Monday, July 31, 2006

æfing á þriðjudag!

Sælir félagar, eftir hin stórkostlega leik á sunnudag hefur verið tekin ákvörðun að hittast á æfingu á þriðjudaginn!
Mæting í Safamýrina (sparkvöllinn) kl. 21:00 og svarið í kommentakerfið hér undir hvort þið mætið eða ekki!
kv. Lolli

FcMoppa 0-2 Nings

þá eru vonandi sumarleyfin búin og menn koma til baka til moppunnar sinnar!
Held nánast því vondasti leikur moppunnar frá síðasta slæma leik!
Eins og lög gera ráð fyrir þá var skrapað saman í lið rétt fyrir leik og voru 12 mættir til leiks og enginn markmaður!
Þeir sem mættu voru Jónas, Alli, Maggi, Ásgeir, Siggi H., Pétur, Teddi, Pálmi, Himmi, Þorkell, Valdi og Ketill! Jónas byrjaði í markinu og Pálmi og Himmi voru í miðverðinum, Siggi og Pési í bakverðinum, Áseir og Teddi á köntunum,Þorkell og Maggi á miðjunni, Ketill og Alli frammi og Valdi byrjaði útaf!

Leikurinn byrjaði nú ekki glæsilega, Nings skoraði mark eftir að léleg sending breytti um stefnu á varnarmanni og varð að þessari fínu stungusendingu þar sem að sóknarmaður Nings náði að renna boltanum framhjá hanskalausum Jónasi í markinu! 1-0 fyrir Nings.

Stuttu síðar skora þeir svo annað mark þar sem boltanum er rennt út í teig þar sem miðjumaður Nings tekur ágætt skot sem hinn geðþekki markmaður moppunnar (ennþá án hanska) nær ekki að verja! 2-0 fyrir Nings.

Eftir þetta var leikurinn frekar opinn bæði lið fengu einhver færi en inn vildi boltinn ekki!
um miðbik fyrri hálfleiks mætti svo markmaður til leiks og átti hann nokkrar býsna góðar markvörslur og hefur sennilega gert sitt til að bjarga því að ekki fór verr!

á venjulegum degi á Moppan að rúlla Nings upp, en viðhorfið sem menn mættu með í leikinn var ekki alveg til fyrirmyndar, leikurinn var nánast því tapaður fyrirfram og lítið var um baráttu!

Nenni ekki að segja meira um þennan leik!
næsti leikur er 13. Ág. 18:00 - FC Fame-FC Moppa Framvöllur (C)

kv. Lolli

Thursday, July 27, 2006

Leikur á sunnudag 30/7!

Sunnudagur 30/7
kl.19:30
Leiknisvöllur v/Austurberg

Eftir +100.mínútur af bikarfjöri á þriðjudag er komið að deildarleik gegn Nings.
Leikið verður á Leiknisvelli sem staðsettur er í miðju "gettóinu". Mæting kl.19:00 með vömbina útkýlda af þynnkumat og nokkur golftí í vasanum.

Tuesday, July 25, 2006

Núna er bikarleikur í kvöld!

Sælir

Þetta er ekki gabb heldur fúlasta alvara. Stórlið Moppunnar mun etja kappi við Metró-menn í kvöld í bikarnum. Eins og áður hefur komið fram þá höfum við ákveðið að einbeita okkur að bikarnum og því þurfum við að mæta grimmir í kveld.

Moppan vs. Metró, Tungubakkar kl.21:00, mæting 20.30 í kvöld(25.júlí)

Allir að melda sig hér fyrir neðan.

Kv,
Stjórnin

Thursday, July 20, 2006

ATH!!! Bikarleikur smá svona mis......

Komið þið sæl!

Jæja, þá er kominn tími á það að einbeita sér að bikarnum.

Leikið verður þriðjudaginn 25.júlí kl.21.00, mæting 20.30, að Pungubökkum.

Nú verða menn að mæta og taka á því. Ekki þetta helvítis væl alltaf hreint.

Allir að melda sig á vefnum.

Kv,
Stjórnin

Tuesday, July 18, 2006

Ossokomaso!

Sælir bræður í Kristi!

Þá er komið að því að rífa okkur upp úr öldudalnum. Eftir einn ömurlegasta leik Moppunnar í mörg ár þá höfum við tækifæri að bæta úr skák.

Leikur í kvöld kl. 19.30, mæting 19.00 á Hungurbökkum.

Allir að melda sig.

Kv,
Stjórnin

Wednesday, July 12, 2006

Leikur í kvöld(12.júlí kl.19.30)

Sælir

Leikur í kveld kl.19.30(mæting 19.00) að Pungubökkum.

Látið vita í kommentakerfum. Þannig við getum séð hvað okkur vantar marga upp á að ná í lið.

Kv,
Stjórnin