Tuesday, April 25, 2006

Æfingaleikur, Riðlar ofl.

Sælir

Þá er komið að fyrsta æfingaleik sumarsins.
Hann verður á Framvellinum, kl.17.00 næstkomandi sunnudag(30.apr) á móti Vatnsberum.
Allir að mæta í ný pússuðum skóm og gömlu góðu treyjunum.

Þá er búið að draga í riðla fyrir sumarið. Liðum hefur eitthvað fækkað og því aðeins þrír riðlar í sumar og erum við í c-riðli sem við fyrstu sýn virðist ansi sterkur.

Riðill C
Áreitni,Fc Fame, Fc Reynir, Fc Fame, Nings, Dragon, Fc Moppa,TLC, Vatnsberar, Stormur, Kærastan hans Ara, Gismo, Strumpar.

Í öðrum fréttum þá mun deildin vera spiluð á sömu völlum og í fyrra ásamt Tunguvöllum sem er N.B. grasvöllur og þá geta pappakassar eins og Gústi glaðst yfir því að kaupa áltakkaskó fyrir sumarið.

Við þurfum svo að tala um búningamál ofl. eftir leikinn.

Látið vita í kommentakerfið hvort þið mætið.

Kveðja,
Stjórnin

Tuesday, April 11, 2006

Bonga á Mongun!

Sælir Félagar í kristi.

Nú er vorið að koma og eins öruggt og björninn sem rís úr hýði á vorin þá gerir Moppan það líka.

En til þess að við getum örugglega spriklað og drukkið bjór saman í sumar þá þurfum við að borga og þá þýðir ekkert að segja eins og skáldið sagði forðum daga “Bonga á mongun!”

Við þurfum peninga og það strax.

Leggja skal inn 5000 kr. á

563-14-200118, kt 100775-3449

Helst í dag ef ekki þá síðasta lagi á morgun. Það á að borga keppnisgjaldið fyrir laugardag.

Við munum síðan ræða skemmtilegri mál þegar við erum búnir að borga.

Framkvæmdarráð Moppunar 2006

Björn Freyr og Jónas

Friday, April 07, 2006

Fc Moppa farin að rúlla aftur

Jæja moppumenn nær og fjær! Nú er komið að því að moppan dröslist úr hýði og teygji úr sér og hristi af sér doða vetursins! Vorið nálgast og með því fylgir eins og ávallt brunasár eftir gerfigras, gúmmíflyksur í skóm, væl, tuð og röfl í dómurum, skillz ala moppan og síðast en ekki síst sigrar!

Þetta vor er þó ólíkt öðrum vorum sem moppumenn nær og fjær hafa upplifað! Vorið 2006 markar tímamót í knattspyrnusögunni ja ef ekki íþróttasögunni hér á eldgömlu ísafold! Þetta er vorið sem Ísland vinnur júróvísíón og vorið sem blikarnir komust ekki í úrvalsdeildina og vorið sem Manutd vinnur titilinn og síðast en ekki síst vorið sem Fc moppa verður 10 ára!

Þar sem þetta á eftir að verða sumar moppunnar þá er ekki úr vegi að fara að hreyfa sig eitthvað og verður því æfing á gerfigrasinu hjá Fram á sunnudag kl. 17:30 og næstu 2-3 sunnudaga... fer eftir mætingu hversu lengi við tökum völlin!

Þá er ekki úr vegi að minna menn á fundinn í kvöld sem hefst stundvíslega kl. 21:00 og er öllum moppumönnum gert að mæta á þennan fund og mælst er til að bjór sé hafður við hönd!

Fundurinn fer fram í Selbrekku 32 í kópavoginum

Kv. M0ppan