Friday, June 24, 2005

Búningarnir lentir

Fengum búningana afhenta í gær, 23.júní. Líta þeir vel út og ættu að vera okkur til sóma í sumar. Einhver mistök hafa verið í prentuninni þar sem að búningur sverrirs hefur ekki verið merktur og geri ég ráð fyrir því að það eigi við um fleirri búninga. Það kemur í ljós fljótlega þegar verður farið betur yfir þetta.
En allavega líta þeir mjög vel út og eru án vafa flottustu búningar í deildinni!

Sem stendur er Palli með búningana og hægt verður að nálgast þá þar en síminn hjá honum er 8941617.

Kv. Van Basten

Tuesday, June 21, 2005

Fc Moppa 3-1 Vatnaliljurnar

Moppan er komin áfram í bikarkeppninni og er stefnan klárlega að taka þetta tvöfalt í ár! Leikurinn var býsna góður af hálfu moppunnar og verður að segjast að moppan hefur sjaldan spilað eins vel! Mætingin var góð eins og í síðasta leik og voru við allavega nógu margir! Þeir sem mættu voru: Gunni freyz, Gunni sig, Siggi H. Siggi Ó. Pétur óli, Pétur Björn, Tommi, Valdi, Gummi, Himmi, Ingvi, Sverrir, Benni, Jón Emil, Kári, Kjarri, Palli og Pálmi, sem sagt 18 manns fyrir utan undirritaðan og Svölustu sjöuna. Var því af nógu af taka. Byrjunarliðið var þannig skipað, Gunni Freyz í marki, Benni og Himmi í miðverðinum, Siggi og Pálmi í bakverðinum, Sverrir og Ingvi á miðri miðjunni, og Jón Emil og Palli á köntunum og Pétur Björn og Kári frammi.

Leikurinn hófst með mikilli baráttu þar sem tæklingar flugu í axlarhæð hjá báðum liðum og var mjög gaman að sjá þetta, ekki ólíkt einhverri austurlenskri bardagalist á köflum.... en samt ekki gróft!!! Moppan náði smá saman yfirhöndinni og lét stráklingana í Vatnaliljunum ekki í friði og hafði yfirvigtinn greinilega talsvert að segja þar. Spilið var mjög gott hjá Moppunni og rann boltinn ljúflega á milli manna, kantana á milli. Eftir rúmlega 20 mínútna leik fékk Pétur Björn boltann vinstramegin við markteig, snéri á varnarmann og tók boltan utanfótar fyrir markið og smellihitti ennið á Kára sem stýrði boltanum glæsilega í markið. 1-0 fyrir Fc Moppu og stórglæsilegt mark.

Við þetta efldist Moppan og aðeins stuttu seinna var brotið á Pétri Birni vinstra megin við markteig. Beljakinn tók spyrnuna og setti hann inní teig þar sem að Kári nikkaði honum aftur fyrir sig með skalla og Pálmi tók svo á móti boltanum og á einhvern ótrúlegann hátt tókst honum að vippa honum yfir markmanninn og skora! 2-0 fyrir Fc Moppu.

Ekki minnkaði nú krafturinn í Moppunni við þetta og hélt áfram að sækja. Allir sóknartilburðir Vatnaliljanna voru brotnir á bak aftur af feikisterkri vörn Moppunnar sem Benni stjórnaði eins og herforingi, og ef einhverjir boltar skoppuðu í gegnum vörnina þá var Gunni öryggið uppmálað í markinu og hirti allt sem á markið kom. Þegar aðeins nokkrar mínútur voru eftir þá átti Benni sendingu á Ingva á miðjunni sem átti aftur glæsilega sendingu á Valda sem stakk sér í gegnum vörnina og lék á markmanninn og lagði boltann svo í autt markið. 3-0 fyrir Fc Moppu. Staðan orðin 3-0 í fyrri hálfleik, það fór reyndar aðeins um menn á hliðarlínunni þegar flautað var til hálfleiks, enda menn ennþá með hroll eftir fyrsta leik tímabilsins sem tapaðist niður í 3-3 jafntefli.

