Thursday, March 31, 2005

borgið nú elskurnar mínar!!!!

Þar sem að það er að koma mánaðarmót þá er ekki út vegi að minna menn á að borga svo við getum nú haldið hátíðlegt mót í sumar í sæmilega útlítandi búningum og vel þjálfaðir! Verið ekki sparir á borgunina, nöldrið okkur er í beinu samræmi við summur sem leggjast inná reikninginn, því hærri summar því minna nöldur!
Munið bara að setja skýringu með þegar þið leggjið inn, nafn eða kennitölu!
Reikningsnúmerið er 1135 05 409000 kt. 021176-4279

Treystum á ykkur!!!
kv. Stjórnin

Æfing og búningamál!

Ágætis mæting var á æfinguna í gær, 14 manns mættu uppstrílaðir og hlupu gallvaskir eftir leðurtuðrunni alræmdu í ca. klukkustund. Var létt yfir hópnum og menn á köflum óvenju hnittnir, og sumir voru reyndar óvenju hittnir! Leikar fóru einhvernveginn fyrir bláu grúbbunni og var sigrinum fagnaði ógurlega og sáust ófá tár falla í rauðu grúbbunni. Þá var einnig kynnt fyrir leikmönnum væntanlegir búningar sem á að fjárfesta í! Almennt voru menn ánægðari með bláa celtic prostar búninginn sem er reyndar aðeins dýrari

en þeir kosta ca. 276.55 pund 15 búninga sett fyrir utan skatt. þ.e. 30 búningar eru ca 75000 kr. með markmannsbúning og merkingu.
Svo er það hinsvegar Umbro búningarnir



Enn þeir kosta 199 pund 15 búningar með tösku sem gera ca. 55000 kr. 30 búningar með merkingum og markmannsbúning! Nú er það bara spurning hvort að menn séu tilbúnir að borga aðeins meira fyrir prostar eða hvort að við eigum að skella okkur á Umbro.
Commentið nú á þetta og verið ekki feimnir það þarf að taka ákvörðun um þetta fljótlega!

kv. Van Basten

Tuesday, March 29, 2005

Fc Hómer 5-3 Fc Moppa

Eftir að hafa legið yfir leiknum á móti Fc Hómer alla helgina og spáð og spekúlerað í því hvað fór úrskeiðis þá komst ég að því að við töpuðum mjög sannfærandi! Fyrri hálfleikur var ágætur af okkar hálfu og börðumst við sæmilega og uppskárum 3 ágæt mörk, en fengum aftur á móti á okkur 2 klaufamörk. Fyrsta markið kom eftir mistök í vörninni þar sem undirritaður missti boltann á afleitum stað sem aftasti varnarmaður og staðan orðin 1-0. Siggi gerði næstu mistök sem kostuðu okkur annað mark, en í kjölfarið af því komu þrjú ágæt mörk frá moppunni sem sneru stöðunni í 3-2. Bjössi, Gústi og Tommi settu mörkin og var ágætlega staðið að þeim öllum. Fyrri hálfleikur var bara nokkuð vel spilaður og sást oft mjög gott spil og vorum við sanngjarnt yfir í hálfleik. Í seinni hálfeik var eins og við værum hauslausar hænur þar sem menn spiluðu hvað eftir annað úr stöðunum og komumst varla yfir miðju. Hómer setti 3 klassísk moppumörk á okkur og miðað við spilamennskuna í seinni hálfleik áttum við þetta skilið. Held að hluti af skýringunni sé að finna í því að menn voru að skipta sér í stöður sem þeir eru ekki vanir að spila. Engu að síður var ágætt að sjá hvar við stöndum og hvað við þurfum að bæta okkur í, t.d. voru sendingarnar alveg skelfilegar mikið af feilsendingum og væri vel hugsandi að taka 2 snertinga bolta hluta af æfingum því ekki veitir okkur af.
Þeir sem mættu í leikinn voru Bjössi, Benni, Gunni (nýr), Gummi, Kári, Gústi, Siggi (fullur), Himmi, Lolli, Loftur, Ingvi, Tommi, Doddi, Höddi og Palli.

Minni á æfinguna annað kvöld kl. 22:00 á Framvellinum

Kv. Van Basten

Tveir Gíraffar

Mynd náðist af afrískum Gíraffa í dýragarðinum í Madrid með fjarskyldum ættingja sínum, íslenska Gíraffanum. Þykir þetta teljast til tíðinda!

Wednesday, March 23, 2005

Æfingaleikur á föstudaginn Langa

Annar æfingaleikur tímabilsins fer nú í hönd, eftir langar og strangar samningaviðræður þá tókust samningar um að hafa æfingaleik í Moppuhöllinni (Fífunni), á Föstudaginn langa kl. 13:00, mæting er ca 12:45. Mótherjinn verður sem svo oft áður í æfingaleikjum Fc Hómer. Fc Hómer er gamalgróið félag í utandeildinni sem við þekkjum allir og höfum margoft keppt við. Endilega látið vita hvort þið mætið í leikinn með commentum.

kv. Van Basten

ps. minni á æfinguna í kvöld kl. 20:30 reynið nú að mæta sem flestir.

