16, 2008

Fyrsti leikur í utandeildinni 2008

Fyrsti leikurinn hjá okkur er á móti Puma á sunnudaginn (18.05) kl. 18:00 í safamýrinni.
Gömul stórveldi að mætast... þetta verður hörkuleikur og rúllum nú þessum pappakössum upp!!!!
Mæting tímanlega ca. 17:30

Búið er að staðfesta leiktímana og hefur hann ekkert breyst þannig að við sjáumst á sunnudag!
Meldið ykkur hér fyrir neðan með mætingu á sunnudag

kv. Lolli

ps. þá vil ég óska Sleggjunni aka "Kjartani" hjartanlega til hamingju með litla moppustelpu sem fæddist í gær, (góð ástæða til að mæta ekki í leikinn:)
Hjartanlega til hamingju Kjartan og Sæunn!

Tuesday, May 13, 2008

Leikur við Fame

Sælir félagar, Moppan greinilega að vakna af dvala, 13 manns á tveimur æfingum í röð. Nú ættum við að vera í þrusuformi og því er um að gera að sýna formið!
Það verður því Æfingaleikur á fimmtudaginn næstkomandi gegn Fc Fame á gerfigrasinu í Mosfellsbæ og hefst leikurinn kl. 21.30 þannig að mæting er 21:15.
Meldið ykkur hér í commentakerfinu!

kv. Lolli

Thursday, May 08, 2008

Æfing annan í Hvítasunnu!

Næsta æfing verður í Safamýrinni á mánudaginn næstkomandi, annan í Hvítasunnu kl. 20:30
Þar verður tekið á því fyrir næsta æfingaleik sem verður á fimmtudaginn kemur kl. 21:30 á gerfigrasinu í Mosfellsbæ, en nánar að því síðar!

Meldið ykkur á æfinguna í commentakerfinu!

Monday, May 05, 2008

Æfing á miðvikudag. 20:30

Miðvikudagskvöldið 7.maí.
Kl.20:30
Sparkvöllurinn við Safamýrina.

Sunday, May 04, 2008

Æfingaleikur mánudaginn 5/5.

Ætlum að taka æfingaleik við FC Ice á mánudagskvöld.


Gervigras HK, Fagralundi v/Furugrund Kópavogi.
Mæting kl.20:45

Meldið ykkur sem fyrst í "comments".