Staðan í hálfleik 3-0.
Mikið var rætt um það í hálfleik að falla ekki í þá gryfju að falla aftur á völlinn eins og þessum blessaða fyrsta leik tímabilsins. Og var það ekki að sjá á fyrstu mínútum leiksins, Fc Moppa hélt frumkvæðinu framan af, en smá saman tókst Vatnaliljunum að komast inní leikinn, þó án þess að skapa sér nein dauðafæri. Það var einu sinni í seinni hálfleik sem Gunni þurfti að taka á honum stóra sínum í markinu og varði í horn. Annars var þetta venjulega klafs í teignum á stundum en það fylgir því að keppa í utandeildinni, en annars var hættan aldrei mikil. Moppan átti aftur á móti ágætis færi í seinni hálfleik, þar á meðal komst Valdi einn í gegn en markmaður Vatnaliljanna varði ágætt skot hans í horn. Nokkur hálffæri litu dagsins ljós í næstu sóknum hjá báðum liðum en ekkert sem var hættulegt.

Smá saman bökkuðu Moppumenn aftar á völlinn sem gerði Vatnaliljunum kleift að færa sig ofar og sækja meira og í einni slíkri sókn komust þeir innfyrir vörnina og í hamagangnum náði Pálmi boltanum en sóknarmaðurinn henti sér í jörðina með miklum tilþrifum og dómarinn féll fyrir dívunni og dæmdi víti sem Vatnaliljurnar skoruðu örugglega úr. 3-1 fyrir Fc Moppu.

Eftir þetta gerðist lítið í leiknum og varðist Moppan af miklum krafti og leiktíminn rann út. Öruggur sigur Fc Moppu í höfn og erum við því komnir í 3 umferð bikarsins.

Leikurinn var býsna harður og sáust nokkrar mjög harðar tæklingar sem ekki var dæmt á, þessir ódómar féllu þó að því virtist nokkuð jafnt báðum megin og því ekki mikið hægt að kvarta yfir dómgæslunni.
Leikur Moppunnar var mjög góður og lögðu allir sig fram í leiknum og var þetta greinilega "sigur liðsheildarinnar" og er mjög gaman að vera búnir að ná tveimur sigrum í röð. Mætingin var góð eins og í síðasta leik og held ég að það sé höfuðatriði í þessum tveimur sigrum, þar sem hægt var að stilla upp mjög sterku byrjunarliði og hafa góða menn á bekknum til að koma inná.

Það er býsna langt í næsta leik (nema ef vera skyldi að bikarleikur detti inn í millitíðinni) þannig að nú verða menn bara að mæta á æfingu næstu fimmtudaga kl. 21:00. Ef slæm mæting verður þá droppa ég þessum tíma þar sem að þetta er of dýrt ef menn nenna ekki að mæta.

Ef það eru einhverjar staðreyndarvillur hér endilega kommentið á það og ég breyti því.

Kv. Van Basten

Tuesday, June 14, 2005

Magic 0-3 Fc Moppa

Sólin skein í heiði, bjórinn kólnaði í kæliboxinu og sennilega er það (bjórinn) ástæðan fyrir því að það mættu 19 manns í leikinn í gær, þó verður nú að taka fram að sennilega verður þetta eina skiptið sem svona margir mæta í einn og sama leik. Held að þetta sé besta (að sumra mati versta) mæting á leik hjá moppunni. Menn voru með gleði í hjarta og allir reiðubúnir að spila í það minnsta 80 mínútur! Þeir sem mættu voru eftirfarandi! Einar Örugglega, Bjössi, Jón, Kjarri, Gústi, Siggi, Pétur Björn, Siggi jr. Benni, Jónas, Valdi, Ingvi, Gunni Freyz, Gunni Sig, Kári, Himmi, Pálmi og Palli.
Byrjunarliðið var Einar í markinu, Pálmi og Himmi í miðverðinum, Siggi og Kjarri í bakvörðum. Benni og Ingvi á miðjunni, Palli og Gunni á köntunum og Gústi og Bjössi frammi.

