Monday, February 25, 2008

Fyrsta æfing ársins 2008

Eins og fram hefur komið var ákveðið að blása til æfingar á fimmtudaginn og verður hún á sparkvellinum í Safamýri sem bæði er upplýstur og upphitaður. Æfingatími er frá 21.00-22.00 og nú skulum við venja okkur á að boða komu skilvíslega og hreinskilningslega hér að neðan. Enn eru talsvert margir sem ekki hafa sagt til um þátttöku sína í sumar og um að gera að láta vita með það líka.

Sjáumst hressir á fimmtudaginn með ökklana á réttum stað.

Thursday, February 21, 2008

Aðalfundur FC Moppu - 2008

Já það er óhætt að segja að gleðin hafi svifið yfir vötnum hjá Moppunni í gær. Boðað var til fundar og mættu þar 5 galvaskir piltar og lögðu drög að komandi sumri. Eftirfarandi var tekið fyrir:

  • Búningar - Tvö stórfyrirtæki berjast nú um að fá auglýsingapláss á ávölum skrokkum Moppumanna í sumar og er talið líklegt að fyrirtækin tvö verði að sameinast í tilboðum sínum ef samningar eiga að nást, enda er fermetraverðið á Moppukroppum ekki fríkeypis. Þetta mál er í góðum farvegi og verður kynnt betur um leið og fréttir berast. En það er talið líklegt að Moppan muni skarta nýjum og glæsilegum búningum í sumar.
  • Leikmannamál - Lausleg talning þótti sýna að virkir/gangfærir Moppumenn væru um 26 og þar af væru um 15 sem hefðu mætt ásættanlega eða betur í fyrra. Því var rætt um að huga fyrst og fremst að því að virkja núverandi mannskap betur og sjá síðan til hvernig mæting verður. Það væri því gott ef allir Moppumenn myndu commenta hér að neðan um hvort þeir verði með í sumar og hve vel þeir telji sig geta mætt, gott væri að allir myndu skila inn virkum emailum til að útbúa virkan póstlista.
  • Mittismál - Þessum lið var vísað til undirnefndar sökum málbandsskorts.
  • Æfingamál - Menn eru almennt til í að æfa einu sinni í viku og hefur verið boðað til fyrstu æfingar ársins á fimmtudaginn í næstu viku á skjólgóðum sparkvellinum í Safamýrinni kl 21. Það verður settur upp póstur um þá æfingu eftir helgi svo menn geti meldað mætingu.
  • Heimasíða - Ný síða verður sett upp í vor til þess að ferskja upp á samskipti og umfjöllun.
  • Árgjald - Ákveðið var að árgjald Moppunnar yrði kr. 10.000 líkt og í fyrra og verður innheimta í höndum Jónasar sem hefur verið æviráðinn sem gjaldkeri.
  • og að lokum mál málanna................Partý - Menn voru sammála um að árið 2008 yrði horfið til eldri, betri og drykkfeldari vegar í málefnum Moppunnar. Því hefur verið ákveðið að halda Moppupartý til að hrista mannskapinn saman fyrir sumarið. Verður það haldið laugardaginn 15. mars heima hjá Jónasi. Mun Hilmar Hilmarson verða motivational speaker kvöldsins og verður gerð krafa um hressleika.

Að þessum málum ræddum var fundi slitið undir dynjandi lófataki og er óhætt að segja að menn líti björtum augum á Moppusumarið. Þannig að það sem er framundan er æfing á fimmtudaginn og partý 15. mars! Í framhaldi af æfingunni verður farið að huga að æfingaleikjum enda Moppan vön að spila sig í gang. Látið endilega heyra í ykkur hér að neðan.

Kær kveðja, Giraf.

Monday, February 18, 2008

Aðalfundur Fc Moppu

Best að dusta rykið af þessari blessuðu síðu okkar!
Aðalfundur er sem hér segir!

Sælir sokkar,

Hér með er boðað til Aðalfundar FC Moppu. Fer fundurinn fram miðvikudaginn 20. febrúar og hefjast fundarhöld kl. 21.00. Fundarstaður er Bólstaðarhlíð 48, 105 Reykjavík en það er Gíraffagrenið. Gildir limir eru hvattir til að mæta til þess að skipuleggja sumarið, enda er það mál manna að þetta muni verða besta Moppusumarið frá upphafi.

Fundardagskrá:

1. Búningamál.
2. Leikmannamál
3. Mittismál
4. Önnur mál

Síðan væri mjög gott ef að allir viðtakendur þessa pósts myndu fara yfir póstfangalistann og athuga hvort þið sjáið einhver email sem þarf að uppfæra eða skipta út. (Muna reply all osfrv. Gústi)

Með Moppukveðju,