Monday, March 21, 2005

Æfing á miðvikudag

Æfingin á miðvikudag færist fram til 20:30 sökum þess að það er frídagur á fimmtudaginn og menn eru örugglega í einhverju djammstuði, og því tilbúnir að vera búnir fyrr! Hægt verður að komast í sturtuaðstöðu í íþróttahúsinu á eftir æfingu!
Endilega notið commentin til að láta vita hvort menn mæta á miðvikudaginn! Ágætt að hafa nokkurn veginn töluna á því hverjir mæta.
Kv. Van Basten

Wednesday, March 16, 2005

Æfing í kvöld þið munið kl. 22:00

Jæja þá er komið að annari æfingu moppunnar í vetur, og verð ég að segja fyrir mína parta að ég er miklu meira fitt núna heldur en í síðustu viku. Finn bara hvernig spekið rennur af manni og þrótturinn vex með hverri hugsun um æfinguna í kvöld. Hvernig væri nú að menn commenti á það hvort þeir mæti í kvöld og láti þá sem muna ekki eftir æfingunni vita.... spread da word!!!
Síðasta æfing var eins og áður sagði stórkostleg og hefur ekki sést svona fjöldi á æfingu síðan...... ja ég man nú bara ekki eftir öðrum eins fjölda.
Reynum nú að halda uppi smá stemmara hérna og verið duglegir að commenta!
kv. Van Basten

Ps. munið eftir að borga!! Reikningsnúmerið er í frétt hér að neðan.

Thursday, March 10, 2005

Fyrsta æfingin og aðrar upplýsingar

Það var gaman að sjá góða æfingu á fyrstu æfingu vetrarins á glænýjum heimavelli moppunnar í Safamýrinni. Þó verður að kvarta yfir lélegum birtuaðstæðum sökum skorts á flóðljósum! 18 manns mættu til æfingar og þar af voru 7 nýjir. Loftur mætti með 5 nýja í boltann og Ásgeir og Doddi sitthvorn manninn. Stóðu þeir sig flestir nokkuð vel og væri gaman að kíkja á nokkra þeirra aftur. Grasið var bara nokkuð gott að mínu mati, þarf aðeins að venjast því en að öðru leiti allt í lagi. Ágætt að ná að venjast því aðeins þar sem þetta er einn af völlunum sem mun verða spilað á í sumar. Gaman var að sjá Gunna mæta sterkan til leiks eftir langvarandi fjarveru vegna meiðsla. Þeir sem mættu á æfinguna voru Lolli, Loftur, Gunni, Jón Emil, Gústi, Jónas, Kjarri, Teddi, Ásgeir, Doddi og Bjössi ásamt þessum 7 nýliðum og verður það að teljast mjög góð mæting (samanber síðasta sumar). Þessi æfingatími verður fastur fram til 10. maí og því hljóta menn að koma til að muna þennan tíma
!!!MIÐVIKUDAGAR KL. 22:00 -23:00!!!

Annars eru hérna upplýsingar sem komu fram á aðalfundi utandeildarliða!

Hérna koma helstu punktar frá aðalfundi, en því miður náum við ekki að senda ykkur glærurnar.

Ø Bjarni G. lætur af störfum sem mótstjóri og hefur Örvar Sær Gíslason tekið við af honum sem mótstjóri.
Ø Samið hefur verið við ÍBR til 2ja ára um leikjaumsjón og vallarleigu. Leikið verður á 3. kynslóðar gervigrasi hjá Fram, Fylki, KR, Leikni og í Egilshöll.
Ø Mótsgjald hækkar í 95.000 kr sem skiptist í 2 greiðslur, fyrir 17. mars skal greiða staðfestingargjald 25.000 kr og fyrir 11 apríl lokagreiðslu 70.000 kr.
Ø Lið bera ábyrgð á að skýring greiðslu sér skiljanleg, senda kvittun á iba@isl.is
Ø Reglur mótsins verða þær sömu og áður, liðum ber að kynna sér reglurnar en þær eru að finna á www.sport.is
Ø Úr stjórn Félags Utandeildarliða ganga Þór Bæring Ólafsson og Guðmundur Snorrason, í stað þeirra koma Magnús Sævar Magnússon, Elliða og Ingvar Magnússon úr Markaregn.
Ø Við óskum eftir einum forsvarsmanni úr neðri deild til að koma að styrkleikaröðun neðri deildar. Áhugasamir vinsml. Sendið póst á iba@isl.is

Eins og þið sjáið hefur mótsgjaldið hækkað og verður að vera búið að borga það allt fyrir 11. apríl og staðfestingagjald fyrir þann 17. mars sem er 25 þús kr. Þá er hugmynd uppi um að kaupa búninga í sumar, og vera við æfingar fram í maí allavega, sem er 5000 kr. tíminn. Þetta gerir það að verkum að við þurfum að leggja nokkuð út fyrir öllu þessu. Hugmyndin var að gjaldið yrði 12500 fyrir sumarið og er þá allt innifalið. Greiðsluna má borga í nokkrum hlutum eða þá öll í einu. Menn þurfa að borga 2000 kr strax svo að við eigum fyrir staðfestingagjaldinu. Reikningsnúmerið er
1135 05 409000 kt. 021176-4279

Látið svo heyra í ykkur hér á commentunum látið einnig þá sem ekki vita af síðunni vita af henni.

Kv. Van Basten

Tuesday, March 08, 2005

Og hefst þá vertíðin


Já góðann daginn góðir Moppubræður nær og fjær. Nú er mál til komið að fara drattast á lappir og hefja Fc Moppu upp til fyrri vegs og virðingar. Hér hef ég sett saman litla bloggsíðu sem við getum notað sem málgagn þar til leyst verður úr öðrum heimasíðuvandkvæðum.

Við þurfum að gera meira af því sem sést á myndinni fyrir ofan og minna af því að sitja heima með þumalputtan uppí rassgatinu á okkur eða öðrum fjölskyldumeðlimum (no pun intended). Fyrsta mál á dagskrá er æfing á morgun, miðvikudaginn 9. mars kl. 22.00 á Framvellinum. Síðan er búið að setja á æfingaleik við Dufþak 7. apríl á sama tíma og stað en hann verður auglýstur betur síðar.

Notum commentin, drekkum vín og verum hressir.
Yfir og út!