Leikurinn byrjaði með mikilli sókn hjá Magic og áttu þeir slatta af hálffærum, þ.e. skotum utan af velli sem því miður fréttaritari moppufrétta missti af sökum þess að hann var að rigga saman leikskýrslu! Þó virðist sem að Magic hafi tekist að hitta tréverkið allavega einu sinni.

Móðurinn fór þó af Magic þegar leið á leikinn og endalaust af óþreyttum mönnum hjá Fc Moppu streymdu inná og smá saman náði Moppan yfirhöndinni í leiknum. Lítið markvert gerðist í fyrrihálfleik fyrir utan örar skiptingar hjá Fc Moppu.

Í hálfleik var staðan 0-0 og stefndi því í geysispennandi seinnihálfleik.

Seinnihálfleikur hófst eins og sá fyrri endaði, þ.e. með yfirburðum Fc Moppu og örum skiptingum! Þegar ca. 10 mínútur voru liðnar komst Kári einn innfyrir eftir mistök í vörn Magic og setti boltann snyrtilega yfir markmanninn og reyndar markið líka. Skömmu síðar fékk Kári boltann og geystist inní teiginn vinstra meginn og renndi boltanum fyrir Pétur Björn sem átti ekki í vandræðum með að leggja hann í markið framhjá markmanni Magic. 0-1 fyrir Fc Moppu.

Tíu mínútum síðar var leikurinn endurtekinn og var það Björn Freyr sem renndi boltanum á Pétur Björn og var þetta nánast nákvæmlega eins gert og í fyrra markinu. 0-2 fyrir Fc Moppu.
Nú var mikil gleði á varamannabekk Fc Moppu og menn þegar farnir að opna fyrstu bjórana. Sennilega hefur hljóðið, sem við allir þekkjum, þegar bjór er opnaður haft þau áhrif á Gústa að hann brást við á þennan hátt sem hann gerði! Brotið var á Gústa um miðjan vallarhelming Fc Moppu (fólskulegt brot) og þar sem Gústi engdist um á jörðinni í nokkrar sekúndur heyrði hann bjór vera opnaðan á hliðarlínunni og stökk upp og ætlaði að hlaupa beina leið útaf en leikmaðurinn var því miður fyrir honum og eins og menn vita þá stendur ekkert í vegi Gústa þegar bjór er annars vegar, og því fór sem fór, beint rautt og bann í næsta leik! Reyndar er önnur þeóría um þetta brot þ.e. að þetta sé Beckham syndróm, því heyrst hefur að mikilvægur leikur eigi sér stað í Geirakoti um helgina og því varð hann að verða sér út um rautt spjald til að geta tekið þátt í honum..... en nóg um þetta!

Við þetta var skipulaginu breytt í 4 4 1 þar sem Pétur Björn var einn frammi.
Magic gerði heiðarlega tilraun til að sækja en Fc Moppa gerði mjög fólskulegar tilraunir til að verjast og virtist það ganga betur! Þegar ca. 10 mínútur voru eftir gulltryggði Fc Moppa sigurinn með marki beint úr aukaspyrnu. Brotið var á einhverjum rétt utanvið teig vinstrameginn við vítateiginn og tók Pétur Björn spyrnuna sjálfur og lagði hann snyrtilega í hornið fjær. Heyrst hefur að þetta hafi verið vel úthugsað markskot, en einnig hefur heyrst að þetta hafi verið vel meint sending inní teig, leyfum við lesendunum að meta það. En engu að síðu frábært mark og Fc Moppa komin í 3-0.

Þegar 5 mínútur voru eftir af leiknum taldi Valdi loksins að hann væri búinn að hita nóg upp fyrir leikinn, en hann byrjaði á fyrstu mínútu að hita upp. Skellti sér inná í sóknina fyrir Kára og fékk stórgott færi í blálokinn til að bæta stöðuna enn frekar en renndi boltanum á skemmtilegan hátt framhjá markinu. Sennilega verið of heitur. En staðan í leikslok 0-3 fyrir Fc Moppu.

Þetta verður að teljast bara hin ágætasta frammistaða hjá Fc Moppu þrátt fyrir að við vorum talsvert á hælunum fyrrihluta fyrrihálfleiks. Seinni hálfleikur var fínn og áttum við margar mjög góðar sóknir og vörnin stóð sig mjög vel, hélt hreinu í fyrsta skiptið í mótinu í ár. Það var ljómandi að hafa skipti menn, en þetta er annað hvort í ökkla eða eyra þar sem í síðasta leik mættum við 9 en í gær mættum við 19. Það á nú sjálfsagt eftir að verða meira jafnvægi á hlutunum í sumar, ég á ekki von á að þetta sé það sem koma skal, en fínt ef það myndi haldast ca. í 16 manns í hverjum leik.

Maður leiksins verður að teljast sá sem kom með bjórinn...... eða Pétur Björn með þrennu í fyrsta deildarleik sínum fyrir Fc Moppu, þið veljið!

Munið svo eftir æfingu á fimmtudaginn og að það er leikur á sunnudaginn 19. júní KR völlur 21:00, FC Moppa- Vatnaliljur!

Kv. Van Basten

Ps. ef þið sjáið staðreyndavillu endilega commentið svo ég geti breytt!!!!

Monday, June 13, 2005

Leikur í kvöld!!!

Eins og þið að sjálfsögðu vitið er leikur í kvöld og er kominn tími á fyrsta sigurinn í deildinni.
Það kemur ekkert annað til greina, búningarnir koma því miður ekki úr merkingu fyrr en síðar í vikunni þannig að það verður að mæta með gömlu búningana!

Mæting er sem fyrr hálftíma fyrir leik!

13. Jún. 19:30 - Magic-FC Moppa Fylkisvöllur

Kv. Van Basten

Wednesday, June 08, 2005

Búningarnir eru komnir

Búningarnir eru komnir og fara þeir vonandi í prentun í dag. Búið er að raða stærðum niður á menn og verða menn að gera athugasemd við það ef menn eru ekki sáttir.

Hér er nafn, örnefni, nr og stærð búnings!

Arnars Halldórsson Halldórsson 12 L
Ágúst Illugason Svalasta 7 M
Ásgeir Nikulás Ásgeirsson E=mc2 22 XL
Benidikt Ketilsson Bnak 2 L
Bjarni Þórðarson Hugsauðurinn 9 L
Björn Freyr Ingólfsson Fat dwarf OO M
Einar Hannesson E. Örugglega 1 XL
Guðmundur Jón Ottósson Svarthöfði 20 L
Guðmundur Ragnar Einarsson Gre 23 L
Gunnar Freyr Freysson Freyz 5 XL
Gunnar Sigurðsson Gary 32 L
Halldór Smári Elíasson Elíasson 19 L
Hilmar Hilmarsson Hafcenterinn 15 XL
Höskuldur Gottlieb 26 M
Jóhann Ingi Johnsson 77 XL
Ingvi Jökull Logason Der Alte 14 XL
Jón Emil Sigurgeirsson Fisterinn 13 L
Jónas Birgisson J. Birgisson 17 XL
Kári Ingi Atlason K-man 18 L
Kjartan Haraldsson Hr. Sleggja 6 XL
Loftur Þór Einarsson Kaðallinn 4 XL
Páll Guðbrandsson Gíraffinn 11 XL
Pálmi Sigurgeirsson Der König 8 XL
Pétur Björn Pietro 25 XL
Pétur Óli Einarsson Jensen 33 L
Sigurður Hannesson Hannesson 24 M
Sigurður Grétar Ólafsson Beljakinn 27 L
Sindri Sveinsson Meiddur 16 L
Tómas G. Þorgeirsson Tom46 21 L
Þorvaldur E. Sæmundsen Van Basten 3 XL
Þorvaldur Logason Rivaldinio 10 XL
Þórður Guðmundsson Doddson 50 L

Þannig að ef þið viljið breyta einhverju þá látið mig vita.
Búningarnir fara í pretun seinnipartinn í dag.
Sendið breytingartillögur með sms í síma 8662285
kv. Van